Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 DV Fréttir Blíðan högna vantar heimili Þessi gráhvíti högni fannst í hesthúsahverfinu við Vatns- enda í Kópavogi. Hann hefur verið lengi á flækingi en get- að snapað sér að borða hér og þar. Hann kom í Kattholt þann 19. desember en við nánari skoðun reyndist hann ógeltur og ómerktur. Sigríður í Kattholti segir á vefsíðu sinni að hann eigi skilið að fá gott heimili enda hafi Kattavinafélag ís- lands einmitt verið stofnað á sínum tíma til að aðstoða yfirgefnar kisur og þær sem lendi á vergangi. Hann er falur á gott heimili þar sem vel verður um hann hugsað. Kýr í sundlaug í kuldanum hér heima vildum við gjarnan fá hiýja vinda til að verma okkur svona annað kastið. Þeir sem búa við hlýjuna nærri miðbaug hugsa líklega öndvert við okkur og óska sér stundum ferskrar golu. Líklega hefur hún eitthvað verið að velta fyrir sér ferskum andvara kýrin sem stakk sér til sunds í sundlaug við eina villuna í Brasilíu um daginn. Hún gerði sér irtið fyrir, ruddist út úr girðingunni í hag- anum og hljóp sem leið lá að næsta húsi. Þar stökk hún yfir háa girðinguna í kringum garðinn og lét sig síðan vaða. Eigandi hússins heyrði að heldur betur var buslað í lauginni og trúði ekki sínum eigin augum þegar hann kom út og sá skepnuna njóta þess að kæla sig í sundlauginni hans. Hann brást hratt við og hringdi á slökkviliðið sem kom og bjargaði kýrinni úr lauginni og kom henni til síns heima. Bergljót Davíðsdóttir skrifarum dýrin sín og annarra á þriðjudögum i DV. | NUTRO - 30% AFSLATTUR Þurrfóður fyrir hunda og ketti í hæsta gæðaflokki. Full búð af nýjum vörum. 30% afsl.af öllu. Opið mán. til fös 10 - 18, Laugard. 10 - 16, sunnud. 12-16. TOKYO HJALLAHRAUNI 4 HAFNARFIRÐI SÍIVII 565 8444 Svartrass stökk úr búrinu sínu á leið í gæslu í Kattholti og eigandi hans, Sigurður Jónsson, átti ekki von á að sjá hann aftur á Ljósvallagötunni þar sem þeir búa. Hann ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum þegar Svartrass var það fyrsta sem hann sá þegar hann vaknaði einn morguninn, fimmtiu dögum eftir að hann týndist. Rataði hæinn á enda Aríel Þula bloggar „Sælt veri fólkið nú hef ég stórar fréttir að færa... mamma og fjölskyldan hennar eru bara búin að ákveða að ég verði mamma núna eftir næsta lóðarí jæja mamma hélt uppá ammæl- ið sitt um helgina og Halldóra, Guðrún, Gríma og Anna komu á föstudeginum og svo hinar vin- konur mömmu á laugardegin- um.. Andrea, Díva og Gríma gáfu mér líka pakka : ég fékk svona æðislega fína kápu. En jæja við sjáumst. Hvuttakveðjur Aríel Þula.“ blog.central.is/ariel 17. janúar 2006. Sýningarþjálfun Papillon Pappilondeildin telur að ekki sé ráð nema í tíma tekið og hefur þegar hafið sýningarþjálfun fyrir marssýningu HRFÍ. Þjálíúnin fer fram í bflastæðahúsinu við Fjörð í Hafnarfirði á fimmtudags- kvöldum og er skipt í tvo hópa. Fyrri hópurinn byrjar klukkan 19.30 og stendur til 20.15 en sá síðari hefst klukkan 20.30. Deild- in hefur fengið til liðs við sig Auði Sif Sigurgeirsdóttur, sem á að baki langan feril með ungum sýnendum, hefúr ósjaldan unnið til verðlauna og er nú formaður unga fólksins. Papilloneigendur eru hvattir til að mæta og nýta sér þetta tækifæri. „Ótrúlegt en satt þá rataði Svartrass úr Árbæjarhverfinu þar sem hann týndist og heim til sín vestur í bæ. Það sýnir hve kettir geta verið ratvísir þótt maður viti ekki hvað stjórnar því,“ segir Sigurður Jóhannsson sem býr við Ljósvalla- götuna en hann missti Svartrass frá sér þegar hann var á leið með hann í Kattholt í gæslu fyrir nokkrum mán- uðum. Búrið opnaðist Sigurður þurfti að bregða sér út úr bænum og fór með kettina sína Svartrass og Brand í búri á Hótel Kattholt. Þegar hann tók búrið út úr bflnum opnaðist það og Svartrass sem er mjög styggur hvarf út í busk- ann. „Það upphófst mikil leit að hon- um og ég fékk fregnir af honum en hann náðist ekki hvað sem menn reyndu að laða hann til sín. Ég sá honum bregða fyrir einu sinni en hann gaf ekki færi á sér. Sigríður í Kattholti gerði hvað hún gat en hann lét ekki blekkjast þótt lagðar væru fyrir hann gildrur. Mér leið hörmulega að vita af honum á ver- gangi og óttaðist að hann yrði villtur eða færi sér að voða.“ segir Sigurður. „Jú, það var ekki um að villast, ólin sem er mjög sérstök og ég hafðisettum háls hansvarþar enn og það var sannarlega kappinn sjálfur sem var kominn heím" Kominn heim alla leið vestur í bæ Einn morguninn þegar Sigurður kom fram, lá þá ekid kappinn þar eins og hann hefði aldrei farið neitt og geispaði. Sigurður trúði ekki eigin augum og var í byrjun ekki viss um hvort þetta væri Svartrass sjálfur. „Jú, það var ekki um að villast, ólin sem er mjög sérstök og ég hafði sett um háis hans var þar enn. Brandur tiplaði í kringum hann og malaði á milli þess sem þeir kysstust og hann þefaði af hónum. Það voru fagnað- arfundir og ótrúlegt að sjá hve Brandur var glaður að fá vin sinn til baka,“ útskýrir Sigurður. Ótrúlega mikill félagsskapur af kisunum Sigurður sem er eftirlaunaþegi hef- ur ekki alla ævina verið með ketti. Hann gerði það liins vegar fyrir bama- bömin að taka þá félaga að sér þegar þau komu með þá og fengu ekki að hafa kisur heima hjá sér. „Þeir veita mér mikla ánægju og nú hef ég fengið einn í viðbót, h'tinn kettling. Eg hefði ekki trúað hve þessar kisur veita mér mikinn félagsskap og ánægju," segir hann og mælir með því fyrir alla sem hafa aðstöðu til að fá sér kött til að dekra við. Gæsir eru engir kjánar „Gæsir eru engir kjánar, það sýndi sig fyrir helgi þegar þær þrömmuðu allar sem ein á eftir mér út á strætóstöð," segir Guð- munda Helgadóttir, eftirlaunaþegi sem býr í Kópavogi. Guðmunda býr á annarri hæð í blokk í Smáranum og á túninu á bak við blokkina koma gæsirnar daglega og kroppa í freðna jörðina. Hún hefur því annað slagið fleygt til þeirra brauðmolum og öðru bitastæðu. „Þær hafa tekið því fagnandi og ég hef haft hina mestu ánægju af því að gefa þeim af svöl- unum en ég hef aldrei komið nær þeim. Það var mér því mikið undr- unarefni þegar ég einn daginn fór út og gekk út á strætóstöð, að þær skyldu allar elta mig þangað," seg- ir Guðmunda og hefur enga aðra skýringu á því en að þær hafi þekkt hana. Til að komast að strætisvagna- skýlinu þarf að fara yfir götu sem talsverð umferð er um. Gæsirnar Guðmunda Helgadóttir hefur hænt að sér gæsirnar Þærelta hana þegar hún bregður sér út fyrir en merkilegt nokk þá þekkja þær velgjörðamann sinn. létu umferðina ekki aftra sér held- ur kjöguðu yfir götuna á sínum hraða og stilltu sér síðan upp fyrir framan hana og horfðu á hana hungruðum augum. „Þær voru í mesta lagi metra frá mér, að minnsta kosti tíu, fimmtán saman," segir Guð- munda og hvetur borgarbúa til að gefa fuglunum yfir hörðustu mánuð-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.