Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 Flass DV Robbie Williams sættist við Poppstjaman umdeilda Robbie Willi- ams sættist við rappmógúlinn 50 Cent eftir að hann vann 50 í keppni um besta alþjóðlega tónlistarmanninn á NRJ- verðlaununum í Cannes í Frakklandi. Söngvarinn breski og 50 senta pening- urinn fóru að rífast á síðasta ári eftir að þeir gistu á sama hóteli í Þýska- landi. Robbie kvartaði undan há- vaða ffá herbergi 50 Cent þegar hann reyndi að sofna. 50 sagði að Robbie hefði aðeins kvartað því hann hefði verið sár yfir að rappar- inn féUst ekki á að hitta hann. I Leikkonan fagra Nicole Kidman er í sjöunda himni yfir áformum um leynilegt brúökaup hennar og söngvarans Keiths Urban en þau hafa verið aö hittast um þó nokkurt skeiö. Þau skötuhjúin halda sig eins og þau geta frá kastljósi fjölmiðla en nú hafa sögusagnir um brúökaup náö til almennings. 'jm % I á-v ■ • Stórleikkonan Nicole Kidman hefur átt stormasamt ástaiíf en hún var lengi gift Tom Cruise, einum af frægustu leikurunum í Hollywood. Skilnaður þeirra var ein stærsta fréttin í slúðurblöðunum á sínum tíma og hefur Nicole átt erfitt með að halda einkalífi sínu utan kastfjóss fjölmiðla allar götur síð- an. Nú er þó svo komið að Nicole hefur loks- ins fundið hamingjuna og hefur leikkonan tilkvnnt nánustu vinum að undirbúningur fyrir brúðkaup hennar og Keiths Urban söngvara sé hafinn. Munu þau láta pússa sig saman í mars á þessu ári og skartar Nicole nú þegar risavöxnum demantshring sem Keith færði henni á jóladag. Nicole flaug nýlega til Nashvilfe í Tenn- essee til þess að hitta foreldra Keiths og leik- konan, sem á tvö ættleidd börn með fyrrver- andi manni sínum Tom Cruise, kynnti fjöl- skyldu sína fyrir foreldrunum. Náinn \inur leikkonunnar sagði í viðtali við bresku pressuna að Nicole væri að fara að gifta sig. „Nicole gengur að eiga Keith í mars. Hún er hamingjusamari en hún hefur nokkru sinni verið á ævinni og hefur ekki áhuga á langri trúiofun. Keith bað herrnar á jóladag og hún er í sjöunda himni/ sagði vinur Nicole. „Hún ætlar aðeins að bjóða nánum vin- um og fjölskyldunni, hún vill engan fjöl- miðlasirkus. Þau eru að ræða staðsetningar og Ástralía er ofarlega á listanum." Nicole og Keith hafa verið aö skjóta sér saman í lengri tíma eftir að vinur kynnti þau í veislu í Los Angeles í janúar á síðasta ári. Á meðan Nicole dansar um af gleði hefur fyrrverandi maður hennar hætt við brúð- kaup sitt og unnustunnar Katie Holmes áður en hún á að eiga barn þeirra í sumar. Heimildarmaður The Sun ítrekar að Nicole sé alls ekki að reyna að slá Tom við í för sinni að altarinu. „Nicole er ekki f neinu kapphfaupi. Hún og Tom eru ákaflega góðir vinir enda eiga þau börn saman. Hún er aðeins mjög ham- ingjusöm og þráir að ganga að eiga Keith. Foreldrar þeirra hittust og vel fór á með þeim. Nicole er gríðarlega spennt." Söngvarinn Keith Urban sem var mikilf uppreisnarseggur á sínum ymgri árum er með stærri nöfnum í tónlistarbransanum í Bandaríkjunum og Ástralíu en þau Nicofe eru einmitt bæði fædd og uppalin f Eyjaálf- unni. Hobbitinn og vonda stelpan trúlofuð Lost-stjörnurnar Dominic Monaghan og Evangeline Lilly hafa tnílofað sig, að sögn vtnar parsins. Dominic er einnig þekktur fyrtr að letka einn af hobbitunum knáu í Hringadróttinssogu- myndunum. Evangeline hefur slegið í gegn sem vonda stelpan Kate í hinni geysmnsælu þattaroð Lost Parið kynntist við tökur á þáttunum. Domin ic er sagður hafa beðið hennar í seinustu viku og að þau séu að undirbúa ferð til Bretiands til að segja fjölskyldu Dominics gleðifréttimar. Ilí m i í r'* Dí G Leikaraparið Mandy Moore og Zach Braff hafa loksins opin- berað samband sitt. Þau gerðu það þegar þau mættu saman á Goiden Globe-verðlaunahátíðina á mánudaginn. Fyrir þá sem ekki þekkja Zach kailinn, þá hefur hann slegið í gegn í þáttun- um Scmbs sem hafa verið sýndir á RÚV. Það er nákvæmlega ár síðan þau fóm að hittast, en þau hafa bæði neitað að staðfesta samabandið fram til þessa. Braff og Moore vom mjög ham- ingjusöm á Golden Globe og sagði Braff spenntur frá væntan- legu gestahlutverki sem Moore mtm leika í þáttunum hans Scmbs. „Mandy er ffábærlega fyndin og ég held að það séu ekki margir sem hafa séð þá hlið af henni, en þetta hlutverk sýnir þá hlið mjög vel,“ segir kærastinn stoltur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.