Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
Sálin DV
^ I M^M M M ,
Björn Harðarson og Eygló Guðmundsdóttir eru
sérfræðingar DVI málefnum sálarinnar. Þú getur
sent þeim bréfá kaerisaii@dv.is
Einmanaleikinn í genunum
Vísindamenn
Hollandi og í háskóla í
Chicago telja að 48%
þeirra sem finna fyrir
einmanaleika séu ein-
mana vegna genanna.
Hinir séu einmana vegna
félagslegra aðstæðna. Vís-
indamennimir rannsökuðu
8.387 einstaklinga í tvíburarann
sóknum. Eineggja tvíburar og bræð
ur voru spurðir hvort þeir
fyndu fyrir einmanaleika,
hvort þeir vildu vera ein-
ir og hvort þeim fyndist
sem enginn elskaði þá.
35% karlamannanna
sögðust afar einmana og
50% kvennanna. Vísinda-
mennimir segja mun minni
mun á milli systkinanna ef um tví-
bura var að ræða.
Náðu stjórn á
skapinu
með réttri
hreyfingu
Ertu í fýlu?
Þegar þú ert í fúlu skapi skaltu
hreyfa þig. Mokaðu snjóinn eða
gerðu þér leið í búðina gangandi
og brúnin á þér lyftist.
Hefurðu allt á hornum þér?
Eins freistandi og það er þá
skaltu ekki mæta í kildcbox-tíma
þegar þú ert reið/ur. Þú getur
nefrtilega ekki barið reiðina í
burtu. Reyndu frekar að beina
sjónum þínum frá reiðinni. Próf-
aðu eitthvað nýtt, farðu í jóga eða
lærðu nýja íþrótt.
Leiðist þér?
Þér hættir að leiðast um leið og
þú umgengst fólk. Enn betra er að
æfa íþróttir með öðru fólki. Próf-
aðu golf eða tennis. Gakktu í
gönguhóp.
Er stressið að fara með þig?
Þegar heili þinn er að fara yfir
um þarftu á einhverju að halda
sem róar þig niður. Farðu í sund
eða göngutúr úti í náttúmnni og
þú munt finna frið.
Þunglyndur
en ótnúlega
ijp. inn ó
Hæ sálfræðingur
Mig langar til að spyrja um
það sem ég held að heiti
„mania depressive" þar
sem einstaklingurinn
verður bæði mjög þung-
lyndur og ótrúlega glaður
eins og hann sé á ein-
hveiju, sefur lítið og er að
gera ótrúlegustu hluti?
Takk fyrir hjálpina.
Sæfl
Tvískautaröskun (Maniac-
Depression) einkennist af því að ein-
staklingurinn sem greindur er með
þetta vandamál upplifir bæði tímabil
oflætis (maniu) og þunglyndis. Oflæti
lýsir sér yfirleitt þannig að þróttur ein-
staklingsins eykst svo um munar,
hann/hún þarf minni og minni svefri,
verður uppfullur af hugmyndum og
verður ólmur í að framkvæma sem
flestar. Hugurinn fer á mikið flug og
erfitt er fyrir okkur hin að fylgja eftir
einstaklingi þegar hann er í/með of-
læti. Allt tal verður auk þess svo hratt
og mikið að enginn annar kemst að.
Hvatvísi og mikil virkni er greinileg,
einstaklingurinn fær „mikilmennsku-
hugmyndir" um sjálfan sig, telur sig
geta framkvæmt nánast allt og ekkert
er honum/henni ofaukið eða óyfirstíg-
anlegt. Sjálfstraustíð eykst, sem oft
endar með þvf að einstaklingnum
finnst hann vera hafinn yfir flesta aðra.
MMvægt er að átta sig á að þrátt fyrir
að við viljum mörg sofa minna og fá
meira sjálfstraust þróast þessi ein-
kenni hjá einstaklingi í/með oflæti út í
stjómleysi. Einstaklingurinn fer frá því
að hrifa fólk með sér yfir í að geta ekki
stjómað hegðun sinni og samskiptin
fara oft að einkennast af yfirgangi, pirr-
ingi og miklum kröfum. Einstaklingur-
inn hrindir mörgum misgóðum hug-
myndum í framkvæmd og kemur sér
oft í miklar skuidir þess vegna. Einstak-
lingurinn missir dómgreind til þess að
stoppa sig af og leitar í hegðun sem
veitír ánægju, án þess að velta fyrir sér
neikvæðum afleiðingum. Þetta tímabil
leggst líka oft þungt á fjölskyldur og er
skilnaðam'ðni frekar há hjá fólki sem
þjáist af tvískautaröskun.
Léleg sjálfsmynd, samviskubit
og aukin svefnþörf
Á tímabili þunglyndis verða ein-
kennin andstæða þess sem lýst er hér
að ofan. Einstaklingurinn upplifir
mikið vonleysi, það hægist á allri
hugsun, stöðugar áhyggjur, léleg
sjálfsmynd, samviskubit, þreyta og
aukin svefnþörf. Það dregur úr allri
virkni, og félagslyndið verður h'tíð sem
ekkert, auk þess sem matarlyst og
áhugi á kynlífi minnkar. Einkennin og
sveiflur í skapi eru mismunandi á milli
fólks með þessa röskun og hefur grein-
ingu hennar verið skipt í undirflokka.
Mest áberandi er tvískautaröskun I,
sem einkennist af oflætiseinkennum,
ásamt þunglyndistímabih sem sam-
svarar greiningarviðmiðum alvarlegs
þunglyndis. Hér getur verið um að
ræða allt frá einu tímabili oflætis yfir
ævina yfir í mjög mörg, algengast þó
um 7-15 tilfelli. Annar undirflokkur
tvískautaröskunar er hverflyndi, þar
sem skapsveiflumar ná samfellt yfir
minnst tveggja ára tímabil, bæði með
oflæti og þunglyndi, án þess að ná
greiningarviðmiðum oflætis eða alvar-
legs þunglyndis. Auk þess er um að
ræða tvískautaröskun II, sem ein-
kennist af mun vægari oflætistímabil-
um (hypomania) og oft meira um
þunglyndi. Margir halda því ffarn að
hér sé um töluvert annað vandamál að
ræða, áherslur í sálfræðilegri meðferð
eru aðrar en hjá einstaklingum með
tvískautaröskun I. Einstaklingar með
tvískautaröskun II ná líka mun frekar
að halda félagslegri virkni sem og
atvinnu, og þurfa mun sjaldnar að
leggjast inn á sjúkrahús.
Það meðferðarform sem mest er
notað við tvískautaröskun er lyfja-
meðferð og þá sérstaklega lyfið ht-
hium. MMvægt er þó að hafa í huga
að hlúa vel að allri fjölskyldunni, bæði
með fræðslu, stuðningi og meðferð.
MMvægt er einnig að leggja meiri
áherslu á sálfræðilega meðferð jafn-
hliða lyfjameðferð, ekki síður fyrir þá
sem greinast með tvískautaröskun II.
Gangi þér veL
BjömHaröarson
sálfræöingui
Stress og álag eru vandamál nútímasamfélagsins. Taktu upp nýjan lífsstíl svo þú
getir slakað á það sem eftir er ævinnar.
BREYTTU UM LIFSTIL
Gakktu meðvituð
Ganga er frábær hreyfing en
það er ekki nóg aö strunsa
sama hringinn á hverjum
degi. Gefðu þér tima tii að
taka eftir öllu I kringum þig,
líkama þínum, dýrunum og
fólkinu sem veröur á vegl
þínum.
Vatið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og sötuaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Tengstu líkama þínum
(nútímasamfélaginu höfum
við misst eiginleikann til að
tengjast líkama okkar. Það er
erfitt að slaka af ef líkamsrækt-
in sem þú stundar veldur þér
verkjum eða þú eyðir allri
orkunni (ræktinni við að
öfundast út í likama annarra.
Taktu uppjóga eða ihugun og
reyndu að tengjast llkapna þínum að
nýju.
3.Taktu upp áhugaverð
ir
áhugamál
Við mannfólkið erum forvitnar verur.
Leyfðu þér að forvitnast því það ástand
gefur þér ofsalega mikið.
4. Hlustaðu eða spilaðu tón-
list
Tengingin á milli okkar mannfólksins og
tónlistar er ævagömul. Rétta tónlistin
lætur okkur liða vel.
5. Vertu úti í náttúrunni
Uffræði okkar veitir okkur þá getu að
kunna að meta fegurð náttúrunnar. Við
erum partur af náttúrunni og náttúran
er okkar upprunalega heimili, ekki borg-
irnar. Rannsóknir sýna að það eitt að
setja blóm í skrifstofuna þína veitir
slökun og róar þig niður. Börn sem fá að
leika sér í úti (náttúrunni
munu síður greinast ofvirk.
Þú getur einnig fengið þér
gæludýr því nærvera þess
lækkar blóðþrýstinginn.
6. fhugaðu
Kannski er ástæðan fyrir
vinsældum íhugunar sú að
hún tengist eðlilegri svör-
un okkar við hættu. Þegar
við upplifum hættulegar aðstæður
flýjum við, berjumst eða frjósum. Með
því að frjósa (standa kyrr) förum við I
algjöra slökun. Vitundin um hættuna er
horfm og þú ert (rauninni „fyrir utan lík-
amann". Við íhugun notum við þann
hluta heilans sem lætur okkur fjarðlægj-
ast hættuna sem felst i stressi.
7. Finndu þér list viö þína hæfi
Listin er eins og tónlistin, í genum okkar.
Þegar við gleymum okkur (að mála
mynd gleymum við öllum áhyggjum
heimslns.
8. Tengstu því guðdómlega
Við erum öll tengd andlegri viðleitni. Við
höfum þörf til að trúa á eitt-
hvað stærra en sjálf okkur. Því
meiri tíma sem við gefum
okkur í trúna því rólegri verð-
um við.
9. Hittu vini þína
Umfram allt erum við félags-
verur. Fjöldi rannsókna hefur
sýnt að við erum upp á okkar
besta ef við eigum góða og
trausta vini.