Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 Fréttir X>V • Klámkvöldið í Keflavík sem haldið var um síðustu helgi tókst vonum framar þrátt fyrir andóf lög- reglu og femínista. Gleðin var haldin á Hápunktinum en til stóð að Traffic myndi hýsa herlegheitin. Jóhannes Kristbjömsson, fyrrverandi körfu- boltahetja úr Njarðvík og núverandi lögreglumaður í Keflavík, sást þar ásamt fleiri körfuboltamönnum svo sem Teiti örfygssyni. Jóhannes lét það ekki aftra sér að hafa staðið fr am- arlega í andófinu ásamt starfsfélögum ílöggunni... • Haltur og blindur er Helgi Hjörvar alþingismaður kominn til byggða eins og hann orðar það í tengslum við að Alþingi sé komið saman á ný. Eftir langt hlé ritar Helgi grein á síðu sína og segir af hrakförum sínum en hálkan reynist honum sjón- döprum manninum ákaflega skeinuhætt. Jafnvel ballett- þjálfun Helga frá því hann var strákur dugar ekki til að forða honum frá því að fljúga á hausinn og er hann nú marinn, blár og... haltur... • Siggi Hlö og Valli Sport reka nú auglýsingastofuna Hausverk en þeir gerðu garðinn ffægan með sjónvarps- þættinum „Með hausverk um helgar" hér á árum áður. Þeir hrósa nú sigri sem aldrei fyrr. Tíðindum þótti sæta að Gunnsteinn Sigurðsson hreppti 2. sætíð í prófkjöri sjálfstæðismanna um helgina og skaut þar Armanni Kr. Ólafssyni ref fyrir rass. Ármann er Manninn í nafninu Nonni og Manni - nú EnnEmm auglýs- ingastofu. En Siggi og Valli sáu um aug- lýsingar og ímyndar- útlit fyrir Gunnstein... • Flestir gera ráð fyrir því að hinn keiki Bjöm Ingi Hrafnsson, aðstoðar- maður forsætisráðherra, taki kom- andi prófkjörsslag ffamsóknarmanna í Reykjavík þrátt fyrir bakslag í seglin eftír fregnir af unglingadrykkju í kosn- ingaskrifstofu hans. Hins vegar er það ekkert nýtt að ffamsóknarmenn í kosningabaráttu höfði til ungs fólks með skemmtanahaldi þrátt fyrir að eiga slagorðið Vímuefrialaust fsland árið 2000. Til dæmis hélt Hjálmar Amason írafársball í Stapanum korteri í síðustu Alþingis- kosningar og fengu allir ókeypis inn sem vom með xB-merki í barmi. En miðað við rangfærslumar sem úr þingflokksformanninum hrökkva þegar hentar er hann vís til að halda því fram að þar hafi ekki sést vín á nokkmm manni... * Jóhann Hlíðar Harðarson, varafor- maður Blaðamannafélags íslands og fféttamaður hjá NFS, hyggst nú venda sfnu kvæði í kross. Líkt og margir sér hann sér ekki mikinn hag í að vera blaðamaður og hefur nú sótt um vinnu hjá Háskóla Reykjavíkur. Og fékk þar starf sem mark- aðsstjóri. Alda Sig- urðardóttir hefur einnig verið ráðin til HR sem kynningar- stjóri... Milljónahagnaður er í sjónmáli fyrir stjórnarmennina i Sörla, þá Björn Bjarnason, Hilmar Bryde og Sigurð Ævarsson, sem mæltu með sjálfum sér fyrir lóðaúthlutun Hafnaríjarðar á Sörlasvæðinu við Kaplaskeið. Um 50 þúsund krónur greiðast til HafnarQarðarbæjar fyrir hvert pláss í hesthúsunum en þegar húsin fjórtán hafa verið reist verður hvert pláss metið á rúmlega eina milljón króna. „Þetta er frekar klaufalegt," segir Haraldur Þór Ólason, leiðtogi sjálfstæðismanna í Hafiiarfirði, um þá ákvörðun stjórnar hesta- mannafélagsins Sörla að mæla með því að þeirra eigin stjórnar- menn fái hesthúsalóðir á svæði félagsins. Haraldur vék af fundi þegar málið var rætt í bæjarráði Hafnarfjarðar í síðustu viku enda sjálfur einn þeirra sem stjórn Sörla mælti með. Gjafverð er á lóðunum og mikill gróði bíður þeirra heppnu. Eins og DV greindi fyrst frá á laug- ardag er mikiil titringur meðal félags- manna Sörla í Hafnarfirði eftir að í ljós kom að þrír stjómarmenn hesta- mannafélagsins mæltu með sjálfum sér sem heppilegum umsækjendum um hesthúsalóð á félagssvæði Sörla við Kaplaskeið. Talsverð eftirspurn er eftir fóðunum enda bárust 120 umsóknir um pláss í 14 hesthúsum. Það er bæjarráð Hafnarfjarðar sem útdeUir lóðunum en lögum sam- kvæmt þarf að leita umsagnar stjóm- ar Sörla um umsækjendur áður en ákvörðun er tekin. Gróði í vændum fyrir hina heppnu Verð Ióðanna sem nú er útdeUt þykir í meira lagi hagstætt. Um 50 þúsund krónur greiðast til Hafnar- fjarðarbæjar fyrir hvert pláss í hest- húsunum. Kunnugir segja að þegar húsin fjórtán hafa verið reist verði hvert pláss verðmetið á rúmlega eina mUljón króna. Töluverður hagnaður er því í sjónmáli fyrir þá heppnu sem fá úthlutað í Kapla- skeiði. Stjórnarmennirnir þrír í Sörla sem mæltu með sjálfum sér, þeir Björn Bjarnason formaður, Sigurður Ævarsson varaformaður og Hilmar Bryde gjaldkeri, eiga allir nú þegar hlut í hesthúsum á félagssvæði Sörla. Björn Bjarnason sagðist í samtali við DV í gær eiga hlut í þremur hesthúsum á svæði Sörla, þar af einu afar nýlegu. Hann segist ætla að selja sinn hlut í húsunum fái hann úthlutað á nýja svæðinu við Kaplaskeið. Fómfúsum félögum sýnd velvild í stað þess að halda sig við þá venju að tilgreina aðeins hverjir um- sækjenda væru félagsmenn í Sörla ákvað stjórnin að senda bæjarráði lista með nöfnum sem heppilegir þykja að hennar mati. Þar að auki var rökstuðningur látinn fylgja. „Umsögn stjórnarinnar og val byggist á starfsframlagi og virkni einstaklinga innan félagsins á und- anförnum árum... Okkur er umhug- að um að áfram verði haldið á sömu braut og að fórnfúsum félögum sé sýnd velvild með því að láta þá ganga fyrir við úthlutun," segir með- al annars í rökstuðningi stjórnarinn- ar sem sendur var bæjarráði Hafnar- ijarðar þann 16. janúar. Brot á stjómsýslulögum? Magnús Kjartansson tónlistar- maður er einn þeirra umsækjenda sem sóttu um lóð við Kaplaskeið. Stjórn Sörla mælti ekki með því að hann fengi lóð. Magnús bendir á að það sé Hafnarfjarðarbær sem útdeili lóðunum en ekki stjórn Sörla. „Ég vona að bæjarráð fhugi um- sögn stjórnar Sörla vandlega. En átti sig um leið á því að ráðið er ekki bundið af henni,“ segir hann. „Ég hef fyrirvara á þessum starfsreglum stjórnarinnar og grunar að þær standist ekki jafnræðisreglu stjórn- sýslulaganna," bætír Magnús við. Björn Bjarna- son Formaður Sörla á von á miklum hagnaði. Vilja lenda málinu í sátt Eftir að hafa móttekið umsögn stjórnar Sörla var málið rætt í bæjar- ráði í síðustu viku. Haraldur Þór Óla- son, oft kenndur við Furu og leiðtogi sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, vék af fundi enda einn þeirra sem Sörla- menn mæltu með að fengi lóð. Hann segist ekki skilja hvaða for- sendur séu á bak við tilnefningamar og segir málið klaufalegt í alla staði. Að- spurður hvort bæjarráð hyggist fara eftir umsögn stjórnar Sörla þegar lóðunum verður út- hlutað svar- aði Haraldur: „Bæjarráð mun hafa þetta til hliðsjónar. En ég hygg að við mun- um vera í sambandi við stjórnina og reyna að finna lendingu á þéssu sem allir geta verið sáttir við.“ Pressa sett á stjórnarmenn Heimildir DV herma að hjá bæj- arfulltrúum í Hafnarfirði ríki nokkur óánægja með útspil Sörlamanna hvað tilnefningar þeirra varðar og að bæði Haraldur Þór Ólason og Gunn- ar Svavarsson, samfylkingarmaður og forseti bæjarstjórnar, muni skikka stjórn Sörla til að lagfæra lista sinn til að koma í veg fyrir að þeir þurfi að samþykkja hann í núver- andi mynd. Kunnugir segja að þeim félögum hugnist ekki að láta bendla sig við það sem nefrít hefur verið hagsmunapot stjórnarmanna Sörla í lóðamálum svo skömmu fyrir kosn- ingar. andri@dv.is Haraldur Þór Ólason Stjórn Sörla mælti með leiðtoga sjálfstæð- ismanna i Hafnar- fírði. Hann segir málið klaufalegt. I Magnus Kjartansson Sótti um en fékk I ekkj- Se9it starfsreglur stjórnarinnar I mögulegt brot á jafnræðisreqlunni. Bretar syrgja hvalinn Wally sem dó eftir hrakninga í Thames-ánni The Sun vill varðveita beinagrind andarnefjunnar Breska dagblaðið The Sun hyggst safna 10 þúsund pundum til þess að varðveita beinagrind hvalsins sem synti um Thames-ána og dó, en hvalnum hefur verið gefið nafnið Wally. Þetta kemur fram á heima- síðu blaðsins. Hyggjast menn hjá The Sun fá sérfræðinga á sviði dýraverndunar í lið með sér til þess að vera í forsvari fyrir söfnunina. Beinagrindina á að nota í vísindalegar rannsóknir. „Við viljum þó einnig votta hvalnum, sem náði athygli heimsins með því að synda um Thames-ána og inn að miðri Lundúnaborg, virðingu okk- ar." Menn vilja rannsaka beinagrind- ina til hlítar; komast að því hvar Wally ólst upp og hvernig hann komst til Lundúna. Bretar hafa tekið ástfóstri við Wally og töldu nánast öruggt að þarna væri á ferðinni karlkyns vera. En eftir að hafa rannsakað hræið komust dýralæknar að því að þarna væri á ferðinni sex ára gömul kýr. Erfitt er að greina af hvoru kyninu hvalir eru og það var ekki forgangs- verkefni þeirra sém önnuðust dýrið. Fyrst og fremst reyndu menn að halda því lifandi. Frekari rannsóknir verða gerðar á hræinu á komandi dögum. Óhætt er að segja að þessi björg- un hafi verið í dýrara lagi. Nú hafa reiðir björgunarstarfsmenn, sem reyndu sitt besta til þess að bjarga dýrinu, komið fram í breskum fjöl- miðlum og kvartað sáran yfir stöðu- mælasektum sem þeir fengu á meðan björgunin stóð yfir. Alls fékk björg- unarfólkið rúmlega 30 þúsund króna sekt. Sorgarstund I menn fengu stc á meðan þeir re stoða andarnefj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.