Ægir - 01.02.2002, Síða 24
24
T Æ K N I
aðri „kontaktfrystingu“ og blást-
ursfrystingu og það hefur komið
mjög vel út.“
Hausaþurrkunarkerfi fyrir
Laugafisk
Eins og áður segir hefur Skaginn
unnið að því að smíða og þróa
hausaþurrkunarkerfi fyrir dóttur-
fyrirtæki Laugafisks í Færeyjum.
Að hönnun kerfisins, sem er al-
gjört nýmæli, hefur verið unnið í
samstarfi Skagans og Laugafisks.
Sigurður Guðni segir þessa
tækninýjung hafa að sínu mati
tekist mjög vel og hún sé hin at-
hyglisverðasta. „Þetta er afkasta-
mikið kerfi og sjálfvirknin er
mikil. Vinnubrögðin verða því
allt önnur. Í þessu kerfi eru haus-
arnir vigtaðir inn og brettin sem
Laugafiskur hefur látið hanna og
framleiða flytjast sjálfvirkt að
starfsmanninum. Einnig flytjast
þau sjálfvirkt frá honum og stafl-
ast upp áður en þau eru flutt inn í
sjálfan þurrkklefann. Að þurrkun
lokinni eru brettin tekin og sett
inn í kerfið þar sem þau eru losuð
og þvegin. Við höfum framleitt
þetta kerfi með það fyrir augum
að það sé einfalt og fljótlegt í
uppsetningu. Ég geri ráð fyrir að
það þurfi ekki að taka nema örfáa
daga að setja kerfið upp úti í Fær-
eyjum. Með því að auka sjálf-
virknina og bæta vinnuaðstöðuna
eykst virðing starfsmanna fyrir
verðmætum. Þurrkaðir hausar eru
að skila miklum verðmætum í
þjóðarbúið og með þessu kerfi er
verið að undirstrika það.
Í framhaldinu munum við
framleiða slík vinnslukerfi fyrir
vinnslustöðvar Laugafisks á Laug-
um í Reykjadal og í Njarðvík,“
sagði Sigurður Guðni.
Góðar horfur
„Okkur líst bara vel á þetta ár.
Það byrjar vel og mér sýnist að
við höfum stór og góð verkefni
fram eftir ári. Sjávarútvegurinn
gengur alltaf í bylgjum og á ein-
um tíma gengur vel í einni grein
en lakar í annarri. Í uppsjávar-
veiðunum hefur verið að ganga
vel og þar er sérstaklega athyglis-
verð verðmætaaukningin með
breyttum vinnsluaðferðum,“ segir
Sigurður Guðni.
Hann segir að fyrirtæki eins og
Skaginn sé alltaf að vinna að ein-
hverjum tækninýjungum og það
muni verða gert á þessu ári. „Við
skulum sjá hvernig þeirri vinnu
miðar á árinu. Ég á von á því að
það muni koma ný tæki frá okkur
á árinu og ef áætlanir okkar
ganga eftir ættum við að geta
kynnt þau á sjávarútvegssýning-
unni í haust,“ segir Sigurður
Guðni Sigurðsson hjá Skaganum
hf.
„Sjávarútvegurinn gengur alltaf í bylgjum og á einhverjum tíma gengur vel í einni grein en lakar í annarri. Í uppsjávarveiðunum
hefur verið að ganga vel og þar er sérstaklega athyglisverð verðmætaaukningin með breyttum vinnsluaðferðum,“ segir Sigurður
Guðni. Hér má sjá eitt af öflugum uppsjávarveiðiskipum landsmanna, Beiti NK 123. Mynd: Ágúst Ólafsson.
Að undanförnu hefur Skaginn unnið að
því að smíða karakerfi fyrir þýskt fyrir-
tæki, hausaþurrkunarkerfi fyrir fyrirtæki
í Færeyjum, sem Laugafiskur og Fisk-
miðlun Norðurlands eigi hlut í, og síðan
er verið að ljúka við að smíða frysti fyr-
ir fyrirtæki í Chile.