Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2006, Qupperneq 39
DV Síöast en ekki síst
MIÐVIKUDAGUR I. MARS 2006 39
Spurning dag
Fylgdist þú með vetrar-
ólympíuleikunum?
Reyndi að fylgjast með
Norðmönnum
„Ég reyndi að fylgjast með mínum mönn-
um, Norðmönnum, en því miðurgekk
þeim ekki nógu vel."
Inger Helene Bóasson Ijósmyndari.
r „Ég
verð að segja
eins og er að ég
fylgdist ekkert
með þeim."
Benedikt
Haraldsson
j^iifvélavirki^
„Nei, ég
er ekki hlynntur
iþróttum afþessu
tagi."
Atli Rúnar Ósk-
arsson pípari.
Milljónir fylgdust með vetrarólympíuleikunum ÍTórfnó sem eru nýafstaðnir.
Beztu fjölmiðlarnir
Bandarísk dagblöð
eru beztu fjölmiölar í
heimí. Þau ein stunda
rannsóknir í einhverj-
um mæli og hafa skil-
ið eftir sig slóð sigra,
Watergate, Pentagon
Papers, Iran-Contra og
svo framvegis. Ekkert
hliðstætt þekkist í Evr-
ópu. Bandarísku blöðin
glíma að vísu við bann-
helgi á sumum sviðum, eiga
erfitt með að gagnrýna banda-
rísk stríð og trúarsamfélög, en
þau eru ekki lömuð af bannhelgi
á nafnbirtingum og stórum
fyrirsögnum, sem ríkir
hér á landi. Að grunni
hvílir geta dagblaðanna
á mjög góðri menntun í
blaðamennsku, en ekki
í loðinni fjölmiðlafræði,
sem tíðkast hér á landi.
Bandarískar reglur
Beztu bandarísku blöðin hafa
flest umboðsmann lesenda og
eigin siðareglur, sem eru ólíkar
þvi, sem við þekkjum hér á
landi. Andinn í bandarísk-
um siðareglum fjöl-
miðla er: Sannleikur-
inn = góður vilji + mik-
il vinna = staðfestingar
+ staðfestingar + stað-
festingar. Sannleikurinn
er torsóttur og flókinn, en
menn komast næst honum með
góðum vilja og mikilli vinnu,
eins og Bernstein og Woodward
sýndu í Watergate. Allt næst
þetta fyrst og fremst með enda-
lausri röð af staðfestingum.
Hér á landi fela siðareglur
blaðamanna í sér þægilegt
boðorð letinnar: Oft má
satt kyrrt liggja.
Fullir stúdentar
David Mindich prófessor í
blaðamennsku skrifar um sam-
skipti við nemendur út af því, að
löggan handtók þá fyrir ölvun og
uppistand á almannafæri. Nöfn-
Mi
in birtust í staðar-
blaðinu að banda-
rískri venju. Það
þótti þeim afleitt,
rétt eins og stúdent-
um mundi finnast hér. Mind-
ich lýsir tilraunum sínum til
að segja þeim, að nafnbirt-
ing sé eðlileg, til dæmis svo
að öðruni stúdentum sé ekki
kennt um fylleríið.
Auk þess sé nafn-
birting hluti af
staðfestingum
lífsins, hluti af for-
múlunni: Hver
gerði hvað, hvar,
hvenær, hvernig, hvers
vegna og hvað svo. Hann
segist þó ekki hafa sann-
fært nemendurna.
Rétttrúnaður
Siðanefnd þriggja lög-
manna hefur svipt
Ken Livingstone
embætti borgar-
stjóra í London í
fjórar vikur og
dæmt hann í tíu
milljón króna máls-
kostnað fyrir óviðurkvæmi-
leg ummæli um gyðing.
Löglega kjörinn stjórn-
málamaður er sviptur
embætti tímabundið fyrir
skoðanir. Brezki sagn-
fræðingurinn David
Irving var dæmdur
í Austurríki í
þriggja ára fang-
elsi fyrir efasemdir
um helför gyðinga í
síðari heimsstyrjöld-
inni. í báðum tilvikum hef-
ur félagslegur
rétttrúnaður
farið út í öfg-l
ar. Fáránlegt1
er að taka|
meinta vellíðan.
fólks og trúar-
flokka fram
yfir mál-
frelsi.
Jónas Kristjánsson skrifar á jonas.is
Það er eitthvað sem gerir mig alveg undna af aum-
ingjahrolli þegar ég verð vitni að því að fólk skjallar lág-
launavinnu sína með því að hún sé þó allavega góð lík-
amsrækt. Um leið og mér finnst ég heyra
hlátrasköllin í launagreiðendum finnst mér
ég líka verða vör við ægilegan dyn undir ilj-
unum um leið og Gvendur jaki og Aðal-
heiður Bjarnfreðs snúa sér við í gröfum
sínum og horfa undan þungum brúnum
sínum á okkur hér sem förum svona hall-
ærislega með alla þeirra baráttu fyrir rétti
verkafólks. Eða er þjóðin búin að gleyma
þeim? En nú eru greinilega aðrir tímar
þegar hægt er að auglýsa eftir fólki í vinw i
sem rétt slefar yfir hundrað þúsund
kallinn á mánuði, með því að benda
á að eitt það jákvæðasta við harkið
sé að í því sé fólgin holl hreyfing,
og ég veit fyrir víst að innan
Póstsins er líka megrunarsam-
keppni meðal starfsfólks.
Hvað hefur eiginlega komið
fyrir þjóðina okkar? Ekki
það að þrælslundina hafi
skort í gegnum tíðina, en
að hún skuli vera orðin
svona innilega hégóm-
leg að heilbrigð stétta-
vitund er flogin fvr-
lr asekn í Eetray*
utlit.« x
meðvitund
er flogin fyrir ásókn
í betra útlit, sem alls ekki er hægt að
öðlast fyrir víst þó svo vel sé tekið á því.
Kannski er fólk einmitt óþægilega likt fyrir-
bærinu sem hefur millinafnið Nótt og benti á það í þætti
hjá Sirrý að það væri allt lagi þó svo að einhverjir sem
svelta og svona komi í sjónvarpið, ef þau gætu bara litið
huggulegar út og þess vegna betra að við sendum þeim
fallegar tuskur til að deyja úr hungri í heldur en eitthvað
annað. Er það kannski þannig að flestir sem vinna verka-
mannavinnuna hér á landi séu af erlendu bergi brotn-
ir og ekki ennþá búnir að ná utanum þetta ægilega
orð á íslensku: mannréttindi?
Afhverju ætli launabarátta sé orðið svo pirr-
ndi umræðuefni á meðal fólks að það er allt
að því vonlaust að vekja máls á henni án
þess að verða brigslað um leiðindi og nei-
kvæðni sem fari manni bara alls ekki... mar
náttúrulega svo grannur og penn. Og
manni skilst svo á fólki að ástæðan fyrir
akfeitum fátæklingum sé mataræðið, sem
einkennist af lélegu, ódýru fæði. Vonandi
verður hégómagrindin þá það vogarafl í
baráttunni fyrir bættum lífskjörum að
hinir verst settu geti haft efni á því að
fara í megrun!
1
Didda
fRÉTTASÍW^V
SEFUR ALDREI
Viðtökum við
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir hesta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrarnafnleyndar
er gætt.
Síminn er
«: j ð|?2'^ 2oy'i ?rotr‘r> *h<