Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Qupperneq 37
PV Helgin FÖSTUDAGUR 26. MAl2006 49 w ’x:'í hverju sinni fengum við Hólmfríð- ur peninga til að kaupa okkur sæl- gæti, en á leiðinni í búðina sáum við strák á okkar aldri að betla og í staðinn fyrir að fara í búðina gáf- um við honum alla peningana." Myndbrot minninganna Þcer bregða uppfyrir mig mynd- um minninga: Dansandi maga- dans á Balí með blóm í hárinu. Stcerstu regndropar sem þcer hafa séð á cevinni í Surabaja. Ótrúlega scenskthús rétt við Gautaborg. Að lœra að telja og þakka fyrir sig á máli innfceddra í Indónesíu. Kon- ur með blcejur fyrir andlitinu í Istanbúl. Ferðalag með hestvagni í Túnis. Tenniskennsla og flam- ingóar í Portúgal. Starfsfólk flug- félaga að passa þcer þegarforeldr- ar þeirra fóru á sama tíma íflug: „Sem var þó sjaldnast," segja þær. „Mamma og pabbi reyndu að fá þannig vaktir að alltaf væri ann- að þeirra heima hjá okkur." Fáir vinir, enda ekki börn á sama reki og þcer nema í skólan- um: „Við vorum því mikið saman systurnar. Við höfum alltaf ver- ið samrýmdar og nánar systur, en þó aldrei eins mikið og nú á síð- ustu árum. Ætli það megi ekki þakka það auknum þroska, litlum aldursmun og því að við höfum áhuga á sömu hlutunum." Stcersta áhugamálið var til margra ára dans: „Við byrjuðum í dansskóla eft- ir að við fluttum heim, sjö og níu ára," segir Hólmfríður. „Við reynd- um ballett, en hann var of hæg- Helga Björnsdóttir Hóffyrirsætuferilinn snemma. ur fyrir okkur. Ég fór í fimleika og hélt ég fengi útrás með hoppi og skoppi, en þegar ég var bara látin teygja mig, fara í kollhnís og ganga gíraffagang hætti ég." Glæstur dansferill Og þá hófst dansferill systranna. Ferill sem fcerði þeim tugi verð- launapeninga og bikara fyrir ár- angur í samkvœmis- og suður- amerískum dönsum: „Þegar hvorki baUettinn né fimleikamir voru að virka, lagði vinkona mömmu, Ingunn Magn- úsdóttir, sem kenndi hjá Dans- skóla Hermanns Ragnars Stef- ánssonar, það til við hana að við prófuðum að fara í danstíma. Þessi tími vakti svo mikinn áhuga okkar að við gátum ekki hætt! Ing- unn á því heiðurinn af dansferli okkar beggja." Helga segir að Hólmfríður eigi fleiri og stcerri titla en hún, enda hafi hún verið heppin og haft sama dansherrann árum saman: „Ég á nú alveg verðlaunapen- inga úr alþjóðlegum keppnum," segir hún brosandi, „en Hófy er þrefaldur Norðurlandameistari, hefur oft unnið alþjóðleg mót og tekið þátt í heimsmeistarakeppni. Ég hætti hins vegar í dansi þeg- ar ég var sextán ára. Þá hafði ég dansað í nokkurn tíma við David Gill, sem er besti vinur minn í dag, og við höfðum náð göðum árangri. Þegar kom að því að taka ákvörðun um hvort við ætluðum að leggja dansinn fyrir okkur eða fara í framhaldsskóla varð skól- inn ofan á. Ég vissi að ef ég færi í nám og hætti að æfa myndi ég dala hratt. Það er ekki minn stfll. Ég valdi að hætta á toppnum og sé ekki eftir þeirri ákvörðun." Hólmfríður tekur undir orð syst- ur sinnar um að það skipti máli að hafa sama dansherrann árum saman: „Það verður að vera regla á hlutunum og sjálfsagi ef þetta á að ganga," segir hún. „Dansnám- ið kenndi okkur að vera skipu- lagðar og beita okkur sjálfsaga. Við höfðum ákveðinn tíma á dag fyrir heimalærdóm og annan fyr- ir dansnám og teljum báðar að það hafi hjálpað okkur heilmik- ið í Verzlunarskólanum, þar sem námið er erfitt. Öll íþróttaiðkun þýðir mikinn sjálfsaga ef vel á að ganga." Það sést langar leiðir að systurn- ar eru dansarar, enda taka vafa- laust flestir eftir því að dansarar bera sig allt öðru vísi en við hin sem kunnum bara grunnspor... „Kannski líka vegna þess að dansarar gæta oft hófs í mataræði og eru meðvitaðir um hollt líferni og góðan svefn?" segja þær spyrj- andi. Ráðleggingar eldri systur Þótt Helga hafi tekið ákvörðun um að hcetta á toppnum og láta drauma um atvinnumennsku í dansi lönd og leið er hún ekki sömu skoðunar þegar kemur að yngri systurinni. Það er greinileg vcentumþykja á milli systranna - en líka ábyrgð: „Mér finnst að Hólmfríður eigi að taka einhverju þeirra atvirinu- Hólmfríður Björnsdóttir Margfaldur meistari í samkvæmisdöns- um og fór meö aðalhlutverkið l„Á tjá og tundrThjá Verzló f vetur. tilboða sem henni hafa borist," segir hún ákveðin, en Hólmfríð- ur hefur fengið mörg tilboð um að helga sig dansinum og flytjast til London, Kaupmannahafriar og Frankfurt: „Ég veit af eigin reynslu að maður getur alltaf lokið stúdents- prófi þótt maður sé í fjarnámi," segir Helga. „Kærastinn minn, Kjartan Henry Finnbogason, hef- ur leikið fótbolta með Celtic í Glas- gow í eitt og hálft árogéghef verið þar með annan fótinn. Samt er ég að útskrifast sem stúdent. Hólm- fríður fær svona tækifæri NÚNA, kannski ekki síðar í lífinu, enda er líftími atvinnudansara ekki lang- ur. Annað nám er alltaf hægt að stunda með... Hófý er manneskja sem myndi geta lagt dansinn fyrir sig. Hún gerir sér fulla grein fýrir kostum og göllum starfsins." Hólmfríður brosir og segist hlusta á stóru systur: „Samt finnst mér ég svo „h'til"!" segir hún hlæjandi. „Þótt ég sé orðin átján ára, þá finnst mér svo- lítið stórt stökk að flytja út í heim og starfa sem atvinnudansari. Engu að síður er ég að hugsa mig vel um og þá yrði Danmörk fýrir valinu." Hvers vegna? „Þar er dansinn á mjög háu plani. í London er miðja dans- heimsins, en þar yrði ég bara lít- ið peð og þar yrði ég bara að lifa í dansi, ég gerði ekkert annað. Ég myndi ekki eiga neitt félagslíf, geta stundað nám eða átt eðlilegt fjöl- skyldulíf þar," segir hún, greini- lega með báða fætur á jörðinni. „f Danmörku yrði þetta miklu auð- veldara. Ég get ekki hugsað mér að fara til Þýskalands. Ef ég ákveð að gera þetta að starfi, þá verður það fyrr en seinna. Það er satt að segja ekki um auðugan garð að gresja í dansheiminum á fslandi, sérstaklega ekki fyrir minn aldur. Þegar ég sé dans í sjónvarpinu eða fer á danskeppni, þá er ég ákveðin í að leggja þetta fyrir mig. Svo fjar- ar sú hugsun út... Ég geri mér svo vel grein fyrir því að dansheimur- inn er frábær þegar hann gengur upp, en það er sjaldnast sem allt gengur upp og ég er með þann fyrirvara á málinu eins og er. Ég er samt mikið að hugsa um þetta..." „Ég veit að Hólmfríður mun spjara sig," segir Helga. „Hún er það hæfileikarík og jarðbundin. Ef ég væri Hófý, færi ég strax!" Fyrirsætustörf og leiklist Systurnar hafa báðar haslað sér völl á síðustu misserum. Hólm- fríður fór með aðalhlutverkið í söngleiknum Á tjá og tundri, hjá Verzlunarskólanum í vetur, þar sem hún dansaði, lék og söng og andliti Helgu bregður sífellt oftar fyrir í auglýsingum auk þess sem hún var dansari hjá Sigurjóni Brink í undankeppni Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva í vetur: „Ég var í einhverjum auglýs- ingum þegar ég var barn," segir Helga. „Síðasta sumar var ég svo beðin um að vera í auglýsingu fyr- ir stórfyrirtækið Yamaha og fyr- ir Mitt kort hjá Landsbanka fs- lands. Undanfarið hef ég svo tekið þátt í nokkrum minni auglýsing- um sem eru ekld ennþá komnar á skjáinn." Hólmfríður má til með að stríða systur sinni þegar hér er komið sögu: „Kjötsvipurinn hennar Helgu sló í gegn!" segir Hófý og herm- ir eftir systur sinni. „Kinnbeinin hennar!!!" Mér er sagt að í Brasilíu hangi auglýsingamyndir af þér utan á heilu húsgöflunum? „Já, það hef ég heyrt," segir Helga brosandi. „Við verðum bara að skreppa til Brasilíu til að sann- reyna þetta! Þessar auglýsingar voru teknar við Jökulsárlón og þar dvöldum við í fimm daga við tökur. Það var svo dæmigert að þótt við systumar höfum ferðast um allan heim, þá höfum við lítið sem ekk- ert séð af íslandi! Þegar ég kom að Hæfileikarfkar og heillandi systur Með báða fætur á jörðinni, en llður best skýjum ofar. ' Ólíkir heimar: Systurnar skáru sig úr en eignuðust góða vini meðal innfæddra. Jökulsárlóni missti ég andann, ég átti ekki orð yfir alla þessa fegurð sem við eigum hér. Mér var kom- ið fyrir úti á ísjaka á miðju lóninu, veðrið var eins og á póstkorti og þetta var frábær skemmtun." Svo varþað Mitt kort-auglýsing- in frá Landsbankanum, þar sem þú vaktir athygli þegar þú spark- aðirfótbolta svo listilega: „Já, í Valsbúningi!" segir hún hlæjandi. „Og ég sem á kærasta sem er KR-ingur og afa sem er Skagamaður! Þeir sögðu nú ekk- ert en ég held að þeir hefðu kos- ið að ég hefði verið í öðru en Vals- treyju.J" Þyrstir í fróðleik Helga verður stúdent á morgun, laugardaginn 27. maí, en cetlar að taka sér frífrá námi í eittár og taka þá ákvörðun um hvað hún vill lcera. Hólmfríður er hins veg- ar löngu ákveðin íframtíðarstarf- inu: „Ég ætía að verða flugstjóri," segir hún. „Ég ákvað það þegar ég var mjög ung að verða flugmað- ur eða flugkona, en alls ekki flug- freyja. Sem einhverjum kann að finnast skrýtið þar sem ég lít svo upp til mömmu okkar sem hefur starfað sem flugfreyja í mörg ár! Ástæðan er hins vegar einfaldlega sú að ég uppgötvaði fljótt hvað flugstjórar eru með miklu hærri laun en flugfreyjur!" segir Hófý og hlær. „Ég er þegar byrjuð að læra verklega hlutann og byrja á þeim bóklega 6. júm'. Þetta var svolítíl áskorun fýrir mig, því í rauninni er ég pínulítið lofthrædd, en þegar ég kom í fyrsta tímann minn hvarf lofthræðslan. Það er ekki hægt að lýsa frelsistilfinningunni sem fylg- ir því að fljúga. Það er ekkert nema himinninn og þú...“ Helga segist hafa talið að hún myndi aldrei fá áhuga á flug- heiminum; hún hafi upplifað hann gegnum foreldra sína en nú er orðin breyting þar á: „í sumar mun ég starfa sem flugfreyja hjá City Star, sem er með bækistöðvar í Aberbeen í Suður- Skotíandi. Þaðan er til dæmis flogið til London, Sviss og Nor- egs. Þetta eru 32 manna þotur og farþegarnir nánast eingöngu við- skiptamenn með skjalatöskur. Eft- ir þetta árs frí sem ég ætla að taka mér frá námi gæti ég best trúað að ég fari að læra alþjóðalögfræði eða eitthvað sem tengist alheim- inum. Við systurnar eru báðar for- vitnar og langar að læra meira um heiminn. Við fórum báðar á fé- mm Samrýmdar systur: „Við bjuggum I ótrúlega sænsku húsiT lagsfræðibraut, lærðum um sögu og menningu og finnst ótrúlega skemmtilegt að fræðast um aðra menningarheima. Mig þyrstir í að skoða heiminn og mest af öllu langar mig aftur til þeirra landa sem við bjuggum í sem börn." Best að vera við stjórnvölinn Eitt orð er ekki til í orðabók þeirra systra: flughrceðsla: „Nei, það er orð sem við skilj- um ekki," segja þær brosandi. „Fyrir okkur eru flugvélar eðli- legri ferðamáti en strætisvagn eða bíll. Mér h'ður hvergi betur en í flugvél," segir Helga en Hólmfríð- ur segist nú ekki alveg sammála þeirri fullyrðingu: „Mér h'ður ekkert endilega rosalega vel í flugvél og held að ,, þess vegna sé bara best að ég hafi ‘ - stjóm á þessu og verði við stýrið!" Það er ekki laust við að maður úfjg, sjái ýmis tcekifceri eftir að hafa kynnst þeim systrum. Ekki verra jsi*; ef flugstjóri, gullfalleg kona, ;-*j myndi heilsa manni á stórum al- æV- þjóðaflugvelli. Og alls ekki slcemt efflugfreyja sér ógiftan milljóna- |P| mcering á sextugsaldri um borð í einkaþotu, hallar sér að honum ogspyr:„Doyou mind iflgiveyou ' || a phone number ofa journalist at . DV?" Kannski þetta hafi verið ástœðan fyrir því að ég hélt þeim ' ' I lengur en gert hafði verið ráð Jyrir. jjrfi Heppin að eiga svona mikið af Toppi og Coca-Cola... En þetta er ýjd ekki það sem þcer eru að hugsa. iriL Þcer eru að hugsa um foreldra sína sem gáfu þeim öll þessi tceki- ý ý fceri til að kynnast heiminum: „Við eigum foreldrum okk- ar svo ótrúlega mikið að þakka," segja þær. „Þau hafa kennt okk- ur að meta lífið og meta það sem við eigum. Þau kenndu okkur að það hafa það ekki allir eins gott og við. Við höfum fengið að kynnast heiminum og upplifa svo margt fallegt og fróðlegt. Það mun án nokkurs efa gagnast okkur í fram- tíðinni. Þessi lífreynsla hefur auk- ið víðsýni okkar og skilning." annakristine@dv.is * ./‘ V f - 0 v, DV myndir: Hörður - Aðrar myndir úr einkasafni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.