Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
Fréttir DV
—
Krst -■*
Flestir mættu
í Öræfum
Nær allir íbúar í öræfum
mættu á almennan fund á
mánudagskvöld að því er
homafjordur.is hefur efdr
Emi Bergssyni á Hofi. Það
var bæjarstjóm Homafjarð-
ar sem boðaði til fundarins.
„Það hvessti mjög á köflum
og menn sögðu sína mein-
ingu," sagði öm. Deilt er
um færslu á þjóðvegi eitt og
skólamál. „Margar brýr hér í
öræfum em að verða ónýt-
ar,“ sagði öm. Vandamál
em í skólahaldi vegna fá-
mennis í öræfum.
Síminn með
góðan hagnað
Síminn hf. birti í gær-
morgun helstu niðurstöður
úr ársuppgjöri 2005 en þar
kemur fram að hagnaður fé-
lagsins nam 4 milljörðum
króna en hann jókst um 30%
frá árinu 2004. Rekstrartekj-
ur jukust um tæplega 8%
milli ára, námu 22 milljörð-
um kr. samanborið við 20,4
milljarða árið áður. Heildar-
eignir félagsins námu í árs-
lok 83,3 milljörðum og eigið
fé nam 32,8 milljörðum og
var eiginfjárhlutfaiiið því
39%. Arðsemi eigin fjár var
19,6% samanborið við 21,1%
árið 2004. Greining íslands-
banka segir frá.
Álver
á Húsavúc?
Axel Haraldsson,
trommari I Búdrýgindum.
„Ég held að það sé komið nóg
afþessum álverum. Viö verð-
um að passa að við fórnum
ekki öllu fyrir álverin. Var ekki
verið að reyna að hefja krókó-
dílaeldi á Húsavlk? Mér finnst
það flottari hugmynd. Annars
er ég Iftið inni I þessum mál-
um. Þetta snýst ekkert endi-
lega um staðsetninguna,
þetta snýst um álverin, fjölda
þeirra og mengun.“
Hann segir / Hún segir
„Ég þarfalltafdálítið langan
tlma til umhugsunar um
svona hluti en hefekki kynnt
mérþetta nógu vel. Ég verð að
skoða það frá öllum hliöum
eins og hægt er. Ég spái rosa-
lega mikið f þessu og það get-
ur tekið mig mörg ár að kom-
ast að niðurstöðu en ég skipti
stundum um skoöun á
tveggja daga fresti.“
Gabríela Friðriksdóttir
listakona.
Guðni Steinar Snæbjörnsson er ákærður fyrir að ræna 14 ára stúlku í Burnley á
Englandi. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi. Réttarhöldin hefjast eftir mánuð. Faðir
Guðna, SnæbjörnTr. Guðnason, segir málið koma á óvart. NickCassady, lögfræð-
ingur Guðna, segir að hann neiti öllum ásökunum. Hann segir að réttarhöldin geti
tekið töluverðan tíma.
Snæbjörn Tr. Guðnason
Faðir Guðna Steinars segir
aö málið komi öllum á óvart.
Ungup maður í
gæsluvarðheldi
fyrir að ræna
Guðni Steinar Snæbjörnsson, 23 ára Reykvíkingur, situr í gæslu-
varðhaldi í Burnley á Englandi vegna mannráns á fjórtán ára
stúlku sem býr í bænum. Guðni Steinar er sagður hafa hitt stúlk-
una á netinu og farið í kjölfarið til Burnley til þess að hitta hana.
Samkvæmt lögreglunni hittust þau á milli 19. febrúar og 22.
febrúar en hann var handtekinn síðdegis þann 22. febrúar.
Guðni Steinar þekkti engan annan í bænum nema stúlkuna.
„Það voru engin kynferðisleg
tengsl á milli þeirra," segir Damian
Darcy rannsóknarlögreglumaður
sem fer með rannsókn málsins.
Hann segir að svo virðist sem stúlk-
an hafi hitt Guðna Steinar sjálfviljug.
í Bretlandi gilda ströng lög um ung-
menni sem eru yngri en 16 ára og
var Guðni Steinar ákærður sjálfkrafa
af lögreglustjóra fyrir mannrán. Þau
hittust í öll skiptin á Burnley Hotel
sem er í bænum. Damian Darcy sér
ástæðu í viðtali við Burnley News til
að vara foreldra við og biðja þá um
að fylgjast með netnotkun barna
sinna vegna málsins.
Sannleikurinn mun koma
í Ijós
„Þetta er er öðruvísi en þetta lítur
út fýrir að vera,“ segir Snæbjörn Tr.
„Það voru engin kyn-
ferðisleg tengsl á milli
þeirra"
Guðnason, faðir Guðna Steinars,
áhyggjufuiiur. Hann hefur hvorki
talað við, né hitt, son sinn síðan
málið komst upp. Hann segir að
mikið af málsatvikum eigi eftir að
skýrast og sannleikurinn muni
koma í ljós í máli sonar síns. Hann
segir að Guðni hafi aldrei áður kom-
ist í kast við lögin og því sé málið af-
skaplega undarlegt. Snæbjörn segir
að fjölskyldan viti iítið um málið enn
sem komið er og ekki sé ákveðið
hvort hann fari sjálfur út til Guðna
en fjölskyldan sé með áhyggjur af
honum.
* mt
Hotel Burnley Guðni Steinar
hitti stúlkuna f öll skiptin á hót
elinu þar sem hann gisti.
Kemur á óvart
„Hann hefur ekki farið þarna út á
öðrum forsendum en að þetta væri
rétt og í lagi. Annað kemur okkur öll-
um á óvart - bæði honum og okkur,"
segir Snæbjörn aðspurður hvort
Guðni hafi haft einhverja hugmynd
um aldur stúlkunnar áður en hann
fór út að hitta hana. Snæbjörn ítrek-
ar að það séu klárlega tvær hiiðar á
málinu eins og öllum öðrum og að
menn séu saklausir uns sekt þeirra
er sönnuð.
Mánuður í réttarhöldin
„Hann neitar öllum ásökunum,"
segir Nick Cassady, lögmaður
Guðna Steinars. Hann segir að það
eigi eftir að athuga hvort mögulegt
sé að koma Guðna úr gæsluvarð-
haldinu. í dag mun mál hans verða
reifað fyrir dómstólum en ekki er
nauðsynlegt fyrir Guðna að mæta,
Cassady segir þetta formsatriði áður
en farið er í aðalmeðferð málsins.
Guðni þarf að sitja inni í töluverðan
tíma því mál hans verður ekki tekið
aftur fyrir fyrr en 3. apríl. Cassady
segir að það megi búast við því að
réttarhöldin taki töluverðan tíma. Ef
Guðni verður sakfelldur má hann
búast við fangelsisdómi allt að sjö
árum.
valur@dv.is
Skrifstofufólk borgarstjórans borgar sjálft fræðsluferð til Skotlands
Ætla út að borða á hræðilegum veitingastað
„Við borgum sjálf ferð-
ir, gistingu og uppihald.
Það er ekki verið að veita
neinar sporslur hér," segir
Hulda Gunnarsdóttir,
kynningarfulltrúi á skrif-
stofu borgarstjórans í
Reykjavík, um Skotlands-
ferð fimmtán starfsmanna
skrifstofunnar sem hófst
semma í morgun.
Þótt starfsmennfrnir
greiði sjálfir fyrir ferðalag-
ið, reyndar að hluta til
með aðstoð síns stéttarfé-
lags, halda þeir þó launum
sínum í dag og á morgun, þar sem
ferðin er farin í fræðsluskyni. Þau
verða ytra fram á sunnudag og ætla
að heimsækja starfssystkin sín í Glas-
gow og Edinborg og skiptast á upp-
lýsingum um ýmislegt í rekstri borg-
anna. Fræðsludagskránni lýkur á
Hulda Gunnarsdóttir
Kynningarfulltrúinn fer
með samstarfsmönnum
á skrifstofunni f fræðslu-
ferð til Glasgow og Edin-
borgar.
föstudeginum. Þá um
kvöldið ætla íslending-
amar saman út að borða á
veitingastaðinn Stravaig-
in. Ef marka umsagnir á
vefhum glasgowgodin-
ing.co.uk um þann stað
verður það ekki ánægju-
leg heimsókn:
,Afar, afar slæmt. Far-
ið eitthvert annað," segir
gagnrýnandi glasgowgod-
ining.co.uk um Stravaig-
in.
Og undir þetta tekur
maður að nafni Colin
Clark sem skrifar athugasemd inn á
vefinn. Segir hann allt hafa verið
meira og minna hörmulegt á Stra-
vaigin; þjónustufólkið verið snobbað
og latt. „Þau reyndu meira að segja að
rukka okkur fyrir vínflösku sem við
drukkum ekki," segir Colin og mælir
með því að veitingahúsagestir snúi
sér annað.
Kona að nafni Rhona Johnston
tjáir sig einnig um málið og tekur alls
ekki í sama streng. Segist hafa verið á
Stravaigin fyrir fáeinum árum. Mat-
urinn og þjónustan hafi þá verið frá-
bær. „Kannski örlítið dýrari en með-
altalið en örugglega þess virði," segir
Rhona.
Tekið skal ffarn að Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri verður
ekki með í ferðinni til Skotlands því
hún er á skíðum í Hvíta-
fjalli í Guðbrandsdal
íNoregi.
Steinunn Valdís Óskars-
dóttir Borgarstjórinn erá r
skíðum i Guðbrandsda! og 1
missir afSkotlandsferð. I*
Stravaigin Borgarstarfs-
menn verða á veitinga-
staðnum Stravaigin ann-
að kvöld. Staðurinn eröm-
urlegur efmarka má veit-
ingahúsarýni.