Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 Sport 0V Nýr kani til Valsmanna Grant Davis hefur geng- ið til liðs við 1. deildarliðs Vals í körfubolta. Hann er Bandaríkjamaður og lék með ÍR í 1. deildinni í fyrra og skoraði að jafnaði 21 stig og tók 12 fráköst í leik að meðaltali. Richmond Pitt- man, sem hefur leikið með Val fram að þessu og sigr- aði eftirminnilega í troðslu- kepþninni í stjörnuleik KKÍ, hefur haldið til Bandaríkj- anna í nám. Baldur til Noregs Baldur Ingimar Aðal- steinsson fer í vikunni til Noregs þar sem hann verð- ur til reynslu hjá norska úr- valsdeildarliðinu Lyn sem Stefán Gíslason leikur með. Baldur lék síðasta sumar með Valsmönnum en sagði upp samningi sínum við lið- ið í haust og ætlaði að reyna að koma sér að erlendis. ísland í 21. og 26. sæti Islenskum félagslið- um í handbolta karla og kvenna hefur verið raðað á alþjóðlegum styrkleikalista sem Handknattleikssam- band Evrópu gaf út í gær. íslensk karlalið eru í 21. sæti og kvennalið- in í 26. sæti. Listinn byggir á árangri liðanna í Evrópu- mótunum árin 2002 til 2005 en staða karlaliðanna er óbreytt frá síðasta lista en kvennaliðin hafa hækk- að sig um þrjú sæti. Efst hjá körlunum eru lið frá Spáni og svo Þýskalandi en hjá konunum eru lið frá Dan- mörku og Ungverjalandi í efstu sætunum. Scolari til í að þjálfa England Brasilíumaðurinn Luis Felipe Scolari væri alveg til í að taka að sér að þjálfa knattspyrnulandslið Englend- inga, en aðeins ef Sven-Göran Eriks- son hættir eftir HM (Þýskalandi í sumar. Scolari var orðaður við starfið eftir að þau hneykslismál sem hafa plagað Eriksson undanfarna daga urðu til þess að það sé talið nánast öruggt að hann hætti eftir HM í sumar. Sagði Scolari að sér væri sýndur heiður þegar nafn hans væri nefnt í sambandi við þjálfarastöðu enska landsliðsins. Arsenal haföi betur í kapphlaupinu um TheoWalcott, táningsstjörnu Sout- hampton. þrátt fyrir gylliboö ensku meistaranna í Chelsea. Eftir allt saman voru þaö ekki peningarnir sem skiptu mestu máli heldur þjálfarinn. Faöir og vinir hins 16 ára leikmanns ráðlögðu honum að fara til Arsene Wenger. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur sýnt það og sannað á sínum sigursæla stjóraferli að hann getur hjálpað ungum og efnilegum leikmönnum að verða að frábærum fótboltamönnum. Spánverj- inn Fabregas er eitt dæmi um ungan mann sem Wenger sá eitt- hvað í og gerði að alvöruleikmanni en leikmenn eins og Hollend- ingurinn Robin Van Persie og Svisslendinguimn Philippe Sender- os em tvö önnur dæmi um unga leikmenn sem Wenger hefur mótað á síðustu árum. Þetta veit Don Walcott, faðir Theo Walcott, og hann veit líka af því að Wenger er mjög umhugað um að halda álagi á sínum ungu leikmönnum í lágmarki þannig að þeim takist að þroskast bæði lfkamlega sem og andlega. Það hefúr verið mikið álag á Theo Walcott að undanfömu enda að spila stórt hlutverk með Sout- hampton og Arsene Wenger gerði sér vel grein íyrir því. Fyrsta spum- ing Frakkans til nýja leikmannsins síns var því hvort hann væri þreyttur og þegar Walcott játti því sendi Wenger hann í tíu daga frí til þess að safna kröftum og ná áttum. Þarna kom í ljós við fyrstu kynni ein af ástæðunum fyrir því af hveiju Walcott valdi Arsenal yfir Chelsea þrátt fyrir að hafa fengið spuming- una frá ensku meisturunum: „Hvað þurfum við að gera til þess að þú komir til okkar?“ Walcott vill ekki bara fá tækifæri tij að þroskast og verða betri knattspyrnumaður því hann vill gera það á réttum hraða og vill passa upp á það að brenna ekki út strax í upphafi ferils síns. Sá hann fyrst 14ára Wenger vissi fyrst af Walcott þeg- ar hann sá strákinn spila við ung- lingalið Arsenal aðeins 14 ára. Síðan þá hefur Frakkinn fýlgst vel með þróun mála hjá þessum fljóta og leikna framherja sem hefur þegar spilað 23 leiki með meistaraflokki Southampton. Wenger lætur öll unglingalið Arsenal spila sama leikkerfi og aðalliðiö og það má bú- ast við að Walcott fá skólun með yngri liðunum fyrst um sinn en Wenger hefur neitað að gefa út einn ákveðinn dag sem Walcott komi til með að spila sinna fyrsta leik. Þeir sem þekkja vel til stráksins búast þó við að hann fá tækifærið mjög fljót- lega enda hafl hann þegar þolað að spila í 1. deildinni sem þykir jafnvel harðari en úrvalsdeildin. Gengur ekki eins vel með Englendinga Þrátt fyrir gott gengi Wengers með unga leikmenn hefur honum ekki gengið alveg eins vel með enska stráka og með stráka af meginland- inu. Hér eru menn fljótir að nefiia til leikmenn eins og Francis Jeffers, Richard Wright, Matthew Upson og síðast en ekki síst Jermaine Pennant sem Wenger getur notað sem víti til vamaðar enda gekk lítið hjá Penn- ant innan sem utan vallar þau ár sem hann var undir stjóm Wengers. Það er bara Ashley Cole sem hefur náð að vaxa og dafiia hjá Wenger af þeim ensku unglingum sem hann hefur tekið undir sinn vemdarvæng. Nú er að sjá hvort Theo Walcott geti fetað í fótspot Fabregas, Van Persie og Senderos og unnið sér sæti í liði Arsenal. Eitt er vfst að Wenger ætlar sér að taka sinn tíma í að skóla strákinn til og hann setur hann ekki inn í aðalliðið fyrr en hann er 100% viss um að hann sé tilbúinn. ooj@dv.is Dýrustu táningarnir í sögu fótboitans: 2,9 milljarðar Wayne Rooney, frá Everton til Man. Utd. 2004 2,1 milljarðar Antonio Cassano, frá Bari til Roma 2001 1,7 milljarðar Ronaldo frá PSV, til Barcelona 1996 1,6 milljarðar Javier Saviola, frá River Plate til Barcelona 2001 1,32 milljarðar Cristiano Ronaldo, frá Sporting Lissabon til Man. Utd 2003 1,29 milljarðar Theo Walcott, frá Southampton til Arsenal 2006 Hvað verður um Garcia? Ástandið á Jaliesky Garcia er ekki eins og gott og von- asthafði verið til. íslenska handboltalandsliðið fer til Sviss til dag en Garcia er enn aumur Útlitið ekki bjart hjá Jaliesky Garcia „Eftir því sem mér best skilst er ástandið ekki eins og gott og vonast hafði verið til," sagði Einar Þorvarð- arson í samtali við DV Sport í gær varðandi mál Jaliesky Garcia. Hann gekkst undir aðgerð á tá skömmu fyrir jól og er enn á sjúkralista félags síns, þýska úrvalsdeildarliðsins Göppingen. íslenska landsliðið í handbolta hélt í dag til Sviss þar sem Evrópumeistaramótið hefst á fimmtudaginn kemur. ísland mætir Serbum í fyrsta leik. Vonast hafði verið til að Garcia gæti spilað með á mótinu þar sem breidd íslenska hópsins á vinstri væng liðsins er ekki mikil. Arnór Atlason er sem stendur helsta vinstri skytta liðsins og leysti Sigurður Egg- ertsson hann stundum af hólmi í leikjunum gegn Frökkum. í leikjun- um tveimur skoraði ísland eldcert mark af ellefu metra færinu vinstra megin og verður það að teljast mik- ið áhyggjuefni. Markús Máni Michaelsson hefur verið fyrsti kostur í þessari stöðu í undirbúningi liðsins í haust en hann meiddist í leik með Dússeldorf í des- ember. Logi Geirsson hefur einnig verið frá stærstan hluta tímabilsins en hann gæti þó verið í betra formi en Garcia er nú. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari getur leitað til hans ef þörf þykir. Annars er lfldegt að Viggó tilkynni fyrst um sinn fimmt- án manna landsliðshóp og bíði þá með sextánda sætið, hvort sem Garcia taki það sæti eða einhver annar. Annars gekk æfing landsliðsins í gær vel og tók Roland Eradze fullan þátt í henni. Ekki munu önnur meiðsli hrjá íslensku landsliðsmennina sem stendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.