Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2006, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR I. MARS 2006
Fréttir DV
Bandarískur
lax horfinn
„Náttúruverndarstofn-
anir sem bera hag laxa-
stofna á austurströnd
Bandaríkjanna fyrir brjósti
hafa nú síðustu vikurnar
lýst því yfir að þeir telji að
baráttan fyrir því að vernda
Atlantshafslaxinn
í Maine-fylki sé
að stórum hluta
töpuð," segir á
vefsetri Stanga-
veiðifélags ís-
lands. „Snemma
árs 2001 lýstu
þarlendir vísindamenn því
yfir að þarlendir stofnar
Atíantshafslaxa væru í út-
rýmingarhættu og nú fimm
árum síðar er barátta sem
kostað hefur skattgreiðend-
ur um tuttugu milijónir
bandaríkjadollara talin
nánast töpuð."
Ákvörðun frá
Alcoa í dag
Álfyrirtækið Alcoa mun
gefa frá sér yfirlýsingu í dag
varðandi áhuga fyrirtækis-
ins á áframahaldandi skoð-
un á álversframkvæmdum
á Norðurlandi, auk þess að
lýsa yfir ákvörðun um stað-
arval þar sem Akureyri,
Húsavík og
Skagafjörður
hafa verið til
skoðunar. Gera
má ráð fyrir því
að Alcoa haldi
öllum mögu-
leikum opnum í yfirlýsingu
sinni og lýsi yfir áhuga á því
að fara lengra í undirbún-
ingsvinnu á mögulegum ál-
versframkvæmdum. Ljóst
er að mikill hvati er til fjár-
festinga í áliðnaði enda er
heimsmarkaðsverð á áli í
hæstu hæðum, en það hef-
ur t.a.m. hækkað um 1000
dollara frá byrjun árs 2002
eða um 72%. Greining KB
banka segir frá.
„Það liggur á að jafna réttar-
stöðu ............... __
Hvað liggur á?
hneigðra og gagnkynhneigðra á
Islandi/'segir Hrafnkell Tjörvi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Samtak-anna ‘78.„En það stefnir
allt I rétta átt. Annars liggur mér
á núna að komast I bankann
fyrir lokun."
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
(ÍÁR^\
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
upp á sig. Grunur leikur á að þeir séu þátttakendur í umfangs
mikilli framleiðslu amfetamíns hér á landi. Talið er að frum-
vinnsla efnanna fari fram í Litháen en amfetamínið sé svo
fullunnið hér á landi. Heildarverðmæti efnnanna sem lög-
reglan hefur lagt hald á í málinu undanfarnar vikur er
um 50 milljónir króna.
I Lundurí Kópavogi
Hér fann lögreglan enn
meira af amfetatamini i
fljótandi formi.
Lögreglan í Reykjavík hefur færst enn nær því að upplýsa lit-
háíska smyglmálið sem verið hefur í rannsókn síðustu vikur.
Nú fyrir skömmu fundust tvær flöskur til viðbótar við þær
sem gerðar voru upptækar á Keflavíkurflugvelh í í byrjun
mánaðarins. Samanlagt virði efnanna sem lögregla hefur
lagt hald á er áætlað um fimmtíu milljónir króna. Það gerir
málið eitt það stærsta sinnar tegundar á íslandi.
Litháísk mafía á íslandi
Fíkniefnalögreglan rannsakar
nú hvort um skipulagða neðan-
jarðarstarfsemi á dreifmgu am-
fetamíns á íslandi sé að ræða og
hvort mikið magn þess komi frá
Litháen. Hafa nú þegar verið
handteknir nokkrir einstaklingar
frá Litháen sem tengjast inn-
flutningi og fram-
leiðslu á am-
/ fetamíni hér á
/ landi. Hugsanlega
/ gæti verið um að
/ ræða litháíska mafíu
/ eins og DV greindi frá
/ síðastíiðinn mánudag.
/ Gæsluvarðhaldsúr- •
____ . skurðurinn yfir Arvydas
i morgun,
Samkvæmt
Lögreglan komst á snoðir um
málið þega Saulíus Prúsinskas var
handtekinn á Keflavikurflugvelli
snemma í febrúar með 1,5 lítra af
hreinu amfetamíni í vökvaformi.
Skömmu síðar handtók lögreglan
Arvydas Maciulskis, annan Litháa
sem búsettur er í Kópavogi, en
hann er talinn tengjast smyglinu.
Báðir voru þeir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald.
I kjölfar gæsluvarðhaldsúr-
skurðarins var gerð húsleit hjá
Arvydas. Kona hans, Daiva, var svo
úrskurðuð í farbann. Ekkert mark-
vert fannst við húsleitina. En lög-
reglan gafst ekki upp og við aðra
húsleit nú fyrir skömmu komu í
leitirnar tvær nýjar flöskur af fljót-
andi amfetamíni, svipaðar þeim
sem Saulíus var tekinn með í
byrjun mánaðarins.
Tíu kíló af amfetamíni
Það magn af fljótandi
amfetamíni sem lög-
reglan hefur gert upp-
tækt í málinu hefði
við eðlilega með-
ferð getað orðið
að um tíu kíló- ------------
um af am-
fetamíni í und
irheimum
Reykjavíkur.
Samkvæmt heimildum i
DV er markaðsverð á hverju
grammi um 5 þúsund krónur
þannig að söluandvirði efnisins
hefði orðið um 50 milljónir ís-
lenskra króna.
Amfetamín
Heildarandvirði efnanna
talið um 50 milljónir.
Tomas Malakauskas
Talinn tengjast lithálsku
mafíunni.
Mál Litháanna Sauiíus Prúsinskas og Arvydas Maciulskis vindur enn
Einar S. Jónsson telur að verðbólan á fasteignamarkaðinum muni springa
Fasteignamarkaðurinn hrynur eftir þrjú ár
Einar S. Jónsson fasteignamats-
maður telur að verðbólan á fast-
eignamarkaðinum muni springa á
næstu árum og verð á íbúðum
hrynja í kjölfarið. „Þetta gerist eins
og þegar snjóbolti rúllar niður
brekku, hægt og rólega fyrst en síð-
an með auknum hraða," segir Ein-
ar. „Að mínu mati mun markaður-
inn svo hrynja eftir um þrjú ár og
verð á íbúðum þá verða allt að
helmingi lægra en það er nú."
Einar segir að fasteignasalar
hafi mokað út íbúðum á undan-
förnum tveimur árum í skjóli
bankanna og þannig haldið uppi
háu íbúðaverði. Nú séu hins vegar
öll teikn á lofti um að íbúðaverð sé
á niðurleið. „Ráðstöfunartekjur al-
mennings standa ekki lengur und-
ir því verði sem er á íbúðum í dag
og því munu kröfur á hendur
stjórnvalda og atvinnurekenda um
hærri laun aukast á næstu árum
umfram það sem þyrfti að vera.
Þess ber líka að geta að fjöldi kaup-
enda lendir í því að gera ekki ráð
fyrir viðgerða- og viðhaldskostnaði
við eignir sínar sem eykur enn
meira á fjárhagsvanda þeirra."
Á vefsíðu Félags fasteignasala
kemur fram að reiknað sé með að í
ár muni draga úr hækkunum á
fasteignaverði frá því verið hefur
síðastliðin tvö ár. Á árinu 2005
hækkaði íbúðaverð á höfuðborgar-
svæðinu um 31% en hækkunin á
árinu 2004 var 23,3%. „Nokkuð
hefur þó dregið úr hækkunum og
má búast við mun minni hækkun-
um á árinu 2006,“ segir á vefsíð-
unni. Telur félagið að komið sé
ágætisjafnvægi á fasteignamarkað-
inn.