Símablaðið - 01.05.1992, Síða 13
Fréttir...
Sextándi Landsfundur FÍS
Sextánda Landsfundi FÍS lauk í húsa-
kynnum BSRB að Grettisgötu 89, 7. febrúar
’92.
Aðalefni fundarins var að fjalla um lög
félagsins og hafði þeim þætti dagskrár verið
frestað á fyrrihluta fundarins að Flúðum,
24-26. september.
Nefnd var kosin á Flúðum til að koma
með tillögu til lagabreytinga. Tillögur
nefndarinnar voru síðan teknar til meðferð-
ar á fundinum og að lokum samþykktar
samhljóða.
Frá landsfundinum er sagt í 3.-4. tbl
Símablaðsins á sl. ári á bls. 40 til 49. Ný lög
FÍS eru birt hér í blaðinu.
Mikil umræða var um stöðuna í samn-
ingamálum á landsfundinum og um einka-
væðingahugmyndir. Samþykktir þar um eru
birtar hér í fréttaþætti blaðsins.
7.2292
BSRB 50 ára
Haldið var upp á 50 ára afmæli BSRB í
Borgarleikhúsinu þann 29. febrúar. BSRB-
fólk, gestir, vinir og velunnarar fjölmenntu í
afmælisveisluna. Dagskrá var fjölbreytt.
Ræður, söngur og upplestur í stóra sal hússins
og allskyns uppákomur í anddyrinu á eftir.
Fjölmörg samtök og einstaklingar sendu sam-
tökunum gjafir og kveðjur. Fólk lét vel yfir
þessari menningarlegu samkomu sem Ragn-
heiður Ásta Pétursdóttir stjórnaði.
Símamenn verja réttindi sín
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi
Félagsráðs og á aðalfundi FÍS 12. maí:
Að undanförnu hefur átt sér stað umræða
um einkavæðingu Pósts og síma. Nefnd hef-
ur verið falið að fjalla um það mál og opin-
bert hefur verið gert álit ráðherra og póst-
og símamálastjóra í því efni.
Félagsráð vekur athygli á að verði Póstur
og sími gerður að einkafyrirtæki verður
mjög mikil breyting á starfskjörum félags-
manna.
Fulltrúar félagsmanna hafa ekki verið
kallaðir til samráðs eða umræðna um þetta
efni. Félagsráð telur það mjög óeðlilegt og
ekki líklegt til árangurs að sniðganga þá
sem mestra hagsmuna eiga að gæta.
í tilefni þessa samþykkir Félagsráð FÍS að
komi til þess að ráðningarkjörum félags-
manna verði breytt samþykkir það ekki, eða
mælir með að samþykkt verði að áunnum
réttindum verði afsalað.
í áratugi hafa stjórnvöld réttlætt léleg
laun félagsmanna með því að þeir hefðu
ýmis réttindi umfram aðra svo sem bið-
launarétt.
Komi til þess að nota þurfi áunnin rétt-
indi kemur ekki annað til greina en að það
verði gert. Biðlaunaréttur er ekki launarétt-
ur í venjulegum skilningi heldur trygging
sem greidd hefur verið að fullu með skert-
um launakjörum.
BSRB, BHMR,
Hjúkrunarfélag Islands og
✓
Kennarasamband Islands
Það bar til tíðinda á Hótel Loftleiðum 28.
febrúar 1992 að opinberir starfsmenn héldu
sameiginlega ráðstefnu. Þessar stéttir hafa
ekki fundað saman á þennan hátt síðan 1971
að háskólamenn gengu úr BSRB og síðar
kennarar og hjúkrunarfræðingar.
Á ráðstefnunni var fjallað um:
- Heilbrigðis- og tryggingamál.
- Skóla og rannsóknir.
- Öryggismál og almannaþjónustu
- Nýja starfsmannastefnu.
- Margfeldisáhrif af niðurskurði.
- Áhrif niðurskurðar á þjóðfélagsgerðina.
- Langtímaáhrif á menntun, menningu og
lífsskilyrði.
Um málaflokkana var fjallað af fagmönn-
um er best þekkja til. Þarna komu fram
mjög hagnýtar upplýsingar sem gagnast vel í
baráttunni við að viðhalda íslenska velferð-
arkerfinu.
Almenn ánægja var með að opinberir
starfsmenn væru aftur farnir að vinna saman
að sínum málum.
SÍMABLAÐIÐ 11