Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1947, Page 49

Símablaðið - 01.01.1947, Page 49
9 S I M A B L A Ð I Ð meir eöa minna, haldist þeim átölulaust uppi framferði sitt. En umræddri grein í Tímanum er fyrst og fremst beint aS starfsfólki Landssímans í Reykjavík. Um -áratugi hefur Landssíminn gengið á úndan öðrum opinberum stofnunum í skýrslugerð um fjarveru og stundvísi starfsfóks sins. Það er þvi eðlilegt aS þeir, sem vilja gagnrýna opinbera starfsmenn á þessu sviði, velji þá stofnunina sem dæmi, — sem ýtarlegastar skýrslur hefur þar um. En þeim ber þá skjdda til aS gæta þess, aS túlka þær skýrslur rétt, og kynna sér hvað á bak viS tölurnar liggur, áður en'dómur er kveðinn upp. En þai? brestur niikiö á, aS svo sé í umræddri grein. ASalinnihald hennar er þetta: Sú saga hefur gengið manna milli, að árið 1946 hafi verið svo mikið um veik- indaforföll hjá Landssímanum, að þau hafi svarað til vinnutíma 15 manna allt árið. Allmikið af veikindaforföllunum er sagt þannig til komið, að starfsmaður er fjarverandi 1—2 daga í einu, svo að or- sökina er ekki að rekja til alvarlegra veikinda, enda liggur sá grunur á, að þessi veikindi sé oft afleiðing skemmtana. Þess- ar fjarverur kosta Landssímann of fjár svo mikið, að það er ekkert launungarmál, að þau eru — ásamt reglugerð um auka- vinnuþóknun — ein helzta orsökin til hinn. ar lélegu rekstrarafkomu Landssímans, þrátt fyrir hinar miklu símgjaldatekjur. Þessar upplýsingar — segir í greininni — munu byggjast á skýrslu þingnefndar. Mér er nú ekki kunnugt um hvort þær upplýsingar, sem hér eru gefnar, eru í samræmi við fjarveruskýrslur Landssím- ans. En hitt má fullyrða, að bak við þær lig'gja staðreyndir, sem sleppt er að skýra frá. Skal bent á nokkrar þeirra. 1. Margt af starfsfólki stofnunarinnar hefur að baki sér áratuga heilsuspillandi starf og er farið að eldast. Óhjákvæmi- lega verður alltaf um meiri eða minni langvarandi veikindi að ræða í hópi ]æss. 2. Við ýms símastörf er mikil slysahætta og hafa oft orðið slys, sem valda löng- um fjarverum. *27 3. Símaþjónusta er talin mjög heilsuspill- andi starf. Við það bætist svo, að á stríðsárunum og fram á síðasta ár hef- ur verið lögð meiri vinna á hvern ein- stakling, en forsvaranlegt er. Afleiö- ingarnar hafa orðið ofþreyta og veik- indi. Má vera að það mál verði rætt ítarlegar hér í blaðinu síðar. Árið 1946 var svo mikið um langvar- andi veikindi nokkurra einstaklinga, að þar í er að finna megin hlutann af veik- indadögum starfsfólksins, en ekki í 1—2ja daga veikindum, eins og greinar- höf. vill vera láta. Af 330—340 starfsm. við símann í Reykjavík voru t. d. 9 starfsmenn svo lengi veikir að það svar. aði til ársfjarveru 5^2 manns. 4. Þá ber á það að líta, þegar lagður er dómur á veikindafjarverur símafólksins, að sá undarlegi háttur liefur verið hafð. ur á um skráningu veikindadaga, að þar í eru taldir fjöldi frídaga. Er órannsak- að mál hve miklu þeir nema. En það verður á þann hátt, að allir frídagar, sem fylgja á eftir veikindadegi eru tald- ir til veikindadaga, þó viðkomandi starfsmaður rnæti til vinnu strax er hon- um ber að frídögum loknum. Þannig, getur 1 veikindadagur valdið því, að skráðir séu allt að 6 veikindadagar hjá viðkomandi starfsmanni. ' Ef greinarhöf. hefði kynnt sér þessar staðreyndir og fleiri, sem öllum ættu að vera augljósar, hefði honum væntan. lega skilizt, að við slíka stofnun sem Landssímann, verða veikindaforföll jafnan fniklu fleiri en við flestar aðrar stofnanir, og að til þess lig'gja eðlilegar orsakir. —- Það þarf ekki að vera um nein vinnúsvik að ræða, jafnvel ekki þó mikið væri um ,, 1——2 daga veikindi“. —o—*- Iíöf. umræddrar greinar telur það ekkert launungarmál, að þessi veikinda-faraldur sé ein aðalorsök hinnar lélegu rekstraraf- komu Landssímans. Símablaðið hefur ekki hingað til lagt það í vana sinn að gagnrýna fjárhagslegan rekstur stofnunarinnar og mun ekki gera það að þessu sinni. En það vill fullyrða. að orsakarinnar til hinnar „lélegu rekstrar- afkoniu Landssímans" er að leita á allt

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.