Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2005, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005
Fréttir BV
Efasemdir um
réttarhöld
Eftir morðið á lögmanni
fyrrverandi varaforseta
fraks í fyrradag hafa spurn-
ingar vaknað um réttmæti
þess að haida réttarhöldin
yfir Saddam Hussein og
samstarfsmönnum hans í
írak. frakska lögreglan segir
að lögmönnum sakborn-
inga bjóðist að fá vernd
lögreglu eins og öðrum
starfsmönnum réttarins.
Réttarhöldunum var
frestað til 28. nóvember, en
búist er við að lögmennirn-
ir muni fara fram á að þau
verði færð til annars lands
vegna óöryggis þeirra.
Þrjósk Norð-
ur-Kórea
Norður-Kórea hefur sest
í fimmta sinn að samninga-
borðinu um stöðvun kjarn-
orkuáætlunar sinnar. I
þetta sinn eru viðræðurnar
haldnar í Kína. Síðast var
vonast til að eitthvað hefði
rofað til, en þær vonir urðu
nánast að engu þegar N-
Kóreumenn fóru fram á að
fá léttvatnskjarnaofn frá
Bandaríkjunum. Því var
hafnað af þeim síðar-
nefndu. Ráðamenn í Norð-
ur-Kóreu hafa hingað til
neitað alþjóðlegum eftir-
litsmönnum aðgengi að
rannsóknarstofum sínum.
Morðinqi sem
iðrast ekki
Hinn 37 ára Chai Soua
Vang var í gær dæmdur í
lífstíðarfangelsi
fyrir morð á sex
manns í Banda-
ríkjunum 21. nóv-
ember í fyrra. All-
ir hinir látnu voru
ættingjar eða vin-
ir sem voru við
veiði þegar Vang
skaut þá. Engin
iðrun var sjáanleg í fari
Vangs að máti dómara. „Ég
skil reiði ykkar, gremju og
sorg,“ sagði Vang við upp-
kvaðningu dómsins en
baðst aldrei afsökunar á
ódæðinu. í skotárásinni
særðust þrír aðrir og báru
þeir allir vitni við réttar-
höldin. Vang kom frá Laos
til Bandaríkjanna árið 1980.
Apple í
góðum gír
Þeir kalla það geisla-
baugsáhrif hjá Apple. Um
ein milljón not-
enda Windows
keypti Macin-
tosh-tölvur á
þessu ári og
þakkar Apple
það vinsældum
Ipod. Veita
Apple hefur
aukist að meðaltali um 48%
á ári síðan iPod kom á
markað. Næsti leikur Apple
verður að kynna tölvur sem
eru keyrðar áfram af Intel-
örgjörvum, þeim hinum
sömu og hafa keyrt
Windows-tölvur um árabil.
The Guardian birti í fyrradag brot úr endurminningum Sir Christophers Meyer,
fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum. Hann fer stórum orðum um
Tony Blair og starfsfólk hans. Bókin kemur út á næstunni en líkur benda til að
bókin muni valda miklum umræðum innan Bretlands svo og utan þess.
Alastair Campbell,
Blair og Meyer Sléttirá
yfirborðinu en undir
kraumar barnaskapurinn.
ipr • 1jhi 4 I
II * i | 1; Uli || | |K UáH'J ll 1
JJ- . JLLUi j 11
„Mér fannst sem Downing-stræti
10 áliti sendiráðið samkeppnisaðila í
samskiptum við Bandaríkjastjóm. Ég
fann fyrir gremjufullri vanþóknun
þeirra á þeim góðu samböndum sem
við höfðum náð við Bush-stjórnina,
samböndum sem vom gerð einungis
fyrir ríkisstjórn hennar hátignar,"
segir Meyer í endurminningunum en
umtöluðustu kaflamir fjalla um sam-
skipti Blairs við Bush og Bandaríkja-
stjóm.
Mátti ekki koma í mat
„20. september 2001 kom Tony
Blair til New York til að vera viðstadd-
ur minningarathöfn fyrir þá sem lét-
ust í árásunum 11. september. Eftir
það átti hann að fljúga strax tif Was-
hington á neyðarfund með Bush."
Vegna tafar í öryggisleit blaða-
manna sem fylgdu Blair þurfti að af-
lýsa fundinum, en eigi að síður ætlaði
Bush að hitta Blair yfir kvöldverði síð-
ar sama dag. Ráðgjafi Blairs, Jonath-
an Powell, kom tO Meyers og sagði:
„Tony vill frekar taka Alastair [Camp-
bell, ráðgjafa] með í matinn en þig,
því miður."
Condi til bjargar
Hefði Meyer verið fjarstaddur á
þessum kvöldverði hefði hann og
sendiráðið misst allt traust Bush og
stjómar hans. „Ef þetta gerist munuð
þið skera af mér helvítis hnén allan
þann tíma sem ég á eftir hérna í Was-
hington. Er þetta það sem þið viljið?"
spurði Meyer.
Blair bar fyrir sig að Bush hefði
„Blair var sjötti for-
sætisráöherrann á
mínum ferli og ég
hafði aldrei kynnst
öðrueins."
sagt þrjá geta komið með honum í
matinn. Meyer hringdi þá í Hvíta
húsið og sagði fjóra koma með Blair.
í ljós kom að starfslið Blairs hringdi
og sagði að hann kæmi ekki. Condo-
leezza Rice kom Meyer á endanum til
bjargar og lét leggja á borð fyrir hann.
Eftir sat tilfinningin að ekki væri allt
með felldu.
„Hvar er Catherlne?"
Næsta niðurlæging Meyers kom
ári seinna í heimsókn Blairs á búgarð
Bush í Texas. Sendiráðið var ekki
með í undirbúningi heimsóknarinn-
ar en hápunktur hennar var kvöld-
verður. Eiginkona Meyers var ekki á
gestalistanum.
„Hvar er Catherine?," spurði
Laura Bush sendiherrann.
„Ég held að henni hafi ekki verið
boðið," svaraði Meyer skömmustu-
legur.
„Nú? Enginn ráðfærði sig við okk-
ur. Við hefðum viljað hafa hana hér,"
sagði Laura. Eiginmaður hennar Ge-
orge Bush tók í sama streng við
sendiherrann.
Starfslið Blairs laug því að Meyer
að konan hans væri ekki á gestalista
Bush-hjónanna.
Laura og Cherie Starfsliö Blairs kom i
veg fyrir að eiginkona Meyers kæmi með i
matarboð og hitti leiðtogafrúrnar.
Mátti ekki í hjartaaðgerð
Meyer hætti sem sendiherra í
febrúar 2003. Hann samþykkti að
starfa 18 mánuðum lengur vegna
arftaka síns, Davids Manning, sem
gat ekki tekið við embættinu fyrr en
þá. Meyer hafði þá greinst með
hjartatruflanir og vildu bandarisku
læknarnir ólmir skera hann upp
vegna þess.
Utanríkisráðuneyti Breta var ekki
á sama máli og bar meðal annars við
peningaleysi og sagði bandaríska
lækna vera of ákafa. Þegar Meyer
kom heim til Bretlands og lagðist
undir hnífinn hjá breskum læknum
kom í ljós að loka í hjartanu var svo
illa farin að það þurfti að skipta
henni út. Hann komst að þeirri nið-
urstöðu að læknarnir vestanhafs
höfðu haft rétt fyrir sér og Bretarnir
ekki.
Því miður var það ekki það eina
sem hann hafði upp á Breta að
klaga. Menn þarlendis bíða spenntir
eftir útgáfu bókarinnar.
haraldur@dv.is
Blair og Bush Meyerlýsirþví
hvernig starfslið Blair reyndi í sífellu
að koma i veg fyrir samskipti hans
við Bush og Bandaríkjastjórn.
Nærri sólarhring á lofti án millilendingar
Forsætisráðherra lofar 2.000 milljörðum
Beintflugfrá Hong Kong
til London
Boeing hyggst slá met í dag þegar
777-flugvél þeirra lendir í London
um klukkan 13.30 eftir 23 klukku-
stunda flug frá Hong Kong.
„Flugáætlunin gerir ráð fyrir að
við setjum met sem er töluvert ofar
en núverandi met,“ segir Suzanna
Darcy-Hennemann flugstjóri. Hún
og yfirflugstjóri Boeing tóku á loft frá
Hong Kong í gær. Boeing eiga nú
þegar nokkur met, þar á meðal í
vegalengd en þá var það 747-gerðin
sem flaug 17.039 kílómetra frá
London til Sydney. Nú ætlar fyrir-
tækið að slá eigið met og fljúga rúm-
lega 20.300 km.
Flugvélar af þessari tegund og
gerð munu geta tekið 301 farþega og
farangur þeirra rúmlega 17.000 kíló-
metra. Lengsta flugleið Icelandair
núna er til San
Francisco í um
6.744 km fjar-
lægð frá Keflavík.
Suzanna Darcy-
Hennemann Flug-
stjóri sem vonast til
að slá heimsmet.
Heimsmetabók Guinness mun
fylgjast með fluginu og fulltrúar
hennar vera viðstaddir lendingu
vélarinnar í dag. Alls hafa 42 flugfé-
lög pantað meira en 700 eintök af
777. Nýlega pantaði Avion Group
fjórar flugvélar af þessari tegund til
fraktflugs.
Nýja franska byltingin
Dominique de Villepin, forsætis-
ráðherra Frakklands, hefur lofað 30
milljörðum evra, um 2.000 milljörð-
um króna, til úrbóta í félagsmálum í
Frakklandi. Fjármunirnir verða að-
allega notaðir í úrbætur hjá ungu
fólki í Frakklandi - þeim hópi sem
bytjaði óeirðirnar. Hann tilkynnti á
sama tíma um róttækar aðgerðir
stjórnvalda til að enda ofbeldi það
sem viðgengist hefur í landinu und-
anfarnar tvær vikur.
Umbæturnar eru miðaðar að því
að skapa jafnrétti og atvinnu til
handa 1,5 milljónum manna sem
eiga við erfiðleika að stríða sökum
stéttaskiptingar. Atvinnuleysi er um
10% á landsvísu í Frakklandi, en í
þeim hverfum sem uppþotin .urðu
hvað mest nær það 40%. Stór hluti
þess unga fólks sem byrjaði óeirð-
irnar hefur aldrei átt útivinnandi
foreldra. Atvinnuleysið hefur þannig
Dominique de Villepin
Forsætisráöherrann ásamt Azouz Begag,
ráðherra jafnréttismála.
gengið í erfðir vegna illra möguleika
þessa hóps að komast í atvinnu.
Útgöngubann og rýmri heimildir
lögreglu til að hemja óeirðirnar virð-
ast hafa tilætluð áhrif. Einungis var
kveikt í um 600 bílum í Frakklandi í
gærnótt, lækkun um helming frá því
þegar mest var.