Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 17
17
T Æ K N I
tengdir eru við símstöð hússins
og þar með geta þeir hringt beint
frá skrifborðinun í gegnum Iridi-
um. Þetta gerir Granda kleift að
hafa samband milli höfuðstöðv-
anna og skipa félagsins fyrir allt
að helmingi lægra verð en með
því að fara í gegnum landlínu-
kerfið. Þetta er vissulega mikil
bylting því fyrir þremur árum var
kostnaðurinn við símtöl milli
lands og skipa margfaldur á við
það sem þessi Iridium tækni býð-
ur upp á.“
Tölvupóstur til sjós
„Radiomiðun hefur einnig boðið
upp á sértækar lausnir til að
senda tölvupóst út á sjó, annars
vegar með lausn frá Netverk sem
heitir Marstar sem er sérstakur
hugbúnaður til þjöppunar á
tölvupósti sem sendur er í gegn-
um gervihnetti. Hins vegar lausn
frá Snerpu hf. sem heitir Inmobil
og er fjölnotendakerfi þar sem
hver og einn getur sent og fengið
sinn einkapóst. Viðskiptavinum
okkar sem eru með Iridium og
Marstar eða Inmobil býðst einnig
að sækja sinn tölvupóst á Iridium
- Iridium sambandi og spara sér
þannig umtalsverða fjármuni.
Sendihraðinn er líka mun meiri
þegar sent er á milli tveggja Iri-
dium síma heldur en þegar sent
er til lands á hefðbundinn hátt.
Ég vil orða það svo að þetta sé
tímanna tákn. Nú til dags finnst
fólki sjálfsagt mál að sækja og
senda tölvupóst í vinnu eða heima
og ef einhvers staðar er virkileg
þörf fyrir tölvupóstsendingar
myndi ég telja að það væri úti á
sjó. Það er auðvitað mjög mikil-
vægt fyrir sjómenn að geta verið í
góðu og ódýru tölvusambandi við
sína nánustu í landi, að þeir geti
miðlað sínum persónulega pósti á
öruggan hátt í stað þess að rita
skilaboð á dulmáli á Standard C
tækinu eða tala dulmál yfir Gufu-
nesradíó. Þetta kerfi hefur líka
veitt sjómönnum möguleika á því
að stunda fjarnám, sem er mjög
jákvætt,“ segir Jóhann.
Aukinn áhugi á
gervihnattasjónvarpi
Jóhann segist merkja mikinn og
vaxandi áhuga sjófarenda á mót-
töku sjónvarpsefnis, enda sé þessi
tækni til þess fallin að rjúfa
ákveðna einangrun sem margir
sjómenn, ekki síst þeir sem eru
langtímum saman á úthafinu,
hafa búið við. Radiomiðun hefur
sl. þrjú ár boðið upp á kerfi sem
ber heitið Orbit sem samanstend-
ur af móttökudiski og öðrum til-
fallandi búnaði fyrir skip og báta
til þess að taka á móti efni frá
gervihnöttum. Móttökudiskurinn
frá Orbit er frábrugðinn öðrum
diskum að því leyti að þvermál
hans er meira en gengur og gerist
og fyrir vikið er langdrægni hans
óvenju mikil. Fyrsti Orbit-mót-
tökubúnaðurinn fór um borð í
Þórunni Sveinsdóttur VE og er
reynslan góð. Jóhann segir að við
hönnun búnaðarins hafi verið haft
að leiðarljósi að erfiðar aðstæður,
þ.m.t. högg og aðrar hreyfingar
skipsins, myndu á engan hátt
hafa truflandi áhrif á merkjasend-
ingarnar. „Á þessu sviði er stöðug
framþróun og nú getum við boðið
nýja tæknilausn sem gerir það að
verkum að 82 sentímetra diskur
hefur sömu virkni og diskur sem
er einn metri í þvermál. Þessa
nýjung er hægt að nýta á öllum
skipum, en þó ekki síst á þeim
minni,“ segir Jóhann H. Bjarna-
son
Iridium síminn lætur ekki mikið yfir sér, en þetta er einstaklega öflugt tæki.
Myndir: Sverrir Jónsson
Radiomiðun hf., sem hefur sérhæft sig í
þjónustu og sölu á siglinga-, fiskileitar-
og fjarskiptabúnaði fyrir íslenska skipa-
flotann í rúma þrjá áratugi, hefur tekið
að sér sölu og þjónustu á fjarkskipta-
búnaði frá Skanti.
Skanti er einn stærsti framleiðandi á
fjarskiptabúnaði fyrir skip og báta, en
stór hluti íslenska flotans er búinn bún-
aði frá Skanti.
Í frétt frá Radiomiðun hf. kemur
fram að fyrirtækið hafi verið umboðsað-
ili fyrir Sailor fjarskiptabúnað fyrir skip
og báta síðan 1964, en Skanti og Sailor
eru í eigu sömu eigenda, ECI í Dan-
mörku. Til að bæta enn frekar þjónustu
við notendur, er það stefna ECI að hafa
sama umboðsaðila fyrir bæði vörumerk-
in, á þeim mörkuðum sem það þykir
henta.
Radiomiðun umboðsað-
ili fyrir Skanti á Íslandi
Jóhann Bjarnason, framkvæmdastjóri Radi-
omiðunar hf., ásamt Walther Fenger, markaðs-
stjóra hjá Skanti.