Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
Fréttir DV
24 stoppaðir
á 5 tímum
Lögreglan í Hafnarfirði
stoppaði 24 ökumenn fyrir
of hraðann akstur á tíma-
bilinu 19.00 til 24.00 síð-
astliðið þriðjudagskvöld.
Segir lögreglan að óvenju-
mikið sé um að ökumenn
keyri of hratt og segir
ástæðuna vera fyrst og
fremst betri akstursskilyrði
og aukna birtu. Segir lög-
reglan að ökumenn þurfi
að vera meðvitaðri um há-
markshraða á hverjum
stað og virða hann svo
þeirra lífi og annarra sé
ekki stofnað í hættu.
Svifryk hátt
yfir hættu-
mörkum
Svifryk mældist hátt
yfir heilsuvemdarmörk-
um í Reykjavík í gær,
annan daginn í röð. Búist
er við stilltu veðri áfram
og þess vegna er útlit fyr-
ir að magn svifryks í and-
rúmslofti geú áfram orð-
ið yfir heilsuverndar-
mörkum. Umhverfissvið
Reykjavíkurborgar vekur
athygli á að hyggilegt er
fyrir þá sem viðkvæmir
eru í öndunarfærum að
halda sig fjarri fjölfömum
umferðargötum. Ef vind-
ur eykst em líkur á að
ástandið lagist.
Tekjulágirfái
skattalækkun
Elli- og örorkulífeyris-
þegar í Skagafirði eiga von
á því að fá afslátt af fast-
eignasköttum. „í ljósi þess
að fasteignamat hefur
hækkað verulega og ljóst að
hækkunin er íþyngjandi
fyrir marga elli- og örorku-
h'feyrisþega, leggur undir-
ritaður til að fjármálasviði
verið falið að meta kostnað
við að hækka afslátt af fast-
eignaskatti til elli- og ör-
orkulffeyrisþega til að
mæta hækkun á fasteigna-
mati," sagði í tillögu Gunn-
ars Braga Sveinssonar sem
byggðaráð samþykkti á
þriðjudag að fela fjármáia-
sviði að útfæra.
Rúmlega tvítugur íslendingur og 26 ára Norðmaður létu af störfum hjá Sæplasti í
Álasundi í Noregi eftir að þeir mættu á næturvaktina í síðustu viku klæddir í Ku
Klux Klan-kuíla og með Suðurríkjafánann í höndunum. Ari Jósefsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts í Noregi, segir að mörgum lituðum starfsmönnum þeirra
hafi brugðið við þessa uppákomu.
Mörgum lituðum starfsmönnum Sæplasts í Noregi brá illilega í
brún þegar tveir samstarfsmenn þeirra, annar íslenskur, klæddu
sig í heimatilbúna Ku Klux Klan-kufla er þeir komu til vinnu á
næturvakt. Mennirnir tveir hafa beðið allt samstarfsfólk sitt af-
sökunar á athæfinu.
Rúmlega tvítugur íslendingur
og 26 ára Norðmaður létu af störf-
um hjá Sæplasti íÁlasundi í Noregi
eftir að þeir mættu á næturvaktina
aðfaranótt fimmtudagsins í síð-
ustu viku klæddir í Ku Klux Klan-
kufla með Suðurríkjafánann í
höndunum. Ari Jósefsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts í Noregi,
segir að mörgum lituðum starfs-
mönnum þeirra hafi brugðið við
þessa uppákomu af skiljanlegum
ástæðum. „Við erum með starfs-
fólk hjá okkur frá öllum heimsálf-
um og nýbúa hér á staðnum," seg-
ir Ari. „Mennirnir tveir meintu
þessa uppákomu sem grín og glens
en það féll skiljanlega í grýttan
jarðveg hjá samstarfsfólki þeirra."
Tóku afleiðingum gerða
sinna
Ari segir að daginn eftir þessa
uppákomu hafi mennimir tveir tek-
ið afleiðingum gerða sinna og látið
af störfum hjá fyrirtækinu. „Við líð-
um ekki svona uppákomur hjá okk-
ur og síðan hafa mennimir komið
og beðið alla samstarfsmenn sína
afsökunar," segir hann. „Þessi menn
hafa starfað hjá okkur um nokkum
tíma og ég þekki þá að góðu einu.
Það liggur fyrir að þeir meintu ekk-
ert illt með þessu athæfi sínu."
Hræddir starfsmenn
Norska blaðið Sunnmörsposten
fjallaði um þetta mál og þar kom
meðal annars fram að nokkrir
Norska blaðið Sunn-
mörsposten fjallaði
um þetta mál og þar
kom meðal annars
fram að nokkrir starfs-
mannanna hefðu orð-
ið hræddir er mennirn-
ir tveir gengu inn á
vinnustaðinn í framan-
greindri múnderingu.
starfsmannanna hefðu orðið
hræddir er mennirnir tveir gengu
inn á vinnustaðinn í framan-
greindri múnderingu. Blaðið
ræddi við hinn 26 ára norska
starfsmann sem sagði að þeir
hefðu ekki meint neitt illt með
þessu heldur hefði þetta verið lé-
legur brandari af þeirra hálfu.
Ekki hefði verið um eiginlega Ku
Klux Klan-kufla að ræða heldur
sængurlök sem þeir klipptu göt á
fyrir augun. Sá norski sagði enn-
fremur að ekki hefði verið um
kynþáttahatur að ræða heldur
hefði þetta átt að vera kaldhæðni
hjá þeim. Sjálfur ætti hann mikið
af dökklituðum vinum og hefði
ekki nema gott eitt að segja um
fólk af öðrum kynþáttum.
Súpertríó á almanakinu
Þegar sól hækkar á lofti og dag
lengir fer fiðringur um Svarthöfða.
Ekki vegna birtunnar og væntan-
legs vors, heldur vegna þess að þá
renna upp þeir dagar þrír sem eru
Svarthöfða kærastir: bolludagur,
sprengidagur og öskudagur.
Súpertríóið á almanakinu.
Aldrei líður Svarthöfða betur
en þessa daga. Á bolludaginn
byrjar Svarthöfði alltaf á því að fá
sér rúsínubollur með morgunkaff-
inu. í hádeginu eru það svo fiski-
bollur og rjómabollur með síð-
degiskaffinu. Á kvöldin steikir
Svarthöfði kjötbollur og endar
Wf-.> 1
Svarthöfði
daginn með Mozartkúlum sem
minna mjög á bollur þó smáar
séu.
Sprengidagurinn er svo kafli út
af fyrir sig. Saltkjöt og baunir er
þrumuréttur sem ekki er á borð-
um aðra daga ársins. Enda ekki
hægt að sprengja sig oft á slíkum
saltskammti. Gæti verið lífshættu-
legt.
Og öskudagurinn. Það er sá
rómantfski. Þá flýtir Svarthöfði sér
alltaf heim úr vinnunni venju
Hvernig hefur þú það'
£ sj * s ,s & *
„Ég hefþað alltaf nokkuð gott sem betur fer,“segir Einar S. Jónsson fastélgnamats-
maður.„Það þýðir ekkert að væla, þaö hlustar hvort eð er enginn ámann. Anríflts !æt-
urmaður daginn bara llða áfram með slnum vanagangi og vaninn er það sem heldur
llfinugóöu.“
fremur þar sem Svarthöfða
bíður í grímubúningnum.
Yfirleitt er hún klædd sem
hjúkrunarkona. Svarthöfði
fer þá í lögreglubúning sem
hann keypti í Ameríku fyrir
mörgum árum, með kylfu,
byssu, handjárn og maze-
úða.
Svo byrjar ballið. Svart-
höfði og Svarthöfða syngja
fyrir hvort annað og dansa
um allt í búningunum eins
og börn væru. Gaman að
leika hjúkku og löggu bak
við luktar dyr og þykk
gluggatjöldin. Valentínusar-
dagurinn verður sem hjóm
eitt samanborið við ösku-
daginn á heimili Svart-
höfða.
Mættum við eiga fleiri
svona daga.
Svarthöfði