Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2006, Qupperneq 39
rw Síðast en ekki síst ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 39 Spurning dagsin Býstu við miklu af íslenska landsliðinu í handbolta á EM? Hæfilega bjartsýnn „Ég erhæfilega bjartsýnn. Þetta er hörkuriðill sem þeireru í og ekkert sjálfgefið að komast upp úrhonum." Jónatan Magnússon, leikmaður og fyrirliði KA. „Efþeir vinna fyrsta leik, þá gengurþeim vel. Efþeir tapa fyrsta leik held égaðþeireigi ekki séns." Andri Stefan Guðrúnarson, leikmaður Hauka. , „Ég held að þeir fari upp úr riðlinum, en þeir eru ekki að fara að vinna þettamót." Einar lngi Hrafnsson, leikmaður Aft- ureldingary „Já, ég held að þeir eigi fína möguleika. Allavega topp átta eða topp sex. Þeir munu standa sig." Rakel Dögg Bragadóttir, leik- maður íslenska landsliðsins og Stjörnunnar í handbolta. , „Maður reynirað vera hóf- lega bjartsýnn. Ég ætla að vona aö þeir komist upp úr riðlinum, svo er bara að sjá til." Ágústa Edda Björnsdóttir, leik- maður íslenska landsliðsins og Vals. y Evrópukeppnin í handbolta hefst á fimmtudaginn. (slendingum hefur gengið vel í undirbúningi fyrir mótið, en töpuðu samt sem áður tveimur leikjum gegn Frökkum, nú um helgina. iýndarlýðræði Stm Það vakti athygli mina í þættinum Silfri Egils í dag að Egill Helga- son spurði hvort Qokkseigendafélagið stæði á bak við framboð Bjöms Inga Hrafossonar, aðstoðar- manns forsætisráðherra og for- manns Framsóknarflokksins. Það er ástæða fyrir þessari spurn- ingu þegar að er gáð. Framhj óðandinn er einn nánasti samstarfsmaður formanns flokksins. Þang- að sækir hann pólitískan styrk og áhrif. Yfirlýstir stuðningsmenn hans eru félags- málaráðherra og einn þingmanna flokksins í Norðausturkj ör- dæmi. Þau voru öll þrjú samstarfsmenn á skrif- stofu flokksins á síðasta kjörtímabili og hófu þaðan sókn sína til frama innan flokksins. Meðal annarra yfirlýstra stuðingsmanna Björns Inga eru aUir aðstoðar- menn ráðherra Fram- sóknarflokksins, fyrrver- andi heilbrigðisráðherra og þingmaður Vesturlands, formað- ur fjáröflunarnefndar flokksins og formaður Kjördæmasam- bands framsóknarfélag- anna í Reykjavík norður svo einhverjir séu nefndir. Þetta er yfirþyrmandi sam- ansafn helstu valdamanna flokksins, innan semutan sveitar- félagsins, sem eru að gefa út sinn vflja um það hver eigi að taka við forystusætinu af Alfreð, sem ákvað skyndUega að hætta þvert á fyrri yfirlýsingar. Hvers konar prófkjör er háð við þessar aðstæður? Flokkseig- endafélagið, sem Egill kallar svo, hefur gefið út línuna, það dylst engum. Þeir sem vilja styða aðra frambjóðendur tU forystu í Reykjavík, svo sem Önnu Kristinsdóttur eða Óskar Bergsson, eru settir í þá aðstöðu að ganga gegn vUja valdamikiUa manna í flokknum með stuðningi sinum við þau. Hvað næst? Munu aðstoðarmenn ráðherranna gefa út yfirlýsingu um það hver eigi að leiða flokkinn í öðrum sveitarfélög- um, svo sem á Akureyri eða í ísafjarðarbæ? Hvað svo með alþingiskosningarnar, eigumvið þá von á statement firá aðstoðar- manni forsætisráðherra eða sam- eiginlega frá aðstoðarmönnum ráðherra flokksins um það hver eigi að skipa efstu sæti á lista flokksins í einstökum kjördæmum, t.d. í Norðvestur- kjördæmi? Munu formenn kjör- dæmasambandanna útdeUa stuðningsyfirlýsingum eða ætl- ar alþingismaður Norðaust- urkjördæmis að blanda sér í uppstUlinguna í öðrum kjördæmum, t.d. í Reykja- vík norður? Hér eru menn komnir út fyrir öU eðlUeg mörk. í prófkjöri eiga þátttakendurnir að velja mUli frambjóðenda út frá þeirra eigin verðleikum og forystumennirnir eiga að halda sig tU hlés. Prófkjör t er birtingarform í lýðræðis og menn' eiga að virða val- firelsi kjósend- ans. Sýndarlýð- ræði er eng- um tu gagns. Alþingismaðurinn Kristinn H. Gunnarsson ritar á vef sinn, kristinn.is ,»Oheft ^ neimsvxsu," seq "•sasr áíÍð k KB’b5.kakÍ . 2006. A Löngu áður en ríkið fór að skipta sér af gæðtnn náttúrunnar og deila þeim á milli manna komu fram hugmyndir um frjáls heimsviðskipti. Með því að kenningar kristninnar voru enn við lýði fannst evr- dpskum auðstéttum ástæða til að rétt- læta gerðir sínar með hliðsjðn af því fyrirkomulagi sem guð hafði haft við sköpun heimsins. f henni var ekki allt rétt, hlutunum ranglega skipt á milli manna og heimshluta. Gerðir guðs stóðust ekki heimspekileg rök en ekki þótti við hæfi að lasta hann með ásökun- um um ranglæti af ásettu ráði. Þess vegna þurfti að finna lausn á ójöfiiuðin- um. Hún fólst í frjálsum viðkiptum. Þau voru talin vera náttúruréttur á borð við meðfæddan eignarrétt. Nú var nauðsyn að afnema vemdartolla og hefja heims- viðskipti. Innan skamms náðu þau til kvenna, að koma þeim og böminn í framleiðsluna á réttlætisvörum. Allt var frá guði komið, líka meðferð á fé, bömum og konum. Fyrst nóg var til af hvorutveggja taldi hagfræðingurinn Buret, árið 1840, að tíu konur eða böm gætu unnið álíka mikið og karlmaður en væm betri og ódýrari í spunaverksmiðjum. Vitr- ingar tímans bmtu heilann um fleira. Eitt lá stærðfræðingum þungt á hjarta. Hvers vegna vom postulamir tólf karlmenn þegar auðvelt hefði verið fyrir Jesús að skipta jafnri tölu í tvennt, hafa sex menn og sex K j j konur? En heilabrot í þessum dúr stóðu stutt. Menn hættu að hugsa um postula, konur og böm. Allt fór að snúast um það að verslunarhöft væm brot á lögum um réttlæti á heimsvísu, jafiivel hvað varðar negra og gula menn. Guð hafði auðsæilega ekki tekið viðskipti með í reikn- inginn þegar hann skapaði heiminn. Og þó! Skýringin fannst. Hann hafði skapað rang- lætið svo einkum Bretar og Frakkar fengju tækifæri til að koma á réttlæti „á hinum ýmsu veðursvæðum" eins og það var kallað. Öjafnt eignahlutfall sannaði að guð gaf mannimun frelsi til þess að leiðrétta það með afhámi verndartolla. „Óheft fjárstreymi er bræðralag á heimsvísu," segir í yfirlýsingu Bastiat, frá 10. maí árið 1846, en ekki KB banka 2006. j a.lla.ri Viðtökumvið fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Síminn er 550 5090 10.000.- krónurl’

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.