Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.2002, Side 35

Ægir - 01.02.2002, Side 35
35 fylla skipið, en það tekur um 100 tonn. Að meðaltali tekur plógur- inn um eitt tonn í togi.“ Fjórir hafa verið í áhöfn Fossár- innar, „en það stendur til að við verðum fimm,“ segir Þorsteinn. Skelin er unnin í kúfiskvinnslu Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og er að jafnaði unnið þar fimm daga vikunnar, átta tíma á dag. Um 15-18 manns starfa að vinnslunni á einni vakt, en vonir standa til þess að unnt verði að taka upp aðra vakt þannig að allt að 30 manns starfi að þessari vinnslu í landi. Það sem kann þó að koma í veg fyrir það er skortur á vinnu- afli, en á álagstímum, þegar mik- ið er að gerast í loðnunni á Þórs- höfn og unnið er sólarhringum saman, vantar hreinlega fólk til starfa. Svo virðist sem ekki þurfi að hafa áhyggjur af markaðsmálun- um. Helsti markaðurinn fyrir ferska skel og hreinsaðan og fryst- an kúfisk er og hefur verið í Bandaríkjunum. Þessi ágæta vara er eftirsótt sem fersk og líka í súpur og sósur. Í Frakklandi er til dæmis aukin spurn eftir ferskum kúfiski. Þegar á allt er litið virðist því vera markaður fyrir aukið magn af kúfiski, en spurning er þá fyrst og fremst að ganga úr skugga um hvort unnt sé að veiða meira af skel og þá hvar. Þingsályktunartillaga um kúfiskveiðar Veiðar Fossár á kúfskel hafa náð inn í sali Alþingis því átta þing- menn Samfylkingarinnar með Össur Skarphéðinsson sem fyrsta flutningsmann hafa lagt fram til- lögu til þingsályktunar þar sem gert er ráð fyrir því að sjávarút- vegsráðherra verði falið „að standa hið fyrsta fyrir rannsóknum á út- breiðslu, stofnstærð og veiðiþoli kúfskeljar umhverfis Ísland. Kanna skal útbreiðslu og magn tegundarinnar utan þekktra veiði- svæða og veiðidýpis og meta veiðiþol á núverandi veiðisvæð- um. Jafnframt skulu gerðar aðrar líffræðilegar rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að tryggja að nýting kúfskeljar sé með sjálfbær- um hætti. Markmið rannsókn- anna skal vera að kanna betur nú- verandi veiðisvæði en jafnframt að finna ný mið, og tryggja þannig rekstraröryggi núverandi veiðiréttarhafa og auka afrakstur kúfskeljar við Ísland.“ Ónýttir möguleikar? Í greinargerð með tillögunni er tekið fram að í ljósi þess að mark- aðir séu góðir fyrir frystan skelfisk í Bandaríkjunum megi ætla að Hraðfrystistöð Þórshafnar geti fært út kvíarnar í þessum efnum og sömuleiðis gæti vinnsla á kúf- skel orðið búhnykkur fyrir fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi. „Það helgast þó af því að niðurstaða úr þeim rannsóknum, sem hér eru lagðar til, réttlæti auknar veiðar,“ segir í greinargerð þingmanna Samfylkingarinnar. Og ennfremur segir þar: „Veiðar á nær öllum nytjategundum sjávar eru studdar af hinu opinbera með rannsóknum og leit að miðum. Nægir að minna á árvissa - og eðlilega - leit að síld og loðnu sem ríkið tekur ævinlega þátt í með einhverjum hætti, oft sem fullgildur þátttak- andi á eigin rannsóknarskipum. Það er lágmark á tímum þegar kallað er eftir nýjum möguleikum til útflutnings og aukinni sköpun gjaldeyris að ríkið styðji með eðli- legum og brýnum rannsóknum nýja vaxtarsprota á borð við veiðar á kúfskel. Frumherjastarfið á Þórshöfn hefur sýnt óyggjandi að í veiðunum liggja miklir, ónýttir möguleikar, svo fremi markaðir haldist. Hins vegar er brýn þörf á auknum rannsóknum til að hægt sé að breyta þeim möguleikum í beinhörð verðmæti.“ Þessi þingsályktunartillaga þingmanna Samfylkingarinnar hefur eins og áður segir verið lögð fram á Alþingi, en ekki verið af- greidd. Kúfiskvinnslan skiptir orðið miklu máli fyrir atvinnulífið á Þórshöfn. Kúfiskveiðiskipið Fossá í heimahöfn á Þórshöfn. Myndir: Þorgrímur Kjartansson/Þórshöfn.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.