Símablaðið - 01.05.1992, Síða 6
INNANLANDS-
SÍMAÞJÓNUSTA
ÓDÝRUST Á ÍSLANDI
Philip Bowyer, aðalritari Alþjóðasambands póst- og símamanna, hélt erindi og svaraði
fyrirspurnum varðandi hugmyndir um einkavæðingu Pósts og síma 11. maí sl. að Hótel
Sögu. Hann varaði við einkavæðingu símaþjónustunnar sem skilaði sér hvorki í betri þjón-
ustu né lægri gjöldum. Hann taldi áhugavert fyrir erlend fyrirtæki að kaupa Póst og síma.
Hann taldi að menn þyrftu að spyrja sjálfa sig hvort eitthvað væri að rekstri Pósts og síma
áður en farið væri í að einkavæða fyrirtækið og hvort það leysti vandann ef einhver vandi
væri fyrir hendi.
Philip flutti ítarlegt erindi og svaraði fjölmörgum fyrirspurnum. Hér verður stiklað á
helstu atriðunum, en erindið og fyrirspurnirnar verður gefið út í bæklingi.
Fuglarnir gera það.
Býflugurnar gera það.
Meira að segja menntaðar flær gera það.
Gerum það líka.
Það er stundum gefið í skyn í lærðum
tímaritum, á háfleygum fundum og ráð-
stefnum, eða með orðum lærðra eða jafnvel
leikra ráðherra, að einkavæðing símfyrir-
tækja fari nú sem eldur í sinu um heim all-
an.
Rétt eins og húlahringirnir á sjötta ára-
tugnum, eða Bítlarnir á þeim sjöunda, vasa-
diskóin á þeim áttunda og Ninja skjaldbök-
urnar á níunda áratugnum.
Ef mönnum geðjaðist ekki að hlutnum
eða hugmyndinni voru þeir taldir gamaldags
og ekki með á nótunum.
Núna er okkur sagt að ef við viljum ekki
einkavæða símaþjónustu þá séum við gam-
aldags, ekki með á nótunum, á móti fram-
förum og kannski ýmislegt verra.
Ég býst þó við að þessi tískubóla hjaðni
eins og aðrar, eða að raunveruleikinn fái
hljómgrunn aftur.
í öllum ríkjum Yestur-Evrópu
eru símafyrirtæki í eigu ríkisins
nema í Bretlandi
Það er einnig vel þess virði að kynna sér
goðsögnina um að allir séu að gera það.
í Bandaríkjunum og Kanada hafa símfyr-
irtæki verið í einkaeigu undir ströngum regl-
um svo lengi sem elstu menn muna.
í Evrópu var breska símamálastofnunin
einkavædd árið 1984. En í öllum öðrum ríkj-
um Vestur-Evrópu eru símfyrirtæki enn í
eigu ríkisins, þrátt fyrir ýmsar breytingar í
kerfinu.
Sé litið til Asíu má sjá að í Japan hefur
síminn verið einkavæddur að hluta, en þó á
ríkið enn 62 prósent hlut í fyrirtækinu og
það fyrirtæki sem sér um símtöl til útlanda
er enn í ríkiseign.
90 prósent af nýsjálenska símanum voru
seld til tveggja bandarískra fyrirtækja. Hins
vegar hefur nýlega verið ákveðið að ástr-
alski síminn verði áfram almenningseign.
Síminn einkavæddur í
vanþróuðum ríkjum
Hins vegar er rétt að talsvert hefur verið
um einkavæðingu í Suður-Ameríku, Argen-
tínu, Chile, Venezuela, Mexíkó og víðar.
I Austur-Evrópu virðist einnig stefna í
einkavæðingu símaþjónustu, í löndum eins
og Póllandi, Tékkóslóvakíu, Ungverjalandi
og víðar.
4 SÍMABLAÐIÐ