Ægir - 01.02.2002, Side 38
38
T Æ K N I
Tækjabúnaðurinn frá japanska
framleiðandanum Furuno, sem
Brimrún ehf. selur hér á landi,
hefur fyrir löngu fengið viður-
kenningu hjá íslenskum sjávarút-
vegi, enda hefur hann öðlast við-
urkenningu fyrir gæði og oftar en
ekki verið í fararbroddi í
tækninýjungum. Nýlega hóf
Brimrún sölu tveggja nýrra dýpt-
armæla frá Furuno með svokall-
aðri frjálsri tíðni (FFS), annars
vegar FCV-1100L og hins vegar
FCV-1200. Frjáls tíðni (FFS) er
nýjung frá Furuno sem gefur not-
andanum kost á að nota botns-
stykki frá hvaða framleiðanda sem
er á tíðnisviðinu 15 til 200 kHz.
Fyrir stærri skip og báta
FCV-1200, dýptarmælirinn er
fyrir stærri skip og báta. Kaup-
andinn velur flatskjá eða lampa-
skjá við hæfi. Sendirinn er stað-
settur inni í púlti og lyklaborð
ofan á borði eða það fellt inn í
borð. Innbyggðir eru tveir 3 kW
sendar á frjálsri tíðni 15-200 kHz
og er unnt að fá aukasenda 5 eða
10 kW.
Þessi dýptarmælir er þegar
kominn í fjölda skipa: fjölveiði-
skip, togara, nótaskip og línu- og
netabáta og segir Hörður Sæ-
valdsson hjá Brimrún að reynsla
notenda af mælinum hafi verið
framúrskarandi góð við veiðar á
grunnslóð, djúpslóð og við
flottrollsveiðar.
Fyrir minni báta
FCV-1100L, dýptarmælirinn er
fyrst og fremst fyrir minni báta,
en hann byggir á sömu tækni og
FCV-1200.
Dýptarmælirinn er með 10,4
tommu flatskjá og eru tveir inn-
byggðir 3 kW sendar á frjálsri
tíðni 15-200 kHz.
Eins og með FCV-1200 dýptar-
mælinn er FCV-1100L kominn í
nokkra báta og er reynslan af
honum sömuleiðis mjög góð, að
sögn Harðar.
Margar nýjungar
Þessir nýju Furuno dýptarmælar
hafa ýmsa kosti. Til dæmis ganga
þeir með botnstykkjum frá öllum
framleiðendum án nokkurs auka-
búnaðar eða útskiptinga (tíðnir
15-200 kHz). Hægt er að breyta
forritaðri tíðni mælisins +/- 10%
ef hann truflar annað fiskileitar-
tæki um borð. Fjölmargir mögu-
leikar eru við uppsetningu skjá-
myndar: 1, 2 eða 3 skjámyndir lá-
rétt/lóðrétt yfir skjáinn og hægt
er að vista tvær mest notuðu upp-
setningar. Mögulegt er að hafa
mismunandi skala (Range) á há-
tíðni og lágtíðni. Ný hönnun á
breyti fyrir hljóðmerki yfir í staf-
rænt merki (Analog/Digital con-
verter) sem vinnur á veikara
merki og gefur þar af leiðandi
betri aðgreiningu á endurvörp-
um. Bandbreidd á skölum
(Range) er breytileg sem gefur
betri greiningu á öllu dýpi, í eldri
dýptarmælum hefur hún hefur
verið föst á öllum skölum. Þá
hefur FCV-1200 dýptarmælirinn
þann kost að unnt er að tengja
hann við höfuðlínumæli og fá
fram línu á dýptarmælisskjáinn
með höfuðlínuhæð.
Nýjungar frá Furuno:
Dýptarmælar með
frjálsri tíðni
Knut Hagensen hjá iðnaðar- og útflutn-
ingsdeild norska fiskveiði- og sjávarnytja-
sambandsins segir í viðtali við Fiskaren að
íslenskur saltfiskur sé umtalsvert betri en
norskur og Norðmenn eigi langt í land
með að ná Íslendingum í verkun saltfisks.
„Við tökum þó eftir gæðamun milli lands-
hluta. Sjómenn í Vesterålen og Troms hafa
skilið að gæði eru mikilvægari en mikill
afli á stuttum tíma,“ segir Hagensen.
- Þýðir það að sjómenn á Lofotensvæðinu
þurfi að tileinka sér annan hugsunarhátt?
„Já, að nokkru leyti. Þar er baráttan um
fiskinn afar hörð og þess vegna er þar verð-
stríð og minni áhersla lögð á gæðin. Bæði
sjómenn og saltfiskverkendur verða að
taka sig á.“
- Hvert er álit kaupenda á norskum salt-
fiski?
-“Boðin eru skýr. Það er engin strika-
merking til fyrir lélegan saltfisk og þá hafa
menn heldur ekki áhuga á að kaupa hann.
Sem útflytjendur verðum við að taka tillit
til þess og það þýðir að við verðum að gera
kröfur til framleiðendanna. Ef þeir stand-
ast ekki gæðakröfur verðum við að leita til
annarra, og þeir eru fyrir hendi, meðal
annars í Vesterålen.“
Íslenskur saltfiskur
betri en norskur
E R L E N T