Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2005, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 Sport DV Kristján ákveðursigí vikunni Kristján Valdi- marsson, vamar- maður úr Fylki, mun ákveða sig nú í vik- unni með hvaða liði hann ætlar að spila næsta sumar. Krist- ján hefur alian sinn feril leik- ið með Fylki en hann er með lausan samning eftir tímabil- ið og því frjálst að semja við önnur félög. Hann hefíir átt í viðræðum við Grindavík en sagði í samtali við DV Sport í gær að Þróttur og Fram væru enn í myndinni, sem og vit- anlega Fylkir. Hann segist ekki hafa útilokað neitt af þeim félögum enn sem kom- ið er en sagðist vilja ganga frá þessum málum sem allra fyrst. Hannover96 rekur þjálfar- ann Þýska úrvals- deildarhðið Hannover 96, eitt af þeim liðum sem er orðað við Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ákvað í gær að segja upp þjálfara liðsins, Ewald Liene. Hann var alls í 20 mánuði í starfi og skilaði liðinu í 10. sæti á síðustu leiktíð. Hann er þriðji þjálfarinn sem fær að fjúka í þýsku úrvalsdeild- inni en fyrir höfðu þeir Wolf- gang Wolf hjá Niimberg og Klaus Augenthaler hjá Bayer Leverkusen verið reknir frá sínum störfum. Jörg Sievers hefur tekið við starfi þjálfara Hannover 96 tímabundið. Fimm tilnefnd- iríAfríku Knattspymusamband Affíku tifnefndi á dögunum fimm knattspymumenn sem koma til greina í kjöri knattspymu- manns ársins í Afr- íku. Það em þeir Samuel Eto’o (Kamerún, Barcelona), Michael Essien (Gana, Chel- sea), Didier Drogba (Fila- beinsströndin, Chelsea), Emmanuel Adebayor (Tógó, Mónakó), Marouane Cham- ackh (Marokkó, Bordeaux). Tifkynnt verður um valið í Nígeríu í janúar næstkom- andi. Tysonvar gesturhjá Maradona Diego Maradona kvaddi sjónvarpsáhorfendur á þriðju- dagskvöldið en þá lauk þrett- án þátta syrpu hans af spjail- þættinum „Kvöld með númer 10". f síðasta þættinum fékk hann margar stórstjömur í þáttinn og ber þar hæst að nefna hnefaleikakappann Mike Tyson. Enrique Iglesias tók einnig lagið. Hann hefur fengið marga góða gesti í þátt- inn, til að mynda Pele, Fidel Castro, Anatoli Karpov, Juan Sebastian Veron og Femando Redondo. Handhafi WBC-heimsmeistaratitilsins í hnefaleikum í þungavigtarflokki, Úkraínu- maðurinn Vitali Klitschko, tilkynnti í gær að hann neyddist til að leggja hanskana á hilluna vegna meiðsla. Það hefur lengi staðið til að hann myndi berjast við Bandaríkjamanninn Hasim Rahman en Klitschko hefur margoft þurft að fresta bar- daganum vegna þrálátra meiðsla í hné. Úkraínumaðurinn Vitali Klitschko sem almennt er talinn besti þungavigtarboxari heims er hætt- ur. Þetta tilkynnti hann í gær og kom hnefaleika- heiminum talsvert á óvart en ástæða þess að hann hættir nú eru þrálát meiðsli í hné. „Ég vil hætta á toppnum," sagði Klitschko. „Það er mjög erfitt að taka þessa ákvörðun," sagði Klitschko sem er 34 ára gamall. „En ég vil hætta á toppnum og hleypa öðr- um að." Klitschko þurfti enn og aftur að fresta titilvörn sinni gegn Bandaríkjamannin- um Hasim Rahman í síð- ustu eftir að hann tognaði á vöðva í hægra hné á æfingu í síðustu viku. Þurfti hann að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna og sér fram á að ná sér aldrei almennilega aft- ur. Klitschko hefur mátt sæta mikillar gagnrýni fyrir sífelld- um frestunum sínum á að berjast við Rahman og hafa þekktir þjálfarar á borð við Teddy Atlas vakið upp efa- semdir um ásetning hans og metnað. En það er ljóst að meiðsli hans eru mun alvar- legri en menn gerðu sér grein fyrir í fyrstu. „Undanfarið hafa meiðslin mín angrað mig meira en and- stæðingar mínir í hringnum," sagði Klitschko. „Ég vil þakka mínu keppnisliði, fjölmiðlum og aðdáendum fyrir samvinnu þeirra og stuðning. Ég ætla nú að beita mér fyrir félagslegum og pólitísk- um breytingum f heimalandi mínu, Úkraínu." Það er erfitt að festa hendur á arfleið Klitschko en hann á vissu- lega traustan feril að baki. Hann hefur unnið 35 af 37 bardögum sínum og af sigrum sínum hafa 34 komið eftir að hafa veitt andstæð- ingi sínum rothögg. En stöðug barátta hans við meiðsli gerði það að verkum að margir telja að hann hafi aldrei náð að njóta sín að fullu. Hann vann WBO-heimsmeist- „Ég vil þakka mínu keppnisliði, fjölmiðlum og aðdáendum fýrir samvinmíþeirra og stuðning. Ég ætla nú að beita mér fyrir félags- legum og pólitískum breytingum í heimalandi mínu, Úkraínu. Haettur Úkrainumaðurinn Vitali Klitschko hefur lagt hanskana á hilluna. Hér lyftir hann heims- meistarabelti WBO-sambandsins eftir að hafa unnið Jameel McCline ÍLas Vegas í desember árið 2002. Nordic Photos/Getty aratitilinn í þungavigt eftir að hafa slegið Herbie Hide í rot í annarri lotu. Hann var svo gagnrýndur fyrir að hætta í miðjum bar- daga gegn Chris Byrd sem hann sagði að hafði verið vegna meiðsla í öxl. Hann var þó með fleiri stig en and- stæðingur sinn þegar hann dró sig til hlés. Eina tapið hans var fyrir Bretanum Lennox Lewis en sá bardagi var einkar jafn og spennu- þrunginn. Klitschko var með fleiri stig en Lewis þegar að dómari bardagans stöðvaði hann vegna sára Klitschko. Lewis hætti og Klitschko vann WBO-titilinn en lengra komst hann ekki, þrátt fyrir að vera talinn alger yfir- burðamaður í greininni. Til stóð að bardagi Klitschko og Rahman yrði háður á laugar- daginn kemur. Hnefaleikaheimurinn mun þó áfram fylgjast vel með Klitschko nafninu en yngri bróðir Vitali, Wladimir, er einnig keppandi í þungavigt. Hann var handhafi WBO-titilsins en tapaði honum árið 2003 þegar hann tapaði fyrir Suður-Afríku- manninum Corrie Sanders. Hann vann þó mikilvægan bar- daga í september þegar hann bar sigurorð af „Nígerísku martröð- inni", Samuel Peter, þrátt fyrir að hafa verið sleginn þrívegis í gólf- ið. Hann varð þar með sjálfkrafa næsti andstæðingur Chris Byrd, handhafa IBF-titilsins í þunga- vigt, í titilvörn hans. Wladimir er sem stendur í þriðja sæti styrk- leikalista þungavigtarkappa í heiminum. eirikurst@dv.is Prinsinn, Naseem Hamed, er ekki dauður úr öllum æðum PRINSINN SNÝR AFTUR ÁRIÐ Á NÆSTA ÁRI Naseem Hamed, ein skærasta stjarna hnefaleikanna síðustu ára, ekki síst hér á landi, hefur tilkynnt að hann ætíi sér að snúa aftur í hringinn um mitt næsta ár. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem Hamed hefur tUkynnt endurkomu sína en hann segir að honum hafi verið boðinn samningur upp á sex bardaga af bandarískri sjónvarps- stöð. Hamed, sem er betur þekktur einfaldlega sem Prinsinn, er 31 árs gamall og hefur aðeins tapað einum bardaga á ferlinum af þeim 37 sem hann hefur háð. Það var fýrir Marco Antonio Barrera í apríl 2001. Talið er að hann hafi á sínum tíma þénað meira en þrjá milljarða á hnefaleika- ferli sínum en hann hefur ekki barist síðan í maí árið 2002. Hann ætti því ekki að vera á flæðiskeri staddur en af orðum hans að dæma virðist hann einfaldlega sakna þess að vera í hringiðunni. „Ég hef virkilega sakn- að þess að berjast," sagði hann í samtali við útvarpsstöð breska ríkis- útvarpsins í Sheffield, heimabæ sín- um. „Ég hef stundað hnefaleika í langan tíma og held að ég sé ekki slakur hnefaleikamaður. En að sama skapi held ég að hnefaleikarnir hafa saknað mín og það er kominn tími til að snúa aftur." Hann segir ekki enn ljóst við hverja hann muni berjast en vonast til að fyrsti bardaginn verði á fyrri hluta ársins. „Það er að segja ef allt gengur að óskum í æfingum." eirikurst@dv.is Prinsinn Naseem Hamed, beturþekktur sem Prinsinn, lemur hér á Manuel Calvo I bardaga þeirra um IBO-titilinn ífjaðurvigt í Lundúnum áriö 2002. Prinsinn vann en hefur ekki barist siðan. Nordic Photos/Getty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.