Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST2006 Fréttir DV • Hallgrímur Geirs- son lætur brátt af störfum sem fram- kvæmdastjóri Morg- unblaðsins. Hann lýsti nýlega, í góðra vina hópi, hvaða kost- um eftirmaður sinn ætti að vera búinn. Sá verður að vera með blátt blóð í æðum, aldrei kenndur við vinstrimennsku, af þekktri íhaldsætt, helst úr Reykjavík. Og algerlega óflekkað mannorð og góða menntun. Það er ekki furða að illa hafi gengið að hafa uppi á þessu „ofurmenni" íhaldsaflanna hér á landi og það er enn ekki fundið nú sjö mánuðum eftír að leit hófst, að því er við best vitum... • Stefán Pálsson sagnfræðingur er ekki hrifinn af því að Skjár 1 auglýs- ir að rokkstjörnuþátturinn sé vin- sælastí erlendi þáttur í íslensku sjónvarpi i frá upphafi með 70% áhorf. Hann blogg- ar nýlega um að þetta sé augljóslega rangt. „Meðan RÚV var eitt í á markaðnum hafa margir þættir náð þessum árangri. Mig rámar í að hafa séð gamla frétt frá 1982-3 þar sem Löður (Soap) var í 75% og Tommi og Jenni skammt þar á eftir. Hvað ætli Dallas hafi hæst farið upp í? Ekki minna en 80% myndi ég giska á," segir Stefán með- al annars... • Orðið á götunni bloggar mik- inn um Reyni Traustason og áform hans um að stofna nýtt blað. Veður þar uppi hvert „skúbb- ið" á fætur öðru um það sem Reynir er að gera. Meðal ann- ars er greint frá fundi sem Reynir og sonur hans Jón Trausti áttu á Hótel Borg með 111- uga Jökulssyni. Er leitt getum að því að Reynir hafi verið að ráða Illuga til vinnu hjá sér. Annars mun Reyn- ir vera kominn með skrifstofur fyrir blað sitt. Eru þær staðsettar á Lauga- veginum, nánar tiltekið neðarlega í grennd við Bankastrætið... • Illugi er véfréttarlegur í tílsvörum þegar hann er spurður um þenn- an fund og sjálfur er Reynir þögull sem gröfin um áform sín og er það hluti af markaðssetningu hans. Hins vegar mun ekki bara eitt vikublað á borð við DV vera uppi á pallborðinu hjá honum. Inni í mynd- inni er að vera líka með mánaðarrit í anda Mannlífs og vikurit á borð við Séð og heyrt eða Hér & nú og jafnvel fleira. Annars er það helst að frétta af þessum áformum að D-dagur íýr- ir útgáfuna verður í október... • Það vakti athygli hve vel fór á með þeim Steingrími J. Sigfússyni og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í settinu á NFS á dögunum. Svo vel að „einhver ódýr pr- maskína Sjálfstæðis- flokksins..." einsog Lúðvík Bergvinsson orðaði það daginn eftir í viðtali, gerir að því skóna að VG og Samfylkingin verði með samflot í næstu kosningum. Nafnið á því samfloti verður eflaust dregið af því að bæði Steingrím- ur og Ingibjörg voru í ljósgrænum jökkum á NFS. Tala menn nú um Létt-græna eða Pastel-græna sem nafnið... Sýningar eru hafnar á myndinni Bjólfskviðu beggja vegna Atlantshafsins og er búið að ákveða að frumsýna myndina hér heima þann 31. ágúst. Einn af aðalleikurunum í Bjólfs- kviðu, Gerard Butler, verður viðstaddur frumsýninguna. Friðrik Þór Friðriksson, ann- ar íslensku framleiðenda Bjólfskviðu, kveðst vera í skýjunum yfir góðum dómum sem myndin hefur fengið í Bandaríkjunum. „Góð blóðug skemmtun sem hrærir í gáfunum" Bill Gallo, kvikmyndagagnrýnandi Village Voice, er mjög hrifinn af Bjólfskviðu. Hann segir að Butler sveifli sverðinu betur en nokkur í myndunum Troy, Kingdom of Heaven eða Tristan & Is- olde. Þær myndir hafi þar að auki ekki nema þriðjunginn af hin- um grófa og lúmska húmor Bjólfskviðu. Kvikmyndin Bjólfskviða verður Ropum í miði frumsýnd í Háskólabíói fimmtudag- Glenn Sumi, inn 31. ágúst. Einn af aðalleikurum myndarinnar, Gerard Butler, verður viðstaddur frumsýninguna. Myndin er nú sýnd í Bandaríkjunum og Evr- ópu og hefur fengið mjög góða dóma víða í bandarískum fjölmiðlum. „Ég er alveg í skýjunum með hina góðu dóma sem myndin fær vestanhafs," segir Friðrik Þór Friðriksson, ann- ar íslensku framleiðenda myndar- innar. „Það er ekki hægt annað en vera ánægður með dómana sem lofa góðu um framhaldið." kvikmyndagagn- rýnandi Now Magazine, er hrifinn af efnistökum leikstjórans Sturlu Gunnarssonar. „Höldum á loft glasi af miði og ropum hátt af ánægju," segir Sumi meðal annars í umfjöllun sinni um myndina. Hann kallar út- gáfu Sturlu „saltaða og grófa" og seg- ir meðal annars að hvað mest aðlað- andi við myndina sé hve vel Sturla nýti sér stórbrotíð og tilfinningaríkt landslagið án þess að upphefja það í rómantísku ljósi. „Það er þess virði að sjá þessa mynd á stóru tjaldi, hún tapar miklu á DVD," segir Sumi. Skorin að beini „Með því að skera níundu aldar ljóðið um Beowulf niður að beini og taka það upp með stálslegnu raun- sæi hefur ... leikstjóranum Sturlu Gunnarssyni tek- ist að búa tíl eitthvað óvenjulegt frá þess- ari miðaldasögu um hefnd og uppgjör," segir Geoff Pevere hjá Tor- onto Star meðal um myndina. Vanessa Farquarson hjá Natíonal Post nefnir hið fýndna í myndinni og segir: „Gunnarsson rennbleytir Beowulf í áfengi, hór- um og tröllabröndurum sem gerir myndina að algerlega frumlegri teg- und skemmtunar." annars umfjöll un smm m Bjólfskviða Góð blanda afáfengi, hórum og tröllabröndurum. Gerard Butler Verður viðstaddur frumsýning- una I Háskólabió. Friðrik Þór Friðriksson Er f skýjunum yfir góðum dómum vestanhafs. Orkuveita Reykjavíkur skiptir út bílaflotanum og breytir um lit Boðið upp á hvíta bíla frá B&L Orkuveitan sagði upp bílaþjón- ustusamningi sínum við Véla- miðstöðina ehf. í kjölfar þess að Reykjavíkurborg og Orkuveitan seldu fyrirtækiðl5.ág úst 2005 á sam- tals 735 millj- ónir króna, en kaupandi var íslenska gámafélag- ið ehf. Borg- in átti 67% í Vélamið- stöðinni en OR 33%. Orkuveitan ákvað í fram- haldi af sölunni r að bjóða út bíla- Renault Kangoo Einafþeim þjónustufyrirtækisins. Sam- bjitegundumsem Orkuveitan ið var um kaup á bílum frá ^ frá B&L er Reanualt Kangoo. Bifreiðum og landbúnaðarvélum og hafa fyrstu 16 bílarn- ir þegar verið afhent- ir en sam- kvæmt útboð- mu kveðið á um 30 bíla. Alls eru 200 bílar á vegum Orku- veitunnar og verður þeim öllum skipt út í kjölfar þessara breytinga. Eftirleiðis verða allir bílar Orku- veitunnar hvítir en nokkur ár mun taka að endurnýja flotann. Lita- breytingin er þáttur í að skapa fyr- irtækinu hreinlegri ímynd en einn- ig þykir hvíti liturinn sjást betur í umferðinni. Bílarnir sem keyptir eru af B&L eru af gerðinni Hyundai og Renault en ákvæði um endurkaup á bílun- um eftir þrjú ár eru í samningnum auk þess sem B&L mun sjá um alla þjónustu og við- gerðir á bílunum. kormakur@dv.is Næsti bar við Eldey Hópur gesta sem sækir eðal- barinn Næsta bar mun bregða undir sig betri fætínum á laugar- dag og halda í siglingu í kringum Eldey. Farið verður með rútu frá Næsta bar tíl Sandgerðis þar sem stígið verður um borð í hvalaskoð- unarskipið Moby Dick. Að sögn Guðmundar Inga, verts á Næsta bar, verður ekki einungis um skoðunarferð að ræða heldur gefst hópnum einnig færi á að reyna á hve fisknir þeir séu því sjóstang- ir verða til reiðu um borð. „Þetta verður svona 30 til 40 manna hópur sem fer héðan og ætlar að skemmta sér eina dagstund," segir Guðmundur Ingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.