Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 29

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 29
Söngur er lífsins yndi Nú er Símakórinn okkar orðinn rúmlcga eins árs og hefur hann þegar skipað sér fastann sess hjá okkur símafólki. Ef eitthvað er um að vera, finnst okkur sjálfsagt að Símakórinn taki lagið og lífgi upp á tilveruna. Þann 8. apríl fór kórinn austur í Hvera- gerði og söng þar fyrir dvalargesti á Nátt- úrulækningaheimilinu. Var það fyrsta opin- bera söngferð kórsins og tókst hún með af- brigðum vel. Áheyrendur voru mjög jákvæðir og þó nokkuð margir sögðu við undirritaða eftir tónleikana, að þetta væri einhver sú albesta skemmtan sem að þeir hefðu fengið að njóta á þessum stað. Ung stúlka Anna Björk, dóttir símahjónanna Guðrúnar Jónsdóttur, talsímavarðar og Ól- afs Eyjólssonar, símritara i Gufunesi, söng einsöng og heillaði alla með sinni fallegu rödd og hugljúfri framkomu. Fyrirhugað var að hjónin Hafsteinn Guð- mundsson, símritari og kona hans Allý, ásamt Þórdísi Rúnarsdóttur og Halldóri Victorssyni sýndu dansatriði, en því miður var ekki hægt að koma því við vegna þess að sviðið var of lítið og gólf teppalögð. Von- andi fáum við að sjá þau sýna listir sínar síð- ar. En stjórnandi kórsins, Kjartan Sigurjóns- son sýndi og sannaði að hann getur meira en haft stjórn á söngglöðu fólki. Fyrirvara- laust steig hann upp á svið og reitti af sér brandarana svo að allir veltust um af hlátri. Þá las undirrituð upp ljóð eftir Ingibjörgu Jónsdóttur talsímavörð frá Kjós, en í því ljóði lýsir hún 40 ára starfsferli sínum hjá Pósti og síma. Hafði fólk gaman af þeirri lýsingu, enda er Imma okkar húmoristi og kann að gera gaman úr hlutunum. Kynnir var formaðurinn okkar Ragnhild- ur Guðmundsdóttir og fórst henni það að sjálfsögðu vel úr hendi. Þessi söngferð var símakórnum til sóma og megum við vera hreykin af honum. Eg vil skora á allt símafólk sem hefur söngrödd, sem þolir að fara út fyrir baðher- bergið og hefur gaman af að syngja, að taka þátt í söngstarfi Símakórsins. Þetta er með afbrigðum skemmtilegur hópur, jákvæður og lifandi. Það er mikils virði að vera með í góðum félagsskap og við vitum öll hvað það er gaman að syngja saman. Og hugurinn er svo mikill meðal söngfélaga, að það mætti segja mér að ekki liðu mörg ár áður en þau fara út fyrir landsteinana og leyfa símafólki í nágrannalöndunum að hlýða á söng sinn. Kristjana H. Guðmundsdóttir. SÍMABLAÐJÐ 27

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.