Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 19
DV Sport ÞRIÐJUDACUR 24. JANÚAR 2006 7 9 Kristján skoraði Kristján örn Sigurðsson skoraði mark norska liðsins Brann í æfingaleik gegn svissneska liðinu Luzern en leikurinn fór fram á Mar- bella á Spáni. Kristján jafn- aði leikinn á 61. mínútu með skallamarki en leikn- um lauk með 1-1 jafntefli. Þettavar fyrsta mark Brann á tíma- bilinu og jafn- framt fyrsta mark Kristjáns með félaginu en líkt og í fyrra spOaði hann í stöðu hægri bakvarðar. Ólafur örn Bjarnson lék einnig með Brann. Pétur byrjaður að æfa á ný Landsliðsmaðurinn Pét- ur Hafliði Marteinsson er byrjaður að æfa fótbolta á nýjan leik eftir að hann meiddist í landsleik íslands og Ungverjalands í byrjun júní síðastliðins. Hann ökklabrotnaði í leiknum og skaddaðist einnig á hné. Hann jafnaði sig frekar fljótt af brotinu en hnéð reyndist vera stærra vandamái og gat hann fyrst byrjað að skokka í þessum mánuði. Hann er nú í æfingaferð með liði sínu Hammarby í Los Angeles og æfir af fiól- um krafti. Federervann baráttusigur Roger Federer tryggði sér í gær sæti í íjórðungsúr- slitum á Opna ástralska mótinu í tennis eftir æsOega viðureign gegn Þjóðverjan- um Tommy Haas. Federer spOaði frábær- lega í upphafi leficsins og vann fyrstu tvö settin en Haas sneri blaðinu við og vann næstu tvö sett. Allt var í járn- um í upphafi úrslitasettsins ’n eftir að d^.iiari leiksins kvað upp vafa- saman dóm Federer í hag var aldrei spurning hvorum megin sigurinn lenti. Þá vann Martina Hingis sinn leik og er einnig komin í átta manna úrslit. 19.30 Arsenal-Wigan í _____ undanúrslitum enska deUdabikarsins í beinni áSýn. 22.30 Ensku 1. deUdar- mörkin á Sýn. Rio Ferdinand var hetja Manchester United gegn T---1 Sigurmarkið Rio Ferdinand fagnar eftir að hafa skorað framhjá Jose Reina, markverði Liverpool, um heigina. hafa gengið í gegnum ýmislegt á síðustu árum virðist loks- ins farið að birta tU hjá Rio Ferdin- and. Hann skoraði sigurmark sinna manna í Manchester United gegn Liverpool um helgina, aðeins viku eftir að haft var eftir sjálfum lands- liðsþjálfaranum að hann væri „lat- ur“. Hann að vísu sagðist engan kala bera til Sven Göran Eriksson en hann sýndi svo ekki var um vUlst að hann væri varnarmaður í heimsklassa. Síðustu tveir mánuðir hafa skipt sköpum í knattspyrnuferli Rio Ferdinand. f haust var hann oft sak- aður um að standa sig illa f leikjum með Manchester United en fyrir tímabilið varð hann mjög óvinsæll hjá stuðningsmönnum United sem sökuðu hann um græðgi þar sem hann neitaði í fyrstu að skrifa undir nýjan samning við félagið. En hann gerði það á endanum og var tekinn fljótlega í sátt. Rio Ferdinand hafði leikið 140 leiki fyrir Manchester United án þess að skora mark þegar það kom loksins gegn Wigan í síðasta mán- uði. Reyndist það vera vendipunkt- ur á ferli Ferdinands sem hafði tekið stefnuna niður á við þegar hann mætti ekki í lyfjapróf árið 2003. í jan- úar árið 2004 var hann svo dæmdur í átta mánaða bann sem þýddi að hann missti af Evrópu- meistaramótinu í Portúgal. Málið var gert að fordæmi fyrir aðra knattspyrnumenn sem tóku ekki lyfjaprófin alvarlega en sjálfur sagði Rio að hann hefði einfaldlega „gleymt próf- inu". Rio Ferdinand er einn besti varnarmaður heimsins á góð- um degi. Ef hann bætir markaskorun við sína hæfileika á knattspyrnuvellinum verður erfitt fyrir landsliðsþjálfara Englands að ganga fram hjá honum. „Það er engin ástæða fyrir því af hverju hann ætti ekki geta skorað fleiri mörk," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United. „Hann er 1,93 metrar á hæð, með stóran haus og góðan stökkkraft." visir iSLENSKU | TÓNLISTARVERÐLAUNIN 2005 ★ ★★★ Gagnrýnendur segja eitt. En nú er komið oð þér. Farðu ó vísir.is og taktu þótt í íslensku tónlistarverðlaununum. Veldu „Vinsœlasta flytjandann", þann tónfistarmann eða hljómsveit sem þér þykir hafa skarað tram úr órið 2005 og spilaðu með í veðbankanum. Ef þú giskar rétt óttu möguleika ó glœsilegum vinningi, ferð fyrir tvo með lcelandair til San Fransisco og gjaldeyri fró Landsbankanum. Hver var bestur 2005? Láttu skoðun þína í Ijós á visir.is Glœsileg verðlaun í boði! FRETTABLAÐIÐ Landsbankinn Icelandair

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.