Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 Sport DV Bo skrifaði undir Á laugardaginn skrifaði danski framherjinn Bo Henriksen undir samning við ÍBV um að spila með liðinu í Landsbankadeild- inni í sumar. Henriksen kom hingað til lands fyrir síðastlið- ið tímabil á vegum Valsmanna en hon- um tókst ekki að vinna sér sætiílið- inu. Honum var leyft að fara til Framara þar sem hann fékk meira að spila og skoraði nokkur mörk. Eftir tímabilið óskuðu Framarar þó ekki eftir kröftum hans og fékk þá ÍBV hann til liðs við sig. Kvartað und- an fagnaðar- látum Neville Enska knattspyrnusam- bandið hefur fengið kvört- un frá lögreglunni í Man- chester vegna fagnaðarláta Garys Neville að loknum leik Manchester United og Liverpool á sunnu- dag. United vann leikinn 1-0 og eftir hann hljóp Neville völlinn þveran til að fagna sigrinum fyrir framan stuðn- ingsmenn Liver- pool sem höfðu sent honum ýmsar háðs- glósur allan leikinn. Bróðir Garsy, Phil, lýsti leiknum fyrir Sky og sagði að þetta gerði hann alltaf eftir sigra gegn Liverpool og hann ætti að fá að gera það í friði. Pettersen sker niður Gunnar Pettersen, landsliðsþjálfari Norð- manna í handbolta, skar í gær EM-hóp sinn niður um ijóra og fer með sautján leikmenn til Sviss. Þeir leikmenn sem urðu eftir úti í kuldanum eru þeir Thomas Skoglund, Lars Erik Björnsen, Sindre Walstad og Kenneth Klev, leikmann CD Altea á Spáni. Aðeins sextán leikmenn eru gjaldgengir til þátttöku á mótinu og bíður Pettersen væntanlega með að til- kynna sinn síðasta mann þar til ljóst verður hvort Kjetil Strand geti leikið, en hann er meiddur á hné. Adu spilaði með landsliðinu Ungstimið bandaríska Freddy Adu spilaði í fyrsta skipti um helgina með bandaríska landsliðinu í knattspyrnu. Adu er yngsti leikmaður liðsins frá upp- hafi en hann _ var 16 ára og 234 daga gam- all er leikurinn, sem var gegn Kanada, fór fram. Hann fékk reyndar gult spjeild fyrir leikaraskap strax eftir að hann kom við boltann í fyrsta skipti en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Bandaríkin mæta svo Norð mönnum á sunnudaginn kemur. Enski landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson var þögull sem gröfin eftir fund sinn með enska knattspyrnusambandinu vegna ásakana hans, sem komu fram í News of the World um helgina, um spillingu í enskum úrvalsdeildarliðum. Margir telja að Eriksson eigi að víkja strax og ekki einu sinni fá tækifæri til að klára HM. á bláþræði Ef eitthvað er meira á milli tannanna hjá áhugamönnum um enska boltann en Sven-Göran Eriksson, þá eru það mútumál sem margir segjá að plagi íþróttina. Sú umræða náði nýjum hæðum um helgina ér einmitt Eriksson var sagður ásaka þrjá knattspyrnustjóra enskra úrvalsdeildarliða um að þiggja reglu- lega mútur. Eriksson hitti forráðamenn Enska knattspyrnusam- bandsins í gær vegna þessa en honum loknum. Enska knattspyrnusambandið hefur staðið við bak Erikssons und- anfarna viku en þarsíðasta sunnu- dag birtust í fyrsta sinn fréttir af fundi Erikssons og dulbúnum blaðamanni News of the World en hann þóttist vera arabískur fursti sem væri að setja á stofn knatt- spyrnuskóla í Dubai. Þá var Eriksson sagður hafa haft ýmislegt misjafnt að segja um leikmenn landsliðsins auk þess sem hann benti furstanum á að Aston Villa væri hugsanlega til sölu og hann falur til að hætta með enska landsliðið til að taka við knatt- spyrnustjórn liðsins. Hann kæmi svo með David Beckham sem kaup- bæti. í fyrradag birtust svo frekari frétt- ir af samtali „furstans" og landsliðs- þjálfarans og nú var umræðunni vikið að mútuþægni í enska boltan- um. Mike Newell, knattspyrnustjóri Luton, tjáði sig nýlega opinberlega um þessi mál og sagði að umboðs- menn knattspyrnumanna væru að leggja íþróttina í rúst með mútu- starfsemi. Skömmu síðar kom Ian Holloway, knattspyrnustjóri QPR, fram og sagði að sér hefðu verið boðnar mútur en hann hafnað þeim. I samtali Erikssons og furstans nefndi landsliðsþjálfarinn knatt- spyrnustjóra ensks úrvalsdeildarliðs á nafn og sagði hann spilltan. Um- boðsmaðui; Erikssons, Athole Still, var einnig á staðnum og nefndi ann- an mann á nafn og ýjaði að misjafnri sagði ekkert við blaðamenn að starfsemi þriðja úrvalsdeildarliðs- ins. News of the World ákvað hins vegar að birta ekki nöfn þessara fé- laga eða manna sem þeir eru sagðir tala um. Það sem hefur verið rauði þráð- urinn í þessari umræðu er munur- inn á að geta talað um mútustarf- semi annars vegar og skaffað sönn- unargögn máli sínu til stuðnings hins vegar. Bæði Newell og Hollo- way hafa verið kallaðir á fund Enska knattspyrnusambandsins og mun árangur þeirra funda koma í ljós er nefndin sem rannsakar málið skýrir frá niðurstöðum. Það þykir þó víst að fundur Erikssons og nefndarinn- ar mun lítinn árangur bera þar sem hann hefur engar sannanir undir höndum. Enda voru hans orð upp- ljóstrun en ekki höfð í yfirlýsingu hans. Það sem þó stendur eftir er starfsöryggi Erikssons sem er ekki mikið um þessar mundir. Samband Erikssons og leikmanna hans var enn sagt gott í liðinni viku þrátt fyrir atburði helgarinnar en öðru máli gegnir þegar heilu félögin eru dregin inn í umræðuna. Samband Enska knattspymusambandsins og enskra úrvalsdeildarfélaga er ekki gott fyrir og er talið víst að félögin muni setja mikinn þrýsting á Eriksson um að sanna mál sitt. Háttsettur aðili inn- an knattspyrnusambandsins sagði við enskan fjölmiðfl að „heiðarlegur maður myndi segja af sér“. Það þykir víst að Eriksson muni í Sven-Göran Eiriks- son Hangir tæpur I starfi sínu sem lands- liðsþjálfari Englands / knattspyrnu. SÍð- asta falli hætta eft- ir heims- meistara- keppnina í sumar. En eins og staðan er nú er erfitt að ímynda sér það enska knattspyrnu- félag sem myndi vilja ráða hann til starfa. HNEYKSLISMÁL SVENNA OKTÓBER 2001: Enskur útvarpsmaöur hringir i Sven-Göran og þykist vera Kevin Keegan. Þá sagði Svenni að hann vildi að David Beckham yrði landsliðsfyrirliði og uppljóstraði ýmsu meira um áætlanir sínar um enska landsliðiö. 2002: Sven er sagöur eiga (ástarsambandi við löndu sína Ulrika Jonsson sem er sjónvarpsstjarna í Bretlandi. Ýmislegt annað kom upp á í kjölfarið, til dæmis kom sjónvarpskonan Jayne Connery fram og sagðist hafa átt í þriggja mánaða ástarsambandi við Svenna. SUMAR 2004: Svenni er sagður hafa sængað hjá Fariu Alam, ritara hjá Enska knattspyrnusambandinu, sem mun hafa einnig átt vingott við Mark Palios, formann sambandsins. NÓVEMBER 2005: Nancy Dell'Olio, sambýliskona Erikssons, sagði frá því í enskum fjölmiðlum að hann bannaði leikmönnum sínum að stunda kyn- líf fyrir leiki með enska landsliðinu. Gunnar Heiðar Þorvaldsson sprakk úr hlátri þegar hann las um ráðabrugg stuðningsmanna Wolves STUÐNINGSMENN WOLVES VRLJA KAUPA GUNNAR HEIÐAR Stuðningsmenn enska 1. deildar liðsins Wolverhampton 1 Wolves hafa lagt til að leggja í púkk til að bjóða í okkar eigin Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Þeir segja Gunnar Heiðar vera falan fyrir 250 þúsund pund en ætla að safna 300 þúsund pundum til að leggja fram raunhæft tilboð. í íslenskum krón- um eru það tæpar 33 miiljónir króna en Halmstad ku þegar hafa hafnað tflboði frá spænsku liði upp á 40-50 Fyndið Gunnari Heiðari var skemmtyfir rdðabruggi stuðningsmanna Wolves. mflljónir punda. „Við fengum til- boð en það var svo lágt að ég tel það ekki einu sinni með,“ sagði Bengt Sjöholm, forseti Halmstad, í samtali við DV Sport í síðustu viku um málefni Gunnars Heiðars. Hann á eitt ár eft- ir af samningi sínum í Svíþjóð og virðist flest benda til þess að hann klári þann samning og fari svo frítt frá félaginu í haust. Eitthvað virðist sem heimfldir íslenskra fjölmiðla og stuðningsmanna Wolves segi ekki sömu söguna því talsvert ber á milli um hver verðmiðinn á Gunnari Heiðari sé. Hugmyndin kom fýrst fram á heimasíðu stuðningsmanna Wolves og er hugmyndin sú að allir stuðningsmenn liðsins sem mæta á leik Wolves og Manchester United í fjórðu umferð ensku bikarkeppn- innar greiði tólf pund í sjóðinn. Það ætti að verða nóg tfl að afla fjárins sem nota ætti tfl að kaupa Gunnar Heiðar. Ef þetta tekst verður um sögulegan viðburð að ræða. „Þetta er algjör snilld," sagði Gunnar Heiðar við DV Sport í gær um þetta mál. „Ég var að lesa þetta í morgun á síðunni þeirra og bara sprakk úr hlátri. Þetta er ótrúlegt," sagði Gunnar sem játti því hvorki né neitaði að Wolves hefllaði hann. „En það er ljóst að það er strax kom- in svaka pressa á mann - þó svo að maður sé ekki búinn að spfla einn leik.“ Nordic Photos/Getty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.