Ægir - 01.02.2002, Síða 14
14
T Æ K N I
„Liður í þessari þróunarvinnu var
samstarfsverkefni með Ísfélaginu í
Vestmannaeyjum þar sem við
beittum líkaninu til kælingar á
síld. Við töldum að út frá okkar
útreikningum ætti að takast að ná
kælingu á hráefninu undir tveim-
ur gráðum og því marki náðum
við. Kæling á hráefninu er auð-
vitað mjög mikilvæg til þess að
hámarka gæði þess og þar með
verð fyrir aflann,“ segir Jónas.
„Áður en við hófum þessa tilraun
með Ísfélaginu töldum við og
fleiri að þessi tækni ætti ekki
heima í tengslum við veiðar á
uppsjávarfiski, en annað kom í
ljós og síðan höfum við selt þessa
lausn til fleiri aðila í uppsjávar-
fiskveiðunum. Og við höfum líka
haslað okkur völl í fiskeldinu, t.d.
höfum við selt okkar vélar til
tveggja stórra laxasláturhúsa í
Færeyjum og þar eru þær ræstar
kl. 21 að kvöldi og framleiða ís-
þykkni í tank til klukkan 7 dag-
inn eftir þegar slátrun hefst og
framleiða meðan slátrun varir
þann daginn. Þar seljum við
heildarlasnuir í kæliferli við laxa-
slátrun með ísþykknisvélum og
hitastýringum“
Betri og hraðari kæling
Það sem af er þessu ári hefur Ís-
kerfi gengið frá samningum um
sölu á Liquid Ice ísþykknivélum
umfram það sem gert hafði verið
ráð fyrir. Jónas segir greinilegt að
þessi tækni sé farin að vekja
mikla athygli og spyrjast út og
þess njóti fyrirtækið í aukinni eft-
irspurn. „Við erum í mikilli sam-
keppni á þessum markaði, en sá
árangur sem þróunarvinnan hjá
Ísþykknivélar frá Ískerfum í Hafnarfirði hafa vakið mikla athygli:
Stefnum að því að verða
bestir á þessu sviði
- segir Jónas G. Jónasson, framkvæmdastjóri
„Við ákváðum snemma á síðasta ári að við skyldum byggja upp þekk-
ingu innan dyra hjá okkur á því hverjar þarfirnar væru á þessum mark-
aði og hvernig ísþykknið frá okkur virkaði og ætti að notast þannig að
það skilaði okkar viðskiptavinum sem bestum árangri. Við bjuggum til
líkan þar sem við gátum kallað fram hvernig ísþykknið virkaði og
þannig metið aðstæður á hverjum stað, þ.e.a.s. hversu mikið ísþykkni
og hversu stóra vél þyrfti til þess að ná fiskinum niður í ákveðið hita-
stig,“ segir Jónas G. Jónasson, framkvæmdastjóri Ískerfa í Hafnarfirði.
Jónas G. Jónasson,
framkvæmdastjóri
Ískerfa, og Unnþór
Stefánsson, starfs-
maður fyrirtækisins.