Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 16
16
T Æ K N I
„Á sviði fjarskipta í
tengslum við sjávar-
útveginn er mikil
framþróun og sama
má segja um sjón-
varpsmálin,“ segir Jó-
hann H. Bjarnason,
framkvæmdastjóri
Radiomiðunar, en
fyrirtækið hefur til
fjölda ára lagt mikla
áherslu á fjarskipti
fyrir skipaflotann og
óhætt er að segja á
því sviði sé mikið að
gerast þessi misserin.
Flestir skipstjórnarmenn kann-
ast við MaxSea skipstjórnartölv-
una frá Radiomiðun sem hefur
verið í stöðugri þróun Meðal nýj-
unga í MaxSea er fullkomin því-
víddartækni, sem sjófarendur
nýta sér í auknum mæli. „Þessi
tölva frá MaxSea er afar fullkomin
siglingatölva með fjöldanum öll-
um af stoðhugbúnaði. Meðal ann-
ars er hægt að tengja við hana
kerfi sem við höfum verið að þróa
og köllum „Þjónustubankann“.
Þar erum við að nýta tölvuna um
borð í skipunum til þess að taka á
móti upplýsingum á rafrænu
formi, t.d. veðurupplýsingum frá
Veðurstofu Íslands og upplýsing-
um frá öldu- og veðurduflum í
samstarfi við Siglingastofnun.
Einnig erum við í samstarfi við
Fiskistofu varðandi upplýsingar
um skyndilokanir. Þegar Fiski-
stofa sendir slíkt frá sér fara upp-
lýsingarnar beint inn á þjónustu-
bankann hjá okkur og þaðan ber-
ast nákvæmar upplýsingar um
skyndilokunarsvæðin inn á Max-
Sea skipstjórnartölvurnar. Einnig
eru upplýsingar frá notendum,
fréttir af mbl.is og fleira,“ segir
Jóhann.
Iridium fjarskiptakerfið
Jóhann segir greinilegt að Iridi-
um fjarskiptakerfið, sem Radi-
omiðun selur og þjónustar, sé í
mikilli sókn um þessar mundir.
„Í þessu kerfi eru talgæði meiri
en þekkist í öðrum kerfum, sem
má rekja til þess að Iridium
byggist á lágfleygum gervihnött-
um sem ferðast eftir sex spor-
baugum. Kerfið hefur þá sérstöðu
að ódýrara er að hringja milli
tveggja Iridium síma en að
hringja úr Iridium-síma í land-
línukerfið. Þessu er öfugt farið
með önnur kerfi. Ástæðan fyrir
þessari sérstöðu er sú að stjórnun
símtalanna í Iridium kerfinu á sér
stað uppi í gervihnöttunum. Við
höfum nýverið tekið í notkun Iri-
dium-Iridium þjónustu Radio-
miðunar þar sem okkar viðskipta-
vinum býðst að hringja í gegnum
Iridium síma hjá Radiomiðun til
að ná sambandi við annan Iridi-
um síma og ná þannig fram um-
talverðum sparnaði. Þetta hefur
mælst vel fyrir bæði hjá fjölskyld-
um sjómanna sem og fyrirtækj-
um. Ýmis útgerðarfélög eins og
til að mynda Grandi hf. hafa farið
þá leið að setja Iridium síma í sín
skip og jafnframt sett slíka síma á
skrifstofuna í Reykjavík, sem
Miklar og stöðugar
framfarir
í fjarskiptamálum
- segir Jóhann H. Bjarnason, framkvæmdastjóri Radiomiðunar
Jóhann H. Bjarnason,
framkvæmdastjóri
Radiomiðunar, við
búnað sem tekur á
móti merkjum frá
gervihnöttum.