Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006
Fréttír DV
Nýr ritstjóri
Blaðsins
ófundinn
„Það verður gert en ekk-
ert er fyrirliggjandi á þessu
stigi," segir Sigurður G.
Guðjónsson lögmaður og
einn eigenda Blaðsins. Sú
saga gengur nú um borg og
bý að nú sé búið að ákveða
hver mun taka við ritstjórn-
artaumum Blaðsins. Það
var gefið út á sínum tíma,
þegar Blaðið hóf göngu
sína, að Karl Garðarsson
ætlaði ekki að sitja lengi á
ritstjórastóli en hann er
einn eigenda. Sigurður seg-
ir þetta kjaftasögu því ekk-
ert hafi verið ákveðið í
þeim efnum.
Þöglar myndir
á Djúpavogi
íbúar á Djúpavogi hafa
þurft að búa við það síðan
fytir helgi að ekkert hljóð
hefur fylgt útsendingum á
Stöð 2. Þetta kemur fram á
vefsetri Djúpavogshrepps:
„Áskrifendur Stöðvar 2 hafa
væntanlega tekið eftir því að
það vantar hljóð á útsend-
ingu þess. Komið hefur í ljós
að hljóðbúnaður sem settur
var upp um daginn er bUað-
ur og þarf að fá nýjan frá
Reykjavík. En því miður
kemst þessi búnaður ekki tíl
okkar iýrr en í fyrsta lagi á
mánudag og verðum við að
þola hljóðlausa
Stöð 2 yfir helg-
ina,“ sagði á
djupivogur.is á
föstudag.
Norn Arna
til Ítalíu
JPV hefur gengið frá
samningi um ítalskan út-
gáfurétt á Tíma nornarinn-
ar eftir Árna Þórarinsson. í
desember var erlendur út-
gáfuréttur bókarinnar seld-
ur til allra Norðurlandanna
og Þýskalands fyrir hærri
íjárhæðir en dæmi er um
að greiddar séu fyrir útgáfu
á íslenskum bókum erlend-
is. í tilkynningu segir að
eftir strangar samningavið-
ræður hafi verið samið við
Gruppo editoriale Mauri
Spagnol um réttinn fyrir
umtalsverða fyrirfram-
greiðslu, væntanlega þá
hæstu sem greidd hefur
verið fyrir íslenska bók á
Italíu.
Ómar Ragnarsson fær styrk frá Akureyri upp á 1,5 milljónir króna til aö flytja korn-
myllu til þorpsins E1 Kere í Eþíópíu. Helgi Hróbjartsson, eða fljúgandi trúboðinn
eins og hann er kallaður, starfar í E1 Kere og mun aðstoða Ómar við að ferja myll-
una. Helgi ætlar að reisa kornmylluna 1 bænum með aðstoð bæjarbúa.
flmar og fljúgandi trúboði
moo koromylln til Eþiopio
„Þetta er krossferð í jákvæðum skilningi," segir Ómar Ragnars-
son sjðnvarpsmaður hlæjandi en hann fékk styrk frá Akureyri
upp á 1,5 milljónir til þess að flytja kornmyllu til smáþorpsins E1
Kere í Eþíópíu í mars. Ómar mun fara þangað ásamt trúboðan-
um Helga Hróbjartssyni og taka upp endinn á heimildarmynd
sem hann er að gera um þennan afskekkta bæ í Afríku sem tæp-
lega níu hundruð manns búa í.
„Það lá beinast við að fá styrk ffá
Akureyri," segir Ómar Ragnarsson
um styrkinn sem hann hlaut frá
Akureyri, bænum sem einmitt sé
kenndur við akuryrkju og sé annar af
tveimur bæjum sem tengjast sltkri
starfsemi á Islandi.
Ómar segir að hann sé í raun að
aðstoða Helga Hróbjartsson trú-
boða við að koma myllunni á
áfangastað en Ómar hefur unnið að
heimildarmynd um þennan litla bæ
og störf Helga.
Trúboðinn fljúgandi
„Ég fór að gera heimildarmynd
um Helga, eða fljúgandi trúboðann,
sem kemur næst á eftir Allah í aug-
um þorpsbúanna," segir Ómar sem
hefur fylgst með störfum Helga í
bænum þar sem hann flýgur á
gömlu vélinni hans Ómars, Frú
númer 4.
Ómar kallar Helga „Engilinn af
himnum" og segir að hann hafi unn-
ið ótrúlegt starf í þessu litla þorpi.
Hann segir að Helgi hafi séð að
kornmylla hafi bókstaflega bjargað
bæjarbúum í öðrum afskekktum
smábæ því það þýddi að fólkið
„Ég fér að gem heim-;
ildarmynd um Helga,
eða fífúgandi trúboð-
mmr sem kemur næst
á eftirPdfúh íúugum
þorpsbúartna.If
þurfti ekki að þreskja kornið í hönd-
unum - slíkt geti skilið á miíli iífs og
dauða í Eþíópíu.
Dauðinn daglegt brauð
„Það er tvö og hálft ár síðan ég
kom síðast en ég veit að
Ómar Ragnarsson
Flýgur með kornmyllu
til £/ Kere í Eþíópíu.
Kristján Þór Julíusson Akureyri er orðin
vinabær Ei Kere.
ntylluna saman.
,.,'\kure\TÍng-
BPrw jfj-p í .11 eru búnii ai ■
eignast afskekkt-
an vinabæ í
svörtustu Afrfku,"
segir Ómar að lokum þakklátur
fyrir styrkinn sem vonir standa til að
muni bjarga ----------------------------
-•<**-
Helgi Hróbjartsson
Fljúgandi trúboðinn i
guðatölu í El Kere.
manns-
Eþíópía El Kere er einn
af fáum bæjum þarsem
hreint lindarvatn finnst.
margir eru
dánir síðan
þá,“ segir
Ómar í þung-
um tóni.
Að sögn
Ómars er lífs-
baráttan í
Eþíópíu gríð-
arlega eríið. f
Þarsédauðinn
daglegt brauö. I
Ómar segir að
hann og Helgi
hafi ekki getað
snúið aftur til
Eþíópíu tóm-
hentir og því
hafi þeir brugðið á þetta ráð. Þeir
munu fljúga til Eþíópíu í byrjun
mars og fljúga svo með kornmylluna
á Frú númer 4 til þorpsins. Þar
munu bæjarbúar ásamt Helga setja
fjölda
lífa.
valur@dv.is
Alltaf sami hægagangurinn
Það er eitthvað dáleiðandi við
bíósali. Um leið og ljósin eru slökkt
getur heimur Svarthöfða breyst í
pyntingabúllu í Slóvakíu, þar sem
ljón tala og kúrekar klípa í rassa.
Sjónvarpið er svipað en ekki alveg
eins. Heimurinn getur svosem
breyst í Róm á svipstundu en raun-
veruleikinn er skammt undan. Allt í
kring í stofunni hjá Svarthöfða.
Glæpaþátturinn Allir litir hafsins
er þrusufínn. Glæpirnir hrannast
upp og allir hafa eitthvað óhreint í
pokahorninu. Þannig á það að vera.
Skítur í hverjum vasa. Það er gott að
íslendingar geti gert sjónvarps-
Svarthöfði
krimma. Svarthöfða þótti svekkjandi
að sjá hina á Norðurlöndunum
komast svona langt framúr.
En það þarf að taka slurk í bíó-
málum. Síðustu myndir hafa verið
fínar en það vantar meira. Risarnir
Óvinafagnaður, Mýrin og Virkjunin
eru allir að þramma af stað en taka
væna stund á leiðinni í bíó. Á meðan
þarf Svarthöfði að halda áfram að
horfa á útlenskar myndir. Kannski
rétt fyrir utan handfylli af innlend-
um.
Hvernig hefur þú það?
„Mér líður bara mjög vel," segir Sigurður Eggertsson, landsliðsmaður í handbolta, sem
flýgur til Sviss í dag og tekur þar þátti Evrópukeppninni i handbolta.„Ég er mjög spennt-
ur fyrir Evrópumótinu og stemningin í hópnum er góð. Þetta verður ævintýri. Eg er
reyndar í diplómanámi i háskólanum en það verður lagt til hliðar næstu vikurnar. Mér
dettur ekki í hug að taka skólabækurnar með út."
Svarthöfði er löngu búinn að átta
sig á íslenska bíóvandanum. Kostn-
aðinum. Fáar myndir eru ffumsýnd-
ar og biðin er löng vegna þess að
þær eru svo dýrar. Svarthöfði hélt að
stafræna byltingin myndi breyta
landslaginu en svo virðist ekki
vera. Það eina sem breyttist er
að einstaka sinnum taka
menn stafrænt og mínusa
filmukostnaðinn frá. Allt ann-
að stendur eftir.
Það er kominn tími til að
íslendingar fari að dæla út
kvikmyndum á færibandi.
Taki bara upp á stafrænar vél-
ar og lækki kostnaðinn niður
úr öllu valdi. Tæknimenn
verða að vera sveigjanlegir. Svart-
höfði vill ekki vera leiðinlegur við
þessar stéttir en staðreyndin er bara
að á meðan það líður svona langt á
milli þrekvirkja, þá er þróunin allt of
hæg. Svarthöfði