Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 46
58 FÖSTUDACUR 26. MAl2006
Helgin DV
Sesselja Ósk Kristjánsdóttir var feit sem
barn. Hún hefur barist viö átröskun og
rokkar upp og niöur í þyngd. Með hjálp
móður sinnar og geðlæknis hefur
Sesselja náð tökum á lífi sínu og féllst á
að segja DV sögu sína í von um að það
geti hjálpað þeim sem eru í svipuðum
sporum.
í sífelldri baráttu
við átröskunina
Eg var alltaf vel þétt," segir Sess-
elja Ósk Kristjánsdóttir, 31 árs
þriggja barna móðir, sem
barist hefur við aukakílóin frá því
hún man eftir sér. „Ég og æskuvin-
kona mín vorum báðar bollur og
klæddum okkur eftir því. Við vorum
alltaf í jogging-göllum en gátum ekki
klætt okkur í flott föt eins og grönnu
stelpurnar."
Hrundi niður í þyngd
Þegar Sesselja lenti í alvarlegu
slysi byrjaði hún að grennast. „Allt í
einu var ég orðin mjög grönn og far-
in að geta klætt mig í almennileg
föt," segir hún en á þessum tíma
gerði hún sér ekki grein fyrir að
átröskunin væri farin að gera vart við
sig. „Ég hélt mér grannri þangað til
elsti strákurinn minn fæddist, árið
1997, en eftir meðgönguna var ég
komin upp í 108 kíló og feitari en
nokkru sinni. Þá kynntist ég Herba-
life," segir Sesselja og bætir við að
Herbalife hafi hjálpað henni rosa-
lega mikið og sérstaklega við að
koma henni af stað.
„Ég átti hins vegar að borða með
fæðubótarefninu en gerði það ekki
og hrundi því niður í þyngd. Á að-
eins tveimur mánuðum hafði ég lést
um 47,5 kíló sem er náttúrulega
óeðlilega mikið," segir hún og bætir
við að hún hafi verið dugleg að
hreyfa sig meðfram Herbalife-inu.
Kastaði upp á meðgöngunni
„Ég náði að haida mér svona
grannri þar til ég varð óffísk aftur
árið 2001. Þá þyngdist ég upp í 86
kíló en náði því af mér án hjálpar
Herbalife. Ég fór í leikfimi á fullu og
passaði mig í mataræðinu en fljót-
lega náði átröskunin yfirhöndinni."
Sesseljá segist hafa borðað og ælt
og svelt sig til skiptist en á þessum
tíma var hún aðeins 26 ára. Árið
2003 varð hún svo aftur ófrísk og
hugsaði ekki um annað en hvort
hún myndi fitna. „Ég kastaði meira
að segja upp nokkrum sinnum á
meðgöngunni því ég var svo hrædd
um að fitna aftur," segir hún. Þegar
þriðja barnið var komið í heiminn
var hún 78 kíló.
Hingað og ekki lengra
„Fyrir fjórum mánuðum síðan
fór ég að hugsa málið. Ég er komin
Fyrir Þegar Sesselja var sem þyngst var hún komin upp 1108 klló.
með þrjú lítil börn og langar ekkert
að drepa mig á þessu rugli. Um tíma
var ég komin niður í 58 kíló og þótt
ég sé ekki hávaxin, rétt um 164 sm,
þá er ég stórbeinótt.
Einn morguninn tók ég ákvörðun
og sagði við sjálfa mig að þetta gengi
ekki lengur og ákvað að vinna með
mínum geðlækni og borða reglu-
lega," segir Sesselja og.bætir við að
mamma hennar hafi stutt hana í
gegnum þetta. „Mamma hefur verið
mín stoð og stytta og hjálpað mér
rosalega og í rauninni veit ég ekki
hvernig ég væri í dag ef hún hefði
ekki gert allt í hennar valdi til að
hjálpa mér."
„Fjölskyldanog vinir
mínir hafa sagt mér að
ég sé mun sætari
svona en þegar ég er
grennri. Þá sé ég svo
kinnfiskasogin. Ég er
að vísu ósammála en
er farin að taka mark
á fólkinu í kringum
mig."
Sjálfselska að drepa sig frá
börnunum
Sesselja gengur til geðlæknis út
af átröskuninni. „Pétur Hauksson
geðlæknir hefur hjálpað mér rosa-
lega mikið og ég skrifa niður allt
sem ég borða og fylgist þannig með.
í dag kemur sjaldan fyrir að ég borði
of mikið og æli á eftir enda ætla ég
ekki að vera það sjálfselsk að drep-
ast frá börnunum. Ég sætti mig við
að vera 62 kfló. Fjölskyldan og vinir
mínir hafa sagt mér að ég sé mun
sætari svona en þegar ég er grennri.
Þá sé ég svo kinnfiskasogin. Ég er að
vísu ósammála en er farin að taka
mark á fólkinu í kringum mig," seg-
ir hún en þetta er í fyrsta skiptið
sem Sesselja hefur haldið sér í sömu
þyngdinni í svo langan tíma. Hing-
að til hefur hún alltaf rokkað upp og
niður.
Lífið snýst um spik
Sesselja segist þó gera sér grein
fyrir að átröskun sé sjúkdómur sem
hún muni berjast við alla ævi, rétt
eins og með alkóhólisma. „Líf mitt
snýst um spik og börnin mín auðvit-
að. Ég er alltaf að passa mig að detta
ekki aftur. Ég reyki og vil ekkert
frekar en losna við þá fíkn en er svo
hrædd um að fitna ef ég hætti," seg-
ir Sesselja sem hefur þó verið reyk-
laus í tvær vikur.
Aðstoð fjölskyldunnar
Þegar Sesselja er beðin um ráð
handa konum sem eru í svipuðum
sporum segir hún nauðsynlegt að
f dag Sesselja hefur sjaldan verið grennri en verður að passa sig að láta átröskunina ekki ná
völdum. DV-mynd Heiða
rétt sé farið að hlutunum. „Þetta er
sjúkdómur sem er kominn til að
vera. Maður verður ailtaf að passa
sig, hreyfa sig og borða rétt. Ég þori
aðeins að borða tvær til þrjár mál-
tíðir á dag en ég veit að það er betra
að borða fleiri. Besta ráðið er að
borða til að lifa en ekki borða bara til
að borða," segir hún og bætir við að
hún ætli að kíkja á fundi hjá OA-
samtökunum í næstu viku. „Ég er
búin að vera á leiðinni í nokkurn
tíma og núna ætla ég að drífa mig.
Þetta má ekki vera eitthvert leyndar-
mál því þér gengur miklu betur ef
fjölskyldan stendur með þér í
þessu."
indiana@dv.is
ÚTREIKNINGUR
1. 3. 5. 7.
a=2 a=2 a=2 a=3
b=l b=l b=l b=l
c=3 c=3 c=3 c=2
2. 4. 6. 8.
a=3 a=3 a=3 a=2
b=2 b=2 b=2 b=1
C=1 C=1 C=1 c=3
8-14 stig:
Þú veist varla hvað megrun er en heldur þér
samt í formi með heilbrigðum lífsstil og hreyf-
ingu. Haltu áfram á þessari braut!
15-19 stig:
Þú hefur orðið fyrir nógu miklum vonbrigðum
í megrunum og veist því betur. Þú veist að
grannur líkami er ekki alltafþað sama og
heilbrigður líkami. Passaðu þig að láta ekki
glepjast afnýjustu megruninni og hentu bað-
vigtinni í ruslið.
20-24 stig:
Þú manst ekkfeinu sinni eftir sjálfri þér öðru-
vísi en i megrun. Lífið þitt einkennist af
allskyns megrunarkúrum sem sjaldnast hafa
áhrifnema siður sé. Hættu þessu rugli. Borð-
aðu hollan mat og nóg af honum og mættu
reglulega í ræktina. Þannig nærðu takmarki
þínu!
Ertu ALLTAF í megrun?
1. Hversu margar bækur um megrun
eru í bókahillunni þinni?
a. 2-5.
b. Engin.
c. Fleiri en fimm.
2. Trúir þú að hin fullkomna megrun
sé til, þú hafir einfaldlega ekki fund-
ið hana enn þá?
a. Já!
b. Kannski.
c. Nei.
3. Hversu margar megrunaraðferðir
hefúr þú prófað?
a. 3-5.
b. Ég fer aldrei í megrun.
c. Fleiri en sex'
6. Þegar kemur að bví að telja kalor-
íur ert þú:
a. Sérfræðingur.
b. Nokkuð vel að þér.
c. Óviti.
7. Hversu lengi hefurðu haldið þér á
ákveðnu mataræði?
a. Lengur en 9 mánuði.
b. Skemur en 3 mánuði.
c. 3-9unánuði.
8. Þegar þú heyrir af nýrri megrun:
a. Geri ég litla rannsókn áður en ég
prófa hana.
b. Hugsa ég ekkert meira út í hana.
c. Byrja ég strax á henni.
4. Myndu vinir þínir segja að þú
værir alltaf í megrun?
a. Já.
b. Kannski.
c. Nei.
5. Þú fórst síðast í megrun:
a. Fyrir sex mánuðum.
b. Fyrir ári.
c. Þú ert í megrun.
MkOoi]