Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2005, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005
Sport dv
Skppsveitlur þjálfarans
,4i7uji b]ifigvhifionstjþ.ir Haijka
SlelpiiliHli hotclþuifi aflþiufci
uó'gini\ú vÍBýiúi: vandmriolw
fh.li <t i\wdal i‘ru ikúpivelflm i
þjiilfi\iútiniiti. Héi l.iiuir Áqf/M
vél l iéi hcyia (i hekknuin.
Hið unga lið Hauka tók fyrst allra íslenskra kvennakörfu-
boltaliða þátt í Evrópukeppninni í vetur. Liðið tapaði öllum sex
leikjum sínum fyrir spænsku, frönsku og ítölsku liði, fyrstu fimm
með 40 stigum eða meira en þeim síðasta.með 22 stigum gegn
ítalska liðinu Ribera sem hrósaði síðan sigri í riðlinum. Síðan lið-
ið spilaði sinn fyrsta Evrópuleik 20. október eru Haukastelpurn-
ar hins vegar taplausar hér heima og hafa ekki látið marga leiki
og löng ferðlög hafa áhrif á gengið. DV heyrði í þjálfara liðsins,
Ágústi Björgvinssyni.
„Það hefur vissulega orðið
spennufall í liðinu eftir Evrópu-
keppnina en um leið er þetta
ákveðinn léttir að þetta sé búið.
Þótt að árangurinn hafi oft verið
ágætur hafa úrslitin ekki verið okk-
ur hagstæð. Það er náttúrulega
mjög orkufrekt að vera að leggja
svona mikið í hlutina þegar úrslitin
verða síðan ekki betri. Eg er samt
mjög ánægður með árangur liðsins
í þessari Evrópukeppni og þá ekki
síst með seinasta leikinn," segir
Ágúst en Haukar náðu mest fimm
stiga forskoti í öðrum leikhluta gegn
ítalska liðinu Ribera og það var jafnt
í hálfleik, 34-34.
Inni í leiknum allan tímann
„Við vorum tíu stigum undir
þegar þrjár mínútur voru eftir og
vorum búin að vera inni í leiknum
allan tímann. Við fáum reyndar á
okkur 17-0 sprett en komum til
baka eftir það sem er eitthvað sem
við höfum ekki gert mikið í Evr-
ópukeppninni. Það var alveg frá-
bært að sjá það að við getum kom-
ið til baka gegn svona sterkum lið-
um," sagði Ágúst sem er spenntur
að sjá hvernig liðum gengur í fram-
haldinu en öll þrjú liðin í riðli
Hauka fóru áfram í 32 liða úrslitin.
„Það verður mjög spennandi, ég
býst samt við því að franska liðið
fari lengst."
Fullt af hraðahindrunum
„Það hefur verið fullt af hraða-
hindrunum hjá okkur í keppninni
og það hafa komið upp erfiðar að-
stæður. Þegar á heildina er litið
hafa þessar aðstæður bara þjappað
hópnum saman og liðskjarninn er
orðinn miklu sterkari en hann var.
Missti stjórn á skapi sínu
18.00 íþróttaspjallið á
son fjallar um öll heitustu
málefnin í íþróttahreyf-
ingunni á hverjum degi.
1812 Sportið á Sýn.
19.00 Upphitun fýrir
meistaradeildina með
Guðna Bergs á Sýn.
Agúst Björgvinsson, þjálfari
Hauka, var rekinn út úr húsi í sigri
Hauka á Grindavík á sunnudaginn
og er á leiðinni í bann. Ágúst segir
nokkrar ástæður fyrir því af hverju
hann missti stjórn á skapi sínu en
það gerðist í stöðunni 61-61 er
fimm mínútur voru eftir af leikn-
um. „Mér fannst liðið mitt
ekki vera að spila eins vel
og það á að vera að gera.
Ég var pirraður yfir því.
Síðan fannst mér dómarar
leiksins ekki alveg ráða við
leikinn og það komu þarna
nokkur flaut í röð sem ég
Stelpurnar þekkjast orðið betur og
þær hafa þurft að glíma við ýmis
vandamál, skapsveiflur í þjálfararn-
um og líka skapsveiflur innan liðs-
ins. Mér finnst að við höfum komið
heil og góð út úr þvf," segir Ágúst.
„Það sást kannski mjög í undanúr-
slitaleiknum í Powerade-bikarnum
gegn Grindavík þegar við lendum
21 stigi undir. Að sjá hvernig lið,
sem er ekki með meiri reynslu eða
hærri aldur, vinnur sig út úr þeirri
stöðu er stórkostlegt. Það sýndi að
það er frábær karakter í liðinu og ég
er viss um að Evrópukeppnin hefur
hjálpað þar mikið til."
Alltof fá lið að sinna
kvennakörfunni
„Við erum rosalega langt á eftir
með kvennakörfuna. Fyrst og
fremst eru það alltof fá lið hérna
heima sem eru að sinna
4 var ekki sáttur við. Ég æsi
mig yfir einum dómnum
< við annan dómarann og fæ
strax tæknivillu án þess að
hafa fengið einhverja áminn-
ingu og strax í kjölfarið af því
hleypur hinn dómarinn að
hendir mér út úr húsi.
g get ekki sagt að ég hafi
erið ánægður með það
og gekk nokkuð rösklega
úr húsinu," segir
kvennakörfunni vel. Við eigum tals-
vert í land miðað við strákana en
það eru samt bjartari tímar
framundan því það eru fleiri efni-
legar stelpur en voru og breiddin er
að aukast," segir Ágúst um stöðu
kvennakörfunnar hér heima. En nú
stefna Haukastelpurnar á að vinna
titlana hér heima.
„Við tökum bara einn leik og
eina keppni fýrir í einu og ætlum að
byrja á því að vinna leikinn á mið-
vikudaginn þar sem við getum með
sigri setið á toppnum yfir jólafríið.
Ef við vinnum þann leik erum við í
toppmálum og það væri frábær ár-
angur miðað við allt álagið á lið-
inu,“ segirÁgúst en úrslitaleikurinn
í Powerade-bikarnum fer fram á
laugardaginn en Keflavík og Hauk-
ar hita upp í deildinni á miðviku-
daginn.
ooj@dv.is
Ágúst þegar hann var beðinn að
lýsa atburðunum í Röstinni en á
leið sinni til búningsklefa sparkaði
hann í stól sem fór í einn leikmann
Grindavíkurliðsins. „Mér fannst
þetta mjög ósanngjarnt og þetta
voru bara mín viðbrögð við þvl.
Stóllinn átti ekkert að fara þangað
sem hann fór en hann meiddi sem
betur fer engan," segir hinn skap-
stóri þjálfari Hauka, Ágúst Björg-
vinsson.
19.15 Fram-Fylkir í 8
liða úrslitum SS-bikar
ss I karla í handbolta
19.30 Chelsea-Liverpool í
meistaradeild Evrópu á
Sýn.
-y,, 19.45 AC Milan-Schalke
1 meistaradeild Evrópu á
SýnExtra.
20.00 HK-Haukar í 8 liða
úrslitum SS-bikar karla í
,ss | handbolta
21.40 Meistaradeildar-
ShUTl mörkin með Guðna
BergsáSýn.
Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum SS-bikars karla í handbolta í kvöld
Á von á rosalegum átökum í kvöld
DV fékk Gunnar Magnússon,
þjálfara sameiginlegs liðs Víkings og
Fjölnis, til þess að spá í leiki kvölds-
ins í átta liða úrslitum SS-bikars
karla. Þetta eru annars vegar leikur
HK og Hauka í Digranesi sem hefst
klukkan 20.00 og leikur Fram og
Fylkis sem hefst í Framhúsinu í Safa-
mýri klukkan 19.15.
„Ég spái hörkuleik í Safamýri og
þetta verður mjög jafnt. Ekki
skemmir það heldur fyrir að það er
fullt af gömlum Frömurum í Fylki.
Leikur liðanna í deildinni var mjög
skemmtilegur og ég á von á rosaleg-
um átökum. Ég held að markvarslan
skipti mestu máli í þessum leik.
Hlynur Morthens hefur verið að
verja mjög vel hjá Fylki og Fylkis-
menn eru að spila mjög góða vörn.
Ég tel því að það skipti miklu máli
fyrir Fram að Petkevicius nái sér á
strik í markinu. Framarnir hafa verið
að spila virkilega sannfærandi í vet-
ur, þeir hafa haldið áfram að vinna
þessa leiki á síðustu sekúndunum
og ég spái því að þeir vinni þennan
leik með einu marki," segir Gunnar
um leik Fram og Fylkis í Safamýrinni
í kvöld. En hvað um hinn leikinn?
„Bæði þessi lið eru vel mönnuð
en hafa verið í vandræðum í vetur,
þá sérstaklega Haukarnir í síðustu
leikjum. Það er eins og það hafi orð-
ið hálfgert spennufall hjá þeim eftir
Meistaradeildina og þeir unnu bæði
okkur (Víking/Fjölni) og Selfoss með
naumindum og lágu svo í Mosfells-
bænum. HK-liðið hefur verið
ströggli í vetur en hefur verið að
koma upp í síðustu leikjum.
Það er því spurning hvort
liðið nái að rífa sig upp.
IIK hefur valdið mér von-
brigðum í vetur og ég hef
meiri trú á því að Haukarnir
taki þetta. Ég held að Haukaliðið fari
að rífa sig upp, þó svo að þeir
hafi fengið nokkrar viðvaranir
í síðustu leikjum þá hafi tapið
gegn Aftureldingu verið skell-
urinn sem þeir þurftu til þess
að vakna. Eg held að þeir rífi
sig upp og klári þetta," segir
Gunnar um viðureign HK og
Hauka í Digranesi í kvöld.
'**«*« o
Spáir í leiki kvöldsins
Gunnar Magnússon,
þjálfari sameiginlegs liðs
Víkings og Fjölnis, hefur
trú á Fram og Haukum i
kvöld.
DV-mynd SigurðurJökull