Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 40
Jónbjörn Pálsson
Höfundar eru
starfsmenn
Hafrannsóknar-
stofnunarinnar
Gunnar Jónsson
Í júní-júlí leiðöngrum veiddust m.a. fisktegundir
sem ekki hafa áður fundist innan íslenskrar lögsögu
en þær eru randarangi, Barbantus curvifrons, nás-
urtla, Haplophryne mollis og blaðhaus, Poromitra
megalops. Utan íslenskrar lögsögu veiddust einnig
fágætar tegundir.
Auk þeirra sjaldséðu fiska sem veiddust árið 2001
er getið fimm tegunda sem veiddust árið 1998,
1999 og 2000 en komu ekki í leitirnar fyrr en árið
2001. Þarna eru tvær nýjar tegundir á Íslandsmiðum
þ.e. spéfiskur, Dolichopteryx longipes sem veiddist
árið 1998 og silfursporður, Grammicolepis brachi-
usculus sem veiddist árið 2000.
Fiskar sem borist hafa frá fiskiskipum o.fl.
Sæsteinsuga, Petromyzon marinus
Í byrjun júlí veiddi Aðalbjörg II sæsteinsugu í
dragnót á 67 m dýpi suður af Ingólfshöfða.
Hvítaskata, Raja lintea
Í togararalli í mars veiddi Brettingur NS tvær
hvítskötur í botnvörpu á Strandagrunni.
Augnasíld, Alosa fallax
Í lok mars veiddi Friðrik Sigurðsson ÁR eina 44
cm langa augnsíld í dragnót á 110 m dýpi við Skaft-
árósa.
Þessi fisktegund er ekki mjög tíður gestur á Ís-
landsmiðum. Fyrst er hennar getið hér árið 1829 við
Vestmannaeyjar. Árið 1933 veiddi þýskur togari 30
augnasíldar við Reykjanes og nokkrum árum síðar
veiddi sami togari eina á svipuðum slóðum. Árið
1977 veiddist ein á stöng í Eyjafirði og árið 1994
veiddist ein í sunnanverðum Faxaflóa.
Svartskoltur, Brotulotaenia crassa
Í maí veiddist einn 69,5 cm langur svartskoltur í
flotvörpu Snorra Sturlusonar RE á 732 m dýpi djúpt
suðvestur af Reykjanesi. Þetta er þriðji fiskur þessar-
ar tegundar sem veiðist á Íslandsmiðum. Hinir tveir
veiddust 1998 og 1999.
Drumbur, Thalassobathia pelagica
Í maí og júní veiddi Snorri Sturluson RE fjóra
drumba 25-30 cm langa í flotvörpu á 732-824 m
dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Sjaldséðir fiskar á
Íslandsmiðum árið 2001
Allmargir sjaldséðir fiskar bárust Hafrannsóknastofnun til rannsóknar
frá fiskiskipum árið 2001. Flestir þeirra veiddust innan 200 sjómílna
fiskveiðilögsögunnar en nokkrir utan hennar. Einnig veiddust margir
sjaldséðir fiskar innan og utan lögsögunnar í leiðöngrum Hafrann-
sóknastofnunar á rannsóknaskipum hennar. Megnið af þeim fiskteg-
undum veiddist í þremur leiðöngrum þ.e. í leiðangri sem farinn var á
rs. Árna Friðrikssyni RE 200 til bergmálsmælinga á karfa suður og suð-
vestur af landinu dagana 22. júní til 12. júlí, í leiðangri sem farinn var
á rs. Bjarna Sæmundssyni RE 30 einnig til bergmálsmælinga á karfa
dagana 20. júní til 12. júlí og í haustralli sem farið var umhverfis land-
ið á rs. Árna Friðrikssyni til rannsókna á djúpkarfa og grálúðu 4. októ-
ber til 6. nóvember. Í leiðöngrunum í júní og júlí var veitt með flot-
vörpu bæði innan og utan íslensku lögsögunnar og var m.a. farið langt
suður fyrir Hvarf á Grænlandi þ.e. suður á 52°N og vestur á 44°V en í
haustleiðangri var veitt með klæddri botnvörpu og eingöngu innan ís-
lensku lögsögunnar.
40
F I S K A R