Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006
Mennlng !DV
M
Árni Þórarins seldur tii ítailu
JPV útgáfa hefur selt ítalskan útgáfurétt á
Tíma nomarirmar eh\r Árna Þórarirtssan en i
desember var erlendur útgáfuréttur á henni
seldur til Norðurlanda og Þýskalands fyrir
hærri fjárhæðir en dæmi er um að greiddar séu
fyrir útgáfu á islenskum bókum erlendis. Sag-
an er tilnefnd til islensku bókmenntaverðlaun-
anna.
Nokkrir útgefendur vildu útgáfuréttinn en eftir
viðraeður samdi JPV útgáfa við Gruppo editori-
ale Mauri Spagnol um réttinn fyrir umtals-
verða fyrirframgreiðslu, líklega þá hæstu sem
greidd hefur verið fyrir íslenska bók á italiu.
Mauri Spagnol er virtur útgefandi og gefur út
marga titla ár hvert, ítalska og þýdda. Þeir gefa
meðal annars út tímarit í 250.000 eintökum til kynningar á útgáfubókum sín
um og dreifa ókeypis eftir ýmsum leíðum.
Unnið er að sölu útgáfuréttar á Tíma nornarinnar í fjölmörgum öðrum lönd-
um um þessar mundir.
vími
POKí\\IÍW^f>r\l|
ÁRNIÞORARINSSON
(GILDI opinberrar stofnunar er
Bragi Kristjónsson bóksali og orð-
inn mikið yndi fjölmiðla. Rétt eins
og sjaldgæft blóm í fjallshlíð, frið-
að og í útrýmingarhættu, situr
hann á sinum hefðarstól á horni
Klapparstígs og Hverfisgötu og
umgengst kúnna sína á háska-
legu stigi háðs og kurteisi.Versl-
un hans er um langa hrið búin að
vera skjól fyrir þá sem enn elska
bækur og eyða aurum í þær.
BRAGI er af kynslóð Reykvikinga
sem komst til þroska f kalda strfð-
inu miðju. Hann er með kunnug-
ustu mönnum um sögu bæjarins
frá tilteknu
tfmabili og get-
ur í óborganleg-
um frásagnarstfl sfnum dregið
saman söguþráð í glæsilega
slaufu. Ugglaust kann hann þeim
sem á penna heldur enga þökk
og sveiar mér fyrir orðavalið.
Bragi virtist um tfma vera eina
vonin að áfram héldi sala á göml-
um bókum í borginni þegar kyn-
slóðaskipti gengu yfir og heiðurs-
menn hurfu á braut sem ráku
fornbókaverslanir um árabil. En
maður kemur í manns stað.
ÞEGAR Bragi flutti sig af Vestur-
götunni upp í Skuggahverfi
sögðu sumir kúnna hans að nú
væri friðurinn úti. Næðið sem
gjarna var á Vesturgötunni tapað-
ist uppi í bæ. Ekki hef ég fundið
fyrir því. Það má alltaf fela sig í
völundarhúsi bókahlaða og milli
hilla, krjúpa í auðmýkt fyrir titlum
í neðstu hillu.
BÓKMENNING er haldlltil (landi
sem verslar ekki með notaðar
bækur. Sérviskuleg söfnun á bók-
um getur orðið slík manía að
menn missi svefn og holdfalli.
Bóksalar á borð við Braga eru því
gulls ígildi, þótt hann fullyrði
reyndar að bækur okkar tíma séu
forgengilegri en hundrað ára
gamlar bækur úr pappír sem er
annarrar gerðar en sá sem við
oftastflettum.
OG öll merki eru uppi um að arf-
ur hans gangi til næstu kynslóð-
ar: Ari Gísli sonur hans er við fyrri
hluta dags og gætir menningar-
arfsins á réttu verði áður en
handsal fer fram.
Ohókonsert Mozarts
fluttur við Glerá
f Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands verður
með hljómleika á
sunnudaginn
kemur í Glerárkirkju
I Daði Kolbeinsson óbóleikari
I Tekst á við óbópartinn einsog
I hann var saminn I upphafi, en
I lengi varhann leikinn á flautu.
Tónleikarnir á sunnudag hefjast
kl. 16. Á efnisskránni eru Sinfónía
nr. 1 í C-moll eftir Johannes
Brahms og óbókonsert í C-dúr eft-
ir Wolfgang Amadeus Mozart. Á
föstudag, þann 27., eru 250 ár liðin
frá fæðingu W. A. Mozarts, eins
mesta tónsnillings allra tíma.
Óbókonsert í C-dúr skrifaði hann
upphaflega fyrir óbó en var ekki
fluttur í sinni frumgerð fyrr en
1949, eða tæpum tvö hundruð
árum eftir að hann var saminn.
Konsertinn var þekktur sem
flautukonsert í D-dúr.
Johannes Brahms hafði verið
hvattur óspart af vini sínum og að-
dáanda, Robert Schumann til að
semja sinfóníu, hann ætti að
minnast þess, hvernig Beethoven
byrjar sinfóníur sínar og ætti að
gera eitthvað í líkingu við það.
Brahms hófst handa við gerð fyrstu
sinfóníunnar eftir að hafa hlýtt á 9.
sinfóníu Beethovens, en lauk ekki
við hana fyrr en um 20 árum síðar.
Má greina áhrif úr sinfónfu Beet-
hovens í upphafi lokaþáttarins.
Einleikari á óbó er Daði Kol-
beinsson. Daði lauk einleikara-
prófi frá Royal College of Music í
London árið 1972. Árið 1973 réðst
hann til Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands sem upp-
færsluóbóleikari
og tók síðan
englahornið að
sér árið 1977.
Daði hefur oft
komið fram sem
einleikari, bæði á
óbó og engla-
horn, með Sin-
fóníuhljómsveit
Islands og
Kammersveit
Reykjavíkur.
Einnig hefur
hann mikið leikið
með Kammer-
sveit Hallgríms-
kirkju og Lang-
holtskirkju, svo
og íslensku óper- s,s
unni og KaSa-hópnum. Hann er
einn af stofnendum Blásarakvin-
tetts Reykjavíkur sem hefur komið
fram víða um heim og leikið inn á
marga hljómdiska. Daði var ráðinn
fyrsti óbóleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands árið 2000.
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands er að stærstum hluta skipuð
hljóðfæraleikurum af Norðurlandi.
Á þessum tónleikum koma einnig
hljóðfæraleikarar af Reykjavíkur-
svæðinu til liðs við hljómsveitina.
Stjórnandi á tónleikunum er aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands, Guðmundur
Óli Gunnarsson.
81f§ 1
Guðmundur Óli Gunnars-
son Hljómsveitarstjórinn safn-
ar hljóðfæraleikurum víða að í
Glerárkirkjuna á sunnudag.
Boney M snýr aftur í söngleik sem verður settur upp í London í
Við Babýlonvötnin ströng
vor
í lok apríl verður frumsýndur nýr söng-
leikur í London sem byggir á þeirri röð hittara
sem söngflokkurinn Boney M kom í toppsæti
vinsældalista á sínum tíma. Það er Frank
Farian, framleiðandi frá Þýskalandi, sem
stendur á bak við sýninguna og gerir sér von-
ir um að hún skili eins miklum hagnaði og
Mamma Mia, söngleikur þeirra Abba-
bræðra, sem hefur aukið enn á vinsældir
Abba-laga og náð mikilli hylli víða um heim.
Sagan fyrir söngleikinn er enn í smíðum.
Verkið kallar hann Daddy Cool. Verkefnið
stendur honum nærri. Það var hann sem bjó
til diskótríóið vinsæla um miðjan sjöunda
áratuginn. Hann framleiddi flest lög þeirra
sem náðu sæti á vinsældalistunum. Hug-
myndin verður byggð á baráttu tveggja
glæpaflokka sem takast á um yfirráð, skotið
verður inn í fléttuna smá ástarsögu, en útlitið
verður allt byggt á íburðarmiklum diskófatn-
aði og í yfirstærð.
Boney M seldi gríðarlegt magn af diskum -
eða plötum því þetta var á vínyltímanum.
Farian segir söluna hafa náð 800 miljónum
punda. Þegar vinsældir hópsins tóku að dvína
reyndi framleiðandinn fyrir sér með ýmsa
nýja hópa sem hann setti saman, en ekkert
gekk jafn vel og Boney. Og nú ætlar hann að
hafa gamla aðdáendur að féþúfu á nýjan leik
með þessum söngleik sem verður frumsýnd-
ur í London í apríl, rétt í tíma þegar samdrátt-
ur fer að sjást á vetrarsýningum í borginni og
skömmu áður en fjölskyldufólk fer að flykkj-
ast til borgarinnar sem vill einmitt sjá verk af
þessu tagi, kunnugleg, sakleysisleg og full af
skrauti.
4B'°W
'eStimiM