Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Page 21
I
20 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
Sport DV
Grétar í barátt-
unni Grétar Rafn
Steinsson sést hér
i baráttunni við
AveryJohn hjá
Trínldad og
Tobagó. Nordic
Photos/Getty
MARK í 7 LANDSLEIKJUM í RÖÐ:
íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hafði skorað í sjö landsleikj-
um í röð þegar kom að leiknum við
Trínidad og Tógbagó í London í
fyrrakvöld en íslenska liðið tapaði
leiknum 0-2 og skoraði því ekki í
landsleik í fyrsta sinn í tæpt ár.
Markverðir Trínidad og
Tógbagó, Shaka Hisalop
og varamaður hans
Tony Wamer, héldu
hreinu gegn Eið Smára
Guðjohnsen og félögum
hans.
Islenska landsliðinu
mistókst síðast að skora
hjá ítölsku markvörðun-
um Flavio Roma og
Morgan De Sanctis í
Padóvu 30. mars 2005.
íslenska landsliðið hafði
skorað 16 mörk í síðustu
sjö landsleikjunum undir
stjórn þeirra Ásgeirs Sig-
urvinssonar og Loga
Ólafssonar eða 2,3 mörk
að meðaltali í leik. Eiður
Smári lék ekki með gegn
ítölum eða í 0-4 tapi fyrir Króötum
í leiknum á undan og síðasti leikur
sem íslenska landsliðið skoraði
ekki í með Eið Smára innanborðs
var í markalausu jafntefli við Möltu
9. október 2004 eða fyrir 17 mán-
uðum síðan.
4. júnl 2005 Istand-Ungvoijaland 2-3
Eiður Smári Guðjohnsen og Kirstján Örn Sigurðsson.
8. lúnl 2005 Island-Malta 4-J
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Eiður Smári Guðjohnsen,
Tryggvi Guðmundsson og Veigar Páll Gunnarsson.
17. ágúst 2005 Island-Suður-Afrlka 4-1
Grétar Rafn Steinsson, Arnar Þór Viðarsson, Heiðar
Helguson og Veigar Páll Gunnarsson.
3. september 2005 Island-Króatia 1-3
Eiður Smári Guðjohnsen.
7. september 2005 Búlgaria-lsland 3-2
Grétar Rafn Steinsson og Hermann Hreiðarsson.
7. októbar 2005 Pólland-lsland 3-2
Kristján Örn Sigurðsson og Hannes Þ. Sigurðsson.
12. október 2005 Svlþjóð-lsland 3-1
Kári Árnason
- ísland skoraði ekki gegn ftölum í markalausu jafn-
tefli 30. mars 2005.
HUELLUR
G. Tómasson ehf • Sóóarvogi 6
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
( efnum grættum • hvellur@hvellur.com
Grétar Rafn er bjartsýnn á gengi íslenska landsliðsins
Líst vel á framhaldið hjá liðinu
Landsleikir íslands með
Eið Smára sem fyrirliða:
Eiður Smári Guðjohnsen lék veikur
gegn Trínidad og Tóbagó og náði því
ekki að sýna sinn besta leik. Landsliðs-
fyrirliðinn vill ekki gera of mikið úr úr-
slitunum í fyrsta leik undir nýjum þjálf-
ara en segir nauðsynlegt að fá fleiri vin-
áttuleiki fyrir Evrópukeppnina.
íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu tapaði vináttu-
landsleik gegn Trínidad og
Tobagó á Loftus Road á
þriðjudagskvöld með tveimur
mörkum frá Dwight Yorke.
Fyrra markið kom eftir um tíu
mínútna leik en síðara markið
kom úr umdeildri vítaspyrnu
snemma í seinni hálfleik.
Landsliðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen er á eftir
markameti Ríkharðs Jónsson-
ar, vantar aðeins eitt mark til
að jafna þetta 43 ára gamla
met en náði ekki að komast á
blað í leiknum frekar en aðrir
leikmenn íslenska liðsins.
„Ég var slappur í gær og reyndar í
dag (á leikdag) líka en ákvað bara að
láta reyna á þetta. Mér leið ekkert
voðalega vel í leiknum," sagði lands-
liðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohn-
sen eftir tapleikinn gegn Trínidad og
Tóbagó en þrátt fyrir veikindin þá
spilaði Eiður Smári fyrstu 73 mínút-
urnar í leiknum.
„Við höfðum lítinn tíma tii að
undirbúa okkur fyrir þennan leik.
Þessi leikur snérist meira um að hitt-
ast í fyrsta sinn undir nýjum þjálf-
ara. Það voru nokkur ný andlit í
hópnum og það var því ágætt að
geta hist og spilað þennan leik," seg-
ir Eiður Smári sem var mjög nálægt
því að skora beint úr aukaspyrnu í
fyrri hálfleik.
Þurfum að skoða mistökin í
mörkunum
Eiður var líkt og þjálfarinn Eyjólf-
ur Sverrisson ekki ánægður með
mörkin sem íslenska liðið fékk á sig í
leiknum. „Við áttum að klára nokkur
færi betur því við spiluðum ágætlega
á köflum. Ég held að ef við þurfum
að horfa aftur á þessi tvö mistök sem
við gerðum og okkur var refsað fyrir
því það er eitthvað sem við þurfúm
að kíkja á fyrir næsta ieik," segir Eið-
ur en næsti áætlaði leikur íslenska
landsliðið er samt ekki fyrr en gegn
Shaka Hisalop og Tony Warner héldu
hreinu í marki Trínidad og Tógbagó:
Fyrsta markaleysið í
landsleik í tæpt ár
♦ír»
„Þetta er bara byrjunin hjá
okkur, við vorum að reyna ýmsa
nýja hluti enda bara um æfingaleik
að ræða. Við ætlum bara að reyna
að læra af þessum leik," sagði Grét-
ar Rafn Steinsson, sem lék á hægri
kanti í leiknum gegn Trínídad og
Tóbago.
„Ég náði klukktímaæfingu í
gærkvöldi þannig að þetta var ekki
mikill undirbúingur en það var
gott að hitta strákanna og kynnast
aðeins betur. í þessum leikjum er
líka farið yfir þau atriði sem við
ætlum að leggja áherslu á og það er
mikilvægt þegar kemur í alvöru-
leikina. Það samt náttúrulega erfitt
að fá leik á þessum tíma þegar það
er svona mikið að gerast hjá leik-
mönnum eins og Eiði Smára og
Heiðari sem eru að spila nánast
þriðja hvern dag," sagði Grétar
Spánverjum 16. ágúst næstkom-
andi. Fyrsti leikur undankeppni Evr-
ópumótsins í Sviss og Austurríki
2008 er síðan gegn Norður-írum í
Belfast 2. september. Það er ljóst á
þessu að landsliðsfyrirliðinn og
landsliðsþjálfarinn eru báðir að
ákalla forráðamenn KSÍ um að þeir
komi á fleiri vináttulandsleikjum í
vor og byrjun sumars.
Vill ekki gera of mikið úr
þessum leik
„Það má ekki gera of mikið úr
þessum leik því þetta er leikur þar
sem við komum saman í fyrsta sinn
og erum að prófa ýmsa hluti. Við
þurfum bara að reyna að hittast sem
ofast fýrir fyrsta leik í komandi und-
ankeppni Evrópumótsins," segir
Eiður Smári að lokum en það er nóg
um að vera hjá honum og félögum
hans í Chelsea næstu vikurnar enda
liðið á fullu í ensku deildinni, enska
bikarnum og Meistaradeild Evrópu.
2003
Færeyjar (heima) 2-1 sigur
Litháen (úti) 3-0 sigur 1 mark
Færeyjar (úti) 2-1 sigur 1 mark
Þýskaland (heima) O-Ojafntefli
Þýskaland (úti) 0-3 tap
2004
Japan (Englandi) 2-3 tap
England (úti) 1-6 tap
ftalia (heima) 2-0 sigur 1 mark
Búlgaría (heima) 1-3 tap 1 mark
Ungverjaland (úti) 2-3 tap 1 mark
Malta (úti) 0-0 jafntefli
Svíþjóð (heima) 1-4tap 1 mark
2005
Ungverjaland (heima) 2-3 tap 1 mark
Malta (heima) 4-1 sigur 1 mark
Suður-Afríka (heima) 4—1 sigur
Króatía (heima) 1-3 tap 1 mark
Búlgaría (úti) 2-3 tap
2006 ..............................
Trlnidad og Tobagó (Englandi) 0-2 tap
Samantekt:
18 leikir - 6 sigrar - 1 jafntefli - 11 top
Rafn sem er sáttur við sína stöðu
þótt að hún sé ekki sú sama og
hann spilar með AZ Alkmaar. „Það
skiptir mig engu máli _
hvar ég spila og það j
skiptir mig mestu að -
Eyjólfur er ánægður
með mig þarna og^
það er gott að spila^
með Helga ^
Val eða
Kristján öm'
fyrir aftan sig. Ég hef aldrei
áður spilað með Helga og \
við þurfum að fá fleiri æf-'
ingar saman ekki bara einn
klukkutíma og síðan leik/'V*
segir Grétar sem sá jákvæða |
hluti í leik liðsins þrátt fyrir 2-
0 tap.
„Það komu upp
ágæti kaflar í leikn-
um þar sem við vorum að spila vel.
Við vomm oft nálægt því að
•skapa okkur færi og sköp-
uðum okkur síðan nokkur
færi og þá er þetta oft
spuming um heppni
þegar kemur að því að
klára þessi færi sem
við náðum að skapa.
Þetta var ekki alslæmt
hjá okkur," sagði Grét-
ar Rafn og bætir við:
„Mér líst annars vel á
framhaldið, við
eigum mikið inni
og því finnst mér
engin ástæða til
annars en að vera
bjartsýnn á gengi
liðsins f næstu
leikjum."
Byrjunarliðið
Hér sést byrj-
unarlið Islands
í leiknum gegn
Trinidadog
Tógbagó. DV-
mynd Valli
HrhjihHB
fypip fyrna
DV Sport
FIMMTUDAGUR2. MARS 2006 21
Eiður Smári með boltann
Eiður Smári G uðjohnsen var
fyrirliði tslenska landsiiðsins i
18. sinn gegn Trlnidad og Tó-
bagó á þriðjudagskvöldið.
Eyjólfur Sverrisson, stjórnaöi íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu í fyrsta sinn gegn Trínídad og Tóbagó á Loftus
Road í London. DV skoðar hvernig forverum hans hefur
vegnað í fyrsta landsleik undir þeirra stjórn.
Eyjólfur fyrsti þjálfarinn
í níu ár sem tapar fyrsta leik
’ Éýjóífur Svcrrisson várð fyrs’tí
lándsliðsjjjáilarinn í níu ár til
þess áð táþa sínum fýrsta
Íeik. Síðustu tveir þjálfarar
landsliösins á undah Fyjólli,
tvíeykið Ásgéir Sigurvinsson
og Logi Ölafssón annarsvcgar
og Atli Eðvaldsson hinsvegar
hyrjúðu mjög vel og ísiénska
landsliðið var taplaust í
fyrstu tjórum lcikjunum und-
ir stjórn Ásgeirs og Loga og í
fyrstu iimm lcikjunum undir
stjórn Atlu scm er mct. Hyjóif-
Uf cr. sjotti íslcnski þjálfnri
liðsihsT röð og hér fyrir ncð-
an má finna yfirlit yfir hvcrn-
ig'þeir hafa býrjað sinn tfma
með landsiiðinu.
Tvisvar hefur fyrsti leikurinn
unnist, einu sinni hcfur ís-
ienska liðið gert jafntefli en í
þriðja sinn þurfti íslenska
Jandsliðið að sætta sig við tap
í fyrsta leik undir nýjum
þjálfara.
Eyjólfur Sverrisson tap
Loftus Road 28. febrúar 2006
Vináttulandsleikur
ísland-Trínídad og Tobago 0-2
fslenska landsliðið tapaði sín-
um fimmta landsleik í röð en
náði hinsvegar ekki að skora
eftir að hafa skorað í sjö lands-
leikjum í röð þar á undan.
Ásgeir Sigurvinsson og
Logi Ólafsson, sigur
Laugardalsvöliur 7. júní 2003
Undankeppni EM 2004
fsland-Færeyjar 2-1 (0-0)
fslenska landsliðið vann þrjá
2'rstu leiki sína undir stjórn
sgeirs og Loga, 2-1 gegn Fær-
eyjum, 3-0 gegn Litháen í
Kaunas og 2-1 gegn Færeyjum
í Þórshöfn.
Guðjón Þórðarson, tap
Laugardalsvöllur 20. júlí 1997
Vináttulandsleikur
fsland-Noregur 0-1
fslenska landsliðið tapaði fimm
af fyrstu nfu leikjum sínum
undir stjórn Guðjóns Þórðar-
sonar en síðan aðeins þrisvar
sinnum ísíðustu 16 leikjunum
sem hann þjálfaði liðið. Eftir
tapið fyrir Norðmönnum þá
unnust sigrar á Færeyjum (1-0)
og Liechtenstein(4-0) í næstu tveimur leikjum.
Logi Ólafsson, tap
Valetta á Möltu 7. febrúar 1996
Vináttumót á Möltu
Slóvenía-fsland 7-1
Þetta var versti ósigur íslenska
landsliðsins í níu ár eða síðan að
Austur-Þjóðverjar unnu 6-0 sigur í
Laugardalnum 1987. fslenska lands-
liðið tapaði næsta leik 3-0 fyrir Rússum en vann
Möltu 4-1 í lokaleik mótsins. Þetta 7-1 tap fyrir Sló-
venum er næstversta byrjun íslensks landsliðsþjálf-
ara en íslenska landsliðið tapaði 0-8 fyrir Frökkum í
fyrsta leik Alexanders Wier árið 19S7.
Atli Eðvaldsson, jafntefli
La Manga 31. janúar 2000
Norðurlandamót
Noregur-fsland 0-0
fslenska landsliðið fór ósigrað
í gegn fimm fyrstu leiki sína
undir stjórn Atla Eðvaldssonar
sem er met. Eftir jafnteflið við
Noreg þá vann fsland 1-0 sigur
á Finnum og 3-2 sigur á Fær-
eyjum á Norðurlandamótinu á
La Magna, 5-0 sigur á Möltu á
Laugardalsvellinum og loks 2-
1 sigur á Svíum á sama stað en
þetta var fyrsti sigur fslands á Svíum í 49 ár.
Ásgeir Elíasson, sigur
Laugardalsvöllur
25. september 1991
Undankeppni EM 1992
fsland-Spánn 2-0
Ásgeir Elíasson valdi landsliðs-
fyrirliðann Atla Eðvaldsson ekki
í fyrsta landslið sitt og vaidi síð-
an fimm leikmenn úr liði Fram í
byrjunarliðið en Ásgeir hafði
þjálfað Framliðið frá 1985 til
1991. Með tapinu misstu Spán-
verjar endanlega af möguleikanum að komast í úr-
slít á EM f Svfþjóð 1992 sem var fyrsta og eina stór-
mótið sem þeir hafa misst af síðan árið 1976. Þetta
er örugglega einn sá allra glæsilegasti sigur í fyrsta
leik hjá þjálfara íslenska landsliðsins.