Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Page 14
74 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
Fréttir DV
Tinni Sveinsson
• Sagt er að Þórhall-
ur Guðmundsson
miðill hafi tilkynnt í
þætti sínum Lífsaug-
að á þriðjudagskvöld
að hann hefði verið
tekinn af dagskrá
Bylgjunnar. Finnst
þar mörgum skarð fyrir skildi að geta
ekki lengur gengið að því að geta
skyggnst reglulega með Þórhalli inn í
huliðsheima framliðinna ættingja.
Verra flnnst þó sumum að nú verði
enn eina ferðina að breyta nafni
móðurfélags Bylgjunnar sem eftir-
leiðis heiti þá 364 miðlar...
• Hinir íjölmörgu félagar og vinir
Erps Eyvindarsonar fylgjast þessa
dagana spenntir
með ferðum hans og
kærustunnar Elvu
Bjarkar Barkardóttur
um hin ýmsu lönd
Suðaustur-Asíu. Erp-
ur er duglegur að
senda skilaboð á
netinu og lendir í ýmsum ævintýr-
um. Þó stendur upp úr þegar parið
fór á slóðir Víetkong í Víetnam. Þar
fékk Erpur að handleika AK-47 og
dáðist sérstaklega að leiðsögu-
manninum, sem hann sagði geta
hlaðið gripinn með tánum, stand-
andi á haus...
• Þær fregnir berast úr Borgarleik-
húsinu að setja eigi á svið breska
farsann Funny Money í leikstjóm
Þórs Tulinius. Þetta er breyting á
verkefnaskránni, sem kynnt var í
byrjun vetrar. Líkleg ástæða er að
aðsóknin gangi ekki
sem skyldi og hysja
þurfi upp reikning-
inn. Lítið hefur verið
um farsa á fjölunum
í vetur en nú stefnir
í farsafár á vormán-
uðum. Þjóðleikhús-
ið er einnig að undirbúa Átta konur,
sakamálafarsa með söngvum, í leik-
stjórn Eddu Heiðrúnar...
• Annars stefnir í eina líflegustu
helgi í manna minnum í Þjóðleik-
húsinu. Á morgun frumsýnir Þór-
hildur Þorleifsdóttir Virkjunina á
Stóra sviðinu. Á laugardaginn verð-
ur síðan blásið til heljarinnar veislu
þegar Kassinn, nýja leikrýmið við
Lindargötuna, verður vígður með
fmmsýningu Péturs
Gauts í leikstjórn
Baltasars Kormáks.
Engu er til sparað
við uppsetninguna,
enda styrkir
Björgólfur Guð-
mundsson og
Landsbankinn Kassann. Bankinn
ætlar líka að splæsa veitingum á
laugardaginn og hugsa gestir sér því
gott til glóðarinnar...
• Eftir slétta viku fer gamanþáttur-
inn Sigtið í loftið á Skjá einum. Um-
sjónarmaður Sigtis-
ins heitir Frímann
Gunnarsson og leik-
ur Gunnar Hansson
hann. Þættirnir
skarta einnig Hall-
dóri Gylfasyni og
Friðriki Friðrikssyni.
Frímann umsjónarmaður er mikið
ólfkindatól. Fyrsti þátturinn á til
dæmis að fjalla um matargerð en
þegar hann prófar nýja tegund af
kjötbollum, sem heita kjötkúlur, og
kafnar næstum því fær hann hug-
ljómun og gerir dramatískan þátt
um dauðann og trúna...
íbúar á Vesturgötu 16 mótmæla áformum um nýbyggingu á Vesturgötu 18. Þau
Kristín Nanna Vilhelmsdóttir, Jón Geir Jóhannsson og Sigríður Guðmundsdóttir
segja aö úr nýja húsinu fái fjöldi manns beinan aðgang að einkalífi þeirra inn um
gluggana. Einstakt sjávarútsýni hverfi og sólin skíni ekki framar á lóðina. Þor-
móður Sveinsson arkitekt segir viðbrögð íbúanna storm í vatnsglasi.
ðásœttanlegt og klánlega
M ó friðhelgi einkalíls
„Við krefjumst þess að hagsmunir íbúa verði settir í forgang,
enda á að ríkja hér íbúalýðræði en ekki verktakalýðræði," segja
þrír íbúar í Vesturgötu 16.
Þau Sigríður Guðmundsdóttir,
Kristín Nanna Vilhelmsdóttir og
Jón Geir Jóhannsson eru algerlega
andsnúin áformum eiganda Vest-
urgötu 18 og Tryggvagötu 10, M2-
Eigna ehf., um að sameina lóðirnar
tvær og koma þar fyrir allt að átján
íbúðum.
Nýju íbúðirnar yrðu annars veg-
ar í nýju húsi á Vesturgötu 18 og
hins vegar í endurbyggðu húsi á
Tryggvagötu 10. Skipulagsfulltrúi
hefur vísað málinu til hverfisarki-
tekts til umsagnar.
Nýbygging fyrir
gíuggagægja?
fbúarnir þrír segja að fram-
kvæmdirnar myndu algerlega eyði-
leggja nýtingu lóðar þeirra.
Skuggamyndun yrði viðvarandi all-
an sólarhringinn. Ekki yrði hægt að
rækta þar gróður og nýta lóðina til
útivistar. Og það er ekki eini gall-
inn:
„Ekki eingöngu eyðileggst lóð
hússins heldur verður fjölda
manns veitt beint útsýni inn um
gluggana hjá okkur sem er í alla
staði óásættanlegt og klárlega brot
á friðhelgi einkalífs okkar," segja
Sigríður, Kristín og Jón í mótmæla-
bréfí til skipulagsyfirvalda borgar-
innar. Fleiri húseigendur í næsta
nágrenni hafa einnig gert athuga-
semdir við áform M2-Eigna ehf.
hverfinu með slíku útsýni:
„Hér hafa íbúar útsýni yfir höfn-
ina, hvalbátalægið, slippinn og upp
á Skaga. Esjan sést hér í öllu sínu
veldi og þykir sýnt að fáir íbúar í
næsta nágrenni séu jafn heppnir
með það."
Þannig telja íbúar á Vesturgötu
að bæði muni þeirra eigið útsýni
skerðast og sömuleiðis verði þau
sjálf eins og sýningargripir í sínum
eigin íbúðum:
„Hefðum við ætlað að búa í
slíku nábýli við framkvæmdasvæði
hefðum við keypt húsnæði í Graf-
arholti eða öðru hverfi þar sem
slíkt skipulag er fyrir hendi og öll-
um kunn við byggingu svæðisins."
Bílakjallari ekki nóg
Ætlun M2-Eigna er að komið
verði fyrir bílakjallara fyrir þrettán
bíla í neðri hluta lóðarinnar. Sig-
ríður, Kristín og Jón benda hins
vegar á að eftir að framkvæmdir
byrjuðu við Vesturgötu 20-24 hafi
íbúar þar í grenndinni misst 20
bílastæði á fáeinum mánuðum.
Lóðina á Vesturgötu 18 eigi því að
nýta áfram undir bflastæði.
„Við teljum að skipulagsnefnd
sé ekki stætt á því að auka bfla-
stæðavanda miðborgarinnar frekar
með vanhugsuðum aðgerðum."
Segja rök borgarinnar fárán-
ieg
Hefðum keypt í Grafarholti
Ibúarnir þrír segja að einstakt
útsýni úr íbúð þeirra Kristínar og
Jóns muni skerðast.
Erfitt sé að
finna sam-
bærilega
íbúð í
Götumynd húsanna við Vestur-
götu 16 og nærliggjanda húsa er
friðuð að sögn íbúanna þriggja:
„Teljum við fáránleg þau rök
sem fram komu í síðasta bréfi ykk-
ar til okkar „að það fari betur í
göutmynd að byggja í lóð-
inni." Slíkt flokkast
sem tilfinningarök
og persónulegt
mat einhvers
arkitekts sem
augljóslega
hefur hags-
muni bygg-
ingaverktaka
í huga en
ekki skipu-
lag rótgróins
hverfis,"
skrifa þau í
bréfmu til
borgarinnar.
Verður ólíft
með lítið barn
íbúamir þrír
telja einboðið að
miídar sprengingar
þurfi til að hægt verði
að byggja áðumefnd-
an bflakjallara. Ólíftverði
f húsi þeirra á meðan auk
þess sem óvíst sé að hús þeirra
Þormóður Sveinsson „Þaö var
alltafgert ráö fyrir þvlaö það yrði
byggt upp þannig að fólk mátti alltaf
gera ráö fyrirþvlaö þaö yrði skeröing
á utsýni,' segir arkitekt nýfram-
kvæmdanna.
Tryggvagata lOEig-
andinn vill endurbæta
og-byggja þetta hús og
innrétta Iþvlfbúöar-
hús.
Vesturgata 18 Hérer
bílastæði í dag sem íbú-
arnir segja alls ekki veita
af þvl sífellt þrengi að
bllum Ibúa hverfisins.
þoli yfirleitt slflcan sprengjugang. Ekki
síst verði ástandið erfitt fýrir Kristínu
sem sé með bami sem eigi að fæðist
eftir tæpa þrjá mánuði.
Segja íbúamir að Kristínu og Jóni
muni ekki verða vært í íbúð sinni í
bameignarfríinu verði umræddar
ffamlcvæmdir heimilaðar. Ljóst sé að
þau neyðist til að selja íbúðina og
flytja:
„Slíkt mál teljum við svo gróft brot
á réttindum okkar að við erum tilbúin
að fara með málið alla leið til Mann-
réttindadómstóls Evrópu verði þessu
haldið til streitu."
Fásinna hjá íbúum
„Þama er í gildi ákveðið
deiliskipulag sem gerir ráð fyrir upp-
byggingu. Ef núverandi eigendum á
Vesturgötu 16 er það ekki ljóst þá er
það náttúriega miður, segir Þormóð-
ur Sveinsson hjá Plús-Arkitektum
sem unnu tillögur fyrir eigendur Vest-
urgötu 18 ogTryggvagötu 10.
Meðal þess sem gera á að sögn
Þormóðs er að færa Tryggvagötu 10 í
„Við erum tilbúin að
fara með málið alla
leið til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu
verðiþessu haldið til
streitu
upprunalegt horf. Það þýði að tum
komi ofan á húsið og mænir hækki.
Notkun hússins verði breytt úr at-
vinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Að-
eins eilitlar breytingar þurfi að gera á
deiliskipulagi þannig að tillagan
rúmist innan þess:
„Allt tal um skerðingu á útsýni er
því bara fásinna. Það var alltaíf gert
ráð fýrir því að það yrði byggt upp
þannig að fólk mátti alltaf gera ráð
fyrir því að það yrði skerðing á útsýni.
Þannig að þetta er eilítill stormur í
vatnsglasi."
gar@dv.is