Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Síða 15
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 15
Afmæli
bjórbannsins
í gær voru 17 ár liðin frá
því að bjór var leyfður á ís-
81andi eftir 75 ára
ifc^bann gegn
þessum vin-
p^sæla drykk. Á
j|ísafirði var
sögn Estherar
Arnórsdóttur, af-
greiðsludömu í áfengisversl-
uninni, hafði verið fremur
rólegt að gera og enginn
minnst á afmælið þegar
Bæjarins besta ræddi við
hana. Aðra sögu var að segja
þerman dag árið 1989 þegar
fólk streymdi að áfengis- og
tóbaksverslunum landsins
og bar út bjór í kassavís.
Viðburðurinn vakti mikla at-
hygli og var fjallað um hann
í erlendum fjölmiðlum.
Þorgrímur
sigraði
Fálkinn og Stjáni blái
reyndust hlutskarpastir í
handritasam-
keppni Lestr-
armenningar
Reykjanes-
bæjar en
samkeppn-
inni var með-
al annars ætl-
uð til að vekja
athygli barna
á að skemmtilegt söguefni
geti leynst allt um kring að
því er fram kemur á vef
vf.is. Fálkinn er enginn
annar en Þorgrímur Þráins-
son, rithöfundur og fyrr-
verandi landsliðsmaður í
knattspyrnu, en bókahand-
ritið hans „Litla rauða mús-
in‘‘ hlaut verðlaun ásamt
bókahandriti Ingibjargar
M. Möller er ber nafnið
Aragrúi.
Helmingi fleiri
árekstrar
Lögreglan í Reykjavík
skráði 21 umferðaróhapp í
höfuðborginni á þriðjudag.
Samkvæmt lögreglunni eru
þetta óvenjumargir árekstr-
ar á einum degi því að
meðaltali eru skráðir um
12-14 á dag. Segir lögreglan
að fólk virðist vera kæru-
lausara í umferðinni en
endranær og kunni það
kæruleysi að vera vegna
blíðviðris og vorhugs í fólki.
Hvetur lögreglan ökumenn
til að fara varlega og hafa
hugann við aksturinn.
álveri
Ungir mótmælendur
stormuðu inn á skrifstofur
Alcoa í Reykjavík síðdegis í
gær til þess að mótmæla
áformum um byggingu ál-
vers á Húsavík. Krakkarnir,
sem voru í tíunda og ní-
unda bekk, hrópuðu há-
stöfum inni á skrifstofunni
en starfsfólk kallaði til lög-
reglu sem rak krakkana út
úr húsinu við Suðurlands-
braut 12.
Einar Hans Þorsteinsson er ákærður fyrir að hafa haft undir höndum 800 grömm-
um af hassi og ætlað eitthvað af því til sölu. Einar Hans segir að hann hafi bara
verið að sækja pakka fyrir mann sem hann vill ekki nefna á nafn. Einar var þegar
búinn að selja 14 grömm þegar hópur lögreglumanna gerði húsleit hjá honum.
/. /
Hass Töluvert magn afhassi fannsthjá
Einari i Sandgerði.
„Eg var bara að ná í pakka fyrir kunningja," segir Einar Hans Þor-
steinsson sem er ákærður fyrir að hafa tekið við og ætlað til sölu
tæpt kíló af hassi sem fannst við húsleit heima hjá honum í byrj-
un janúar. Einar Hans er einnig ákærður fyrir að hafa selt 14
grömm af hassi til aðila sem hann þekkti lítið sem ekkert. Einar
Hans játar að hafa haft efnið undir höndum og sölu.
„Ég átti þetta ekki,“ segir Einar
Hans en efriin fundust heima hjá
honum tveimur dögum eftir að
hann tók við því. Einar Hans segir að
hann hafi verið að ná í pakka fyrir
óþekktan mann sem hann vill ekki
nefna á nafn af ótta við hefndarað-
gerðir. Einar segir að hann og
óþekkti maðurinn hafi gert sam-
komulag um að hann fengi greitt
fyrir að sækja pakkann en efnin voru
faiin inni í plastpoka og Einar segist
ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað
þetta hefði verið mikið.
Milljónaandvirði
„Það komu fjórir eða fimm löggu-
bílar hingað," segir Einar Hans sem
býr í Sandgerði. Einar veit ekki
hvernig lögreglan hefur áttað sig á
pakkanum en engu að síður bankaði
hún upp á hjá honum og gerði hús-
leit. Við húsleitina fundust 806
grömm og því ljóst að Einar hafði
efnin undir höndum. Götuvirði Jj
þess er um tvær og hálf millj- Æt
Æ
standa í þessu en engu að síður
verði hann að taka þeim afleiðing-
um sem þessu fylgja.
Bætir ráð sitt
„Ég er búinn að fara í meðferð,"
segir Einar Hans og bætir við að
hann vilji bæta sitt ráð. Einar hefur
áður komist í kast við lögin en þó
hefur hann aldrei orðið svo stórtæk-
ur að hafa tæpt kfló af fflcniefnum
undir höndum. Einar segir að hann
verði bara að bíta í þetta súra epli og
vonar að hann verði ekki dæmd- j
ur hart. Refsiramminn fyrir Jm
brot sem þetta er sex ár.
vaiur@dv.is
Ætlað að selja sjálfur
„Ég ætlaði að selja
tvö hundruð grömm j
sjálfur," segir Einar
Hans en hann var í
mikilli neyslu á i
þeim tíma sem A
hann hafði efnin ÆL
undir höndum.
Hann segir að
hann hafi ,
auðvitað Æ
ekki átt M
að Æ
Einar Hans Þorsteinsson
Hefurjátað að hafa tekið við
tæpu kílói afhassi.
„Ég ætlaði að
selja tvö hund
ruð grömm
sjálfur."
Réðust á pítsusendil og ógnuðu með kylfu
Saga Film hindrar aðgang að bláum stæðum
Grímuklæddir árásarmenn
, Annar maðurinn var með klút yfir
andlitinu og hinn var með derhúfii,"
segir Baldur Baldursson ffarn-
kvæmdastjóri Dómino’s flatbökuveit-
ingastaðanna þegar hann var spurður
um árásarmennina sem réðust á ung-
an pítsusendil í Foldahverfinu í Graf-
arvogi síðastliðið þriðjudagskvöld.
„Þeir ógnuðu sendlinum með kylfu og
báðu hann um að afhenda peningana
sem voru tvö þúsund krónur," segir
Baldur. Hann segir að það sé yfirleitt
ekki um miklar fjárhæðir að ræða og
aldrei meira en rúmléga tvö þúsund
krónur sem sendlamir bera á sér
hveiju sinni enda er í flestum tilfellum
greitt með kortum.
Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík
stukku árásarmennirnir á brott með
bíllykla Dómino’s-bflsins sem sendill-
inn var á svo hann myndi ekki veita
þeim eftirför. Ekki hefur lögreglunni
enn tekist að hafa uppi á mönnunúm
Flatbökuveitingastaðurinn Dóminó's.
Sendillinn var að fara með pitsu í Foldar-
hverfið þegar ráðist \iar áhann.
fett rhálið eíJ f'iailfisókn; Lögreglan
tjáði DV að litið væri alvarlegum aug-
um á svona glæpi og allt gert til að
hafa hendur í hári árásarmannanna.
Baldyr Bajdursson hjá Dómino’s
segir að fyririækiö geri ráðstafanir til
að vemda starfsfólk sitt og vill ekki
gefa upp nafn sendilsins. Ekki var um
lflcafnsárás að ræða en Baldursegir að
senalimuii 1 íafl'VéfÍðiiráhTugðið.
Lögðu í stæði fatlaðra
Saga Film, eitt stærsta kvikmynda-
fyrirtæki fslands, var á dögunum við
tökur á kvikmyndinni „Köíd slóð“ við
Glæsibæ í Reykjavík.
Eins og gefur að skilja þá fylgir tök-
um á svona kvikmynd töluvert mikið
af alls kyns búnaði og eitthvers staðar
verður kvikmyndafólkið að geyma
þetta.
En þrátt fyrir stóra kvikmynd og
mikið af búnaði þá er það ekki rétt að
nýta bláu stæðin, bflastæði fyrir fatl-
Tvö bílastæði Voru ekki aðgengileg fötluð-
um vegna Saga Film sem geymdi búnað sinn
í stæðunum.
aða, undir bún-
aðinn eins og
gerðist í þessu
tilviki. Hluta af
búnaðinum var
lagt í tvö stæði
íyrir fatlaða fyrir
utan TBR-húsið
hjá Glæsibæ.
Ábending
þess efnis barst
DV og var ljós-
myndari sendur
á staðinn sem
tók eftirfarandi
mynd.
Átak DV gegn
þeim sem leggja
í stæði fatlaðra heldur áffam og hvetj-
um við alla þá sem sjá „ólöglega" bfla
í þessum stæðum að hafa samband
við DV og/eða taka ljósmynd af bfln-
um eða bflunum og senda okkur.
WJ
æðunum Al
Hmí
Hvernig á að
senda myndina?
Best er að senda myndina
á stafrænu formi og notast
við tölvupóst. Netfangið er
ritstjorn@dv.is.
Einnig er hægt að senda
Ijósmyndir í pósti.
Heimilisfangið er
Skaftahlið 24,105
Reykjavík.