Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Síða 38
Helgin DV
Ef appelsínuhúðin fer í taugamar á þér geturðu sagt henni stríð á hendur
Losaðu þig við appelsínuhúðina
BurstaBu húBina
Með þvl að bursta húðina með gróf-
korna sápu losarðu um dauðar húðfrum-
ur og húðin verður mýkri og fallegri.
Burstunin kemur blóðinu afstað og hefur
mikil áhrifá appelslnuhúðina.
MinnkaBu kaffidrykkju
Kaffiö er vinur appelsínuhúðarinnar.
Kaffið hægir á blóðrennslinu og hefur
mikil áhrifá yökvann I llkama þlnu. Þú
ferð oftar á klósettið þegar þú drekkur
kaffi sem veldur þvlað llkami þinn getur
ofþornað.
NuddaBu appabfnuhúBlna burt
Rannsóknir sýnaaðnudd hefur góð áhrifá
appelslnuhúð. Nuddaðu lærin þln og not-
'aðu góða ollu.
Hollurmatur
Sumar fæöutegundir eru betri en aðrar þeg-
ar kemur að appelsínuhúð. Borðaðu mikið
affiski, óllvuollu, hnetum, fræi, ávöxtum,
grænmeti, kjúkling, eggjum og sojamatvör-
um. Forðastu feitan mat.
HrayfBuþlg
Þú færð stinnari og fallegri fætur með auk-
inni hreyfingu.
SlappaBu af
Hormón sem tengjast stressi og álagi gera
appelslnuhúöina verri. Reyndu að slaka á og
taka llfinu.léttar.
Drekktuvatn
Með þvl að drekka tvo lltra afvatni brenn-
irðu 150 kalórlum aukalega. Vertu alltaf
með vatnsflösku hjá þér og fýlltu hana
reglulega afísköldu vatni.
TaygBuá
Rannsóknir hafa sýnt að Ihugun og teygjur
hafa góð áhrifá appelslnuhúð. Teygjurnar
bæta blóðstreymiö og slétta úrhúðinni.
Mikið úrval af listmálaravörum
riniia#>j mm
Vf %!%■««%■■■■■■%
Járn og gler ehf - Skútuvogur 1
Barkarvogsmegin - S :5858900
Listalagerinn
www.jarngler.is
Stuttar vegalengdir
www.aman.is
S. 533 1020
Erum fluttir að Háteigsvegí 1
{gamía austurbæjar apótektð)
VERSLUN VINGERÐARM ANNSINS
létta lífið
„Ég kom inn í reksturinn árið 1991 en maðurinn minn
hefur rekið tískuvöruverslanir hér á Akureyri í mörg ár,"
segir Vilborg Jóhannsdóttir sem rekur tískuvöruverslan-
imar Centro á Akureyri ásamt manni sínum Úlfari Gunn-
arssyni. Vilborg er lærður viðskiptafræðingur frá Háskóla
íslands og fatahönnuður frá Köbenhavns mode og design
skole, Hún er fædd og uppalin í Hafiiarfirði en flutti norð-
ur til Akureyrar þegar htín fékk draumastarfið árið 1987.
„Ég var söiustjóri hjá Skinnaiðnaði Sambandsins í sex
ár og eftir að hafa farið í bameignarleyfi fór ég yfir í rekst-
urinn með Úlfari," segir Vilborg sem hefur einnig kennt
markaðsrannsóknir við Háskólann á Akureyri og er auk
þess skipaður prófdómari við háskólann.
Oft kalt á hjara veraldar
Aðspurð segist hún ekki á leiðinni suður aftur. Hún
kunni vel við sig á Akureyri og þar ætli hún að vera. „Við
höfum það mjög gott héma en íhuguðum um tíma að ráð-
ast inn á markaðinn í Reykjavík og vorum komin með
leigusamning í Smáralind. Við ákváðum hins vegar að
halda okkur hér fyrir norðan," segir hún.
Centro-verslanimar em tvær, ein í göngugötunni á Ak-
ureyri og önnur í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. „Versl-
unin í miðbænum er þrisvar sinnum stærri og þar em okk-
ar aðalstöðvar. Þar er úrvalið og lagerinn auk þess sem við
eigum húsnæðið. Úr miðbænum gerum við allt út og
erum þar með skrifstofu. Miðbærinn er mjög öflugur og
góð staðsetning en þar sem við erum á norðurhjara er ekki
alltaf hægt að treysta á gott veður og þegar kalt er sækir fólk
í verslunarmiðstöðvar. Á Glerártorgi höfum við aðgang að
fjölsóttustu yfirbyggðu götu á Akureyri. Sú verslun er
minni en þangað kemur fólk alls staðar að og kannski
sumir sem gefa sér ekki tfrna til að fara í miðbæinn svo ég
held að með þessu náum við í fjölbreyttari kúnnahóp."
Margir litir í tísku
Þótt það sé heldur hráslagalegt um að litast á Akureyri
um þessar mundir er ekki hægt að sleppa Vilborgu án þess
að spyija hana út í sumartískuna. „Þetta er bara smáhret
„Með hjálp einstakra tengdafor-
eldra minna tekst okkur ótrúlega
vel að samtvinna þetta en við
erum bæði i fullu starfí við fyrír-
tækið og vinnum jafnt heimilis-
störfín og það sem viðkemur böm-
unum*
Vilborg Jóhannsdóttir „Verslunin Imiðbænum erþrisvarsinnum
stærri og þar eru okkar aðalstöðvar. Þar er úrvalið og lagerinn auk
þesssem við eigum húsnæðið."
og vonandi vísbending um eitthvað ótrúlega gott," segir
hún brosandi en bætir við að það verði mikið um vafða
kjóla, þröngar buxur og há stígvél.
„Það verður mikið úrval af litum, bæði þessir ljósu og
léttu og sterkir litir eins og rautt, grænt, appelsínugult,
svo það ættu allir að geta fundið þá tóna sem þeim hent-
ar," segir hún og bætir við að í Centro fáist praktískur
fatnaður í góðum stærðum á sanngjörnu verði.
Jafnræði á heimilinu
Vilborg og Úlfar eiga tvö börn saman, 13 ára stelpu
og 10 ára strák. Hún segir Akureyri barnvænan bæ,
vegalengdirnar séu stuttar og því kannski auðveldara
að sameina foreldrahlutverkið við bisnesinn. „Með
hjálp einstakra tengdaforeldra minna tekst okkur ótrú-
lega vel að samtvinna þetta en við erum bæði í fullu
starfi við fyrirtækið og vinnum jafnt heimilisstörfin og
það sem viðkemur börnunum. Ég fer hins vegar meira
til útlanda að versla. Við erum líka heppin því börnin
eru frísk og dugleg og þar sem við búum miðsvæðis
geta börnin alltaf komið til okkar og við sömuleiðis far-
ið heim með stuttum fyrirvara." indiana@dv.is
' -'rrr
. m
islönaKuf
Hreinsiprógram fýrir líkamann
Vaðgelmir fyrir ristilinn - Suttungamjöður fyrir blóðið - Þaraduft fyrir húðina
JURTAIAPOTEK
laugavegi 2 -101 Reykjavík - Sími 5521103 - www.jurtaapotek.is
Athafnakonan
Vilborg Jóhannsdóttir rekur tískuvöruversl-
anirnar Centro á Akureyri ásamt eiginmanni sínum Úlfari
Gunnarssyni. Vilborg er lærður viðskiptafræðingur og fata-
hönnuður sem hún segir góðan grunn í rekstri tískuvöruversl-
ana en hún er auk þess prófdómari við Háskólann á Akureyri.