Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Page 28
i 28 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 Lífíð DV Dfðrik Jón Krtstófarssor Gerir jafnvæglsæfíngu með alvæpní. Taijutsu «r óvopnaOur bardagi Þar gilda lásar, j{ Ninja verðtir að kunna á boga Dið- rík er lunkinn með bogann elns og önnur vopn. hálstök, spörk og högg. Barist mri og kannt á vopnHérer keðjuslgð á móti sverði. Ninjitsu dugar til flestalls sem kem- urfyrir á lífsleiðinni Ninjitsu er merkileg bardagalist. Hún byggir á speki og lífsstíl ninjanna sem voru goðsagnakenndur persónur í Japan til forna. Diðrik segir að ninjitsu sé að öllu leyti bar- dagalist og að í henni læri einstaklingurinn að nýta möguleika sína í baráttu gegn fjand- skap og illindum af ýmsu tagi með þróaðri bardagatækni. Hann segir einnig að einstak- lingar sem æfi ninjitsu bæti náttúruleg við- brögð sín og auki við skilningarvitin. „Samt sem áður og utan ágætiskunnáttu í margvís- legum fantabrögðum, þá hef ég fremur þá reynslu að ninjitsu dugar til flestaUs sem fýr- ir kemur á lífsleiðinni og ekki einungis gegn illmennsku andstæðinga, heldur við hvaða hættu og/eða óhappi," segir Diðrik enn- fremur. Ninjan er ekki illvirki Ninjur hafa birst okkur Vesturlandabúum í kvikmyndum, bókum og tölvuieikjum, sem blóðþyrstur launmorðingi. Diðrik neitar þessari ímynd og segir að ninjur hafi ekki verið annað en eðlifegt fólk sem notaðist við óhefðbundnar, óeðliiegar og óvinsælar að- ferðir til að komast af á ófriðartímum. „Orð- ið ninja þýðir einfaldlega réttlátt hjarta. Samkvæmt því lærir ninjan að halda stöðugt áfram og gefast aldrei upp þótt margt vegi á móti, heldur finna alltaf nýjar og betri leiðir til þeirra verka er fyrir liggja." Nemendur læra á vopn Diðrik mun kenna nemendum sínum á hnífa, sverð, höggvopn, stafi, barefli, keðju- vopn, launvopn og kastvopn ásamt einhveij- um skotvopnum, til dæmis boga. Engin aí- vörutól verða til staðar fyrst um sinn, en fyr- ir þeim þarf að fá sérstakt leyfi. Þau vopn sem Diðrik mun kenna á eru smíðuð úr gúmmí rauði og timbri, og eru algjörlega hættulaus. Hann segir þó mesta áherslu lagða í taijutsu sem eru óvopnaðar aðferðir líkamslistarinnar. „Það var um miðjan síðasta áratug og við lok BA-gráðu í grafi'skri hönnun í mislukkuð- um skóla á Kýpur, að tækifæri gafst á fram- haldsnámi í myndmennt við Listaakademí- una í Rotterdam. Á þessum tíma stóð ég þeg- ar í bardagalistafikti og hermdi eftir mismun- andi ninja-bókum, rembdist við undarlegar stellingar og hamaðist með flugbeitt ninja- sverð," segir hinn 31 árs gamli Diðrik Jón Kristófersson um upphaf sitt í bardagalistum. Þegar til Rotterdam var komið kynntist Dið- rik hópi fólks sem einnig hcifði áhuga á hinni fornu list ninjitsu. „Eitt leiddi út í annað og fyrr en varði hafði ég sagt skilið við hópinn, hellt mér út í alvöruþjálfun og hafið sémám undir persónulegri leiðsögn vel þekkts kenn- ara hér í Niðurlöndum. Sem stendur er þetta orðið að mikilfenglegri atvinnumennsku og æfi ég stöðugt, sex daga vikunnar," segir Dið- rik sem einnig þjálfar og kennir börnum og fuliorðnum ninjitsu í Rotterdam. Á leiðinni til íslands að kenna ninjitsu Diðrik, sem enn er staddur í Rotterdam, er á leiðinni til íslands að kenna ninjitsu. Laugardaginn 11. febrúar verður haldin sér- stök kynningaræfing í íþróttahúsinu við Ár- túnsskóla og em allir velkomnir. Þáttöku- gjald er 1.500 krónur og greiðist það við hurð. Þetta er í fýrsta skipti sem ninjitsu er kennt á íslandi og er Diðrik bjartsýnn á að listin nái fótfestu hér á landi. „Það tel ég hik- laust enda margt líkt með eyjarskeggjum og góðar horfúr á að víkingaandinn nái að blása í okkur aukinn kraft og vilja." dori@dv.is Diðrik Jón Kristófersson hefur alið manninn 1 Hollandi að undanförnu. Þar hefur hann lagt stund á hina fornu list ninjitsu og má segja að hann sé atvinnu-ninja. Diðrik er á leiðinni heim til íslands þar sem hann ætlar að kenna íslendingum ninjitsu, en þar læra menn með al annars á vopn af ýmsu tagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.