Ægir - 01.02.2002, Qupperneq 19
19
m.ö.o.flytjum við núna út yfir
90% framleiðslunnar, en vissu-
lega hefur það hlutfall sveiflast
töluvert á undanförnum árum. Á
árunum 1998 og 1999 var óvenju
mikil sala hér innanlands vegna
uppsveiflu í saltfiskinum. Sá
markaður hefur hins vegar dregist
saman og á síðustu misserum höf-
um við fyrst og fremst einbeitt
okkur að framleiðslu á vigtum til
pökkunar á uppsjávarfiski, síld og
makríl. Við höfum þróað vogir
fyrir landvinnslur til pökkunar á
þessum tegundum sem hafa inn-
an við 1% skekkju og afköstin
eru um 12 tonn á tímann saman-
borið við 6 tonna afköst og 4-5%
skekkjumörk hjá venjulegri
skömmtunarvog,“ segir Ellert
Berg.
Póls-vogir í risaverksmiðju
í Færeyjum
Nýverið afhenti Póls sex pökkun-
arvogir í stærstu uppsjávarverk-
smiðju í heiminum sem hefur
verið í byggingu í Færeyjum og
verður hún tekin í notkun í mars.
Þessi verksmiðja er engin smá-
smíði því gert er ráð fyrir að í
gegnum vinnsluna fari um 1000
tonn á dag. Til samanburðar er
hægt að „keyra“ nærri fjórfalt
magn á dag í gegnum verksmiðj-
una miðað við stærstu verksmiðj-
una hér á landi og algeng stærð
sambærilegra verksmiðja í Noregi
er með 250 til 400 tonna dagsaf-
köst. Í þessari nýju verksmiðju í
Færeyjum er fyrst og fremst horft
til síldar og makríls, en einnig
lítilsháttar til loðnu.
Aukin áhersla á laxeldið
Eins og áður segir markaðssetti
Póls vigtunarkerfi fyrir uppsjáv-
arfisk árið 1999, sem hafa verið
að skila fyrirtækinu umtalsverðri
aukningu í veltu ár frá ári. Ellert
Berg segir að alltaf sé horft fram á
veginn og hann upplýsir að á
sjávarútvegssýningunni hér á
landi í haust sé stefnt að því að
kynna nýja tæknilausn fyrir lax
og bolfisk. „Við höfum lítillega
verið í laxinum, en núna hefur
verið mörkuð sú stefna að auka
áhersluna á hann. Ástæðan er sú
að framleiðsla á laxi í heiminum
er mjög stór iðnaður sem ekki er
hægt að horfa framhjá og við höf-
um yfir að ráða tæknibúnaði og -
þekkingu sem við þurfum í raun
bara að aðlaga laxinum.“
Sala til Argentínu og Chile
Póls hf. selur framleiðsluvörur
sínar út um allan heim. Til marks
um það nefnir Ellert Berg að til
Argentínu hafi fyrirtækið selt
skipavogir og í Chile hefur Póls
einnig verið að hasla sér völl.
Markaðurinn í Chile er mjög
áhugaverður, ekki síst vegna þess
hversu mikill vöxtur hefur orðið
þar í laxeldi á síðustu árum. „Lax-
inn hefur verið í örum vexti í
Chile, en reyndar höfum við
einnig náð samningum um sölu á
búnaði í tengslum við uppsjávar-
veiðar og erum að fara að setja
hann upp á næstu dögum.“
Útflutningur á íslensku
hugviti og þekkingu
Lengi vel horfði Póls hf. fyrst og
fremst til framleiðslu og sölu svo-
kallaðra skipavoga, en Ellert Berg
segir að fyrir nokkrum árum hafi
verið mörkuð sú stefna að auka
áhersluna á framleiðslu fyrir land-
vinnsluna og það sé að skila sér
nú. „Víða hefur verið mjög mikil
fjárfesting vegna uppsjávarveiða
og vinnslu á uppsjávarfiski síð-
ustu tvö árin og við höfum verið
að njóta góðs af því. Staðreyndin
er sú að hér á landi er gríðarleg
þekking á þessu sviði og það má
segja að við séum að flytja hana
út. Við þurfum hins vegar að
passa okkur að halda vel á spöð-
unum hér heima og leyfa ekki til
dæmis norskum og hollenskum
fyrirtækjum að sigla framúr okk-
ur á þessu sviði. Við gætum stað-
ið illa að vígi ef það gerðist.“
Póls hf. byggir víða erlendis á
umboðs- og sölumannakerfi. Í
Álasundi í Noregi hefur þó verið
gengið skrefinu lengra því þar er
búið er að setja á stofn fyrirtækið
Póls-Noregur, sem einbeitir sér
að sölu framleiðsluvara Póls.
Tvöföldun framleiðslu-
rýmis á Ísafirði
Hjá starfsmönnum Póls á Ísafirði
hefur verið byggð upp gríðarlega
mikil þekking og reynsla í hönn-
un og framleiðslu á vigtarkerfum.
Ellert Berg segir að starfsumhverfi
fyrirtækisins á Ísafirði sé hagstætt
og hann nefnir að ekki sé verra að
starfa í nálægð við 3X Stál, sem er
annað fyrirtæki á Ísafirði í ekki
ósvipaðri starfsemi. „Það sem hef-
ur staðið okkur fyrir þrifum á Ísa-
firði er húsnæðisskortur, en á því
hefur nú verið ráðin bót því við
keyptum næsta hús, húsnæði
Hjólbarðaverkstæðis Ísafjarðar, og
við það tvöfaldast framleiðslurým-
ið og verður um 650 fermetrar.
Við munum flytja málmsmíði fyr-
irtækisins í nýja húsnæðið,“ segir
markaðsstjóri Póls hf.
„Á árunum 1998 og
1999 var óvenju mikil
sala hér innanlands
vegna uppsveiflu í
saltfiskinum. Sá mark-
aður hefur hins vegar
dregist saman og á
síðustu misserum höf-
um við fyrst og fremst
einbeitt okkur að fram-
leiðslu á vigtum til
pökkunar á uppsjávar-
fiski, síld og makríl,“
segir Ellert Berg Guð-
jónsson, markaðsstjóri
hjá Póls hf.
T Æ K N I