Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST2006
Fréttir DV
Ummæli vikunnar
„Mér finnst að flokksþing Fram-
sóknarætti að vera hluti af skemmti-
atriðum Menningarnætur. Gæti verið
skemmtilegur listrænn gjörningur. Þar
gætu verið skemmtiatriði eins og
fjölbragðaglíma á milli Kidda sleggju
og Binga. Djössum það upp og höfum
þá í leðju og leðurþvengjum. Einnig
væri hægt að fara inn í herbergi þar
sem Jón Sigurðsson situr fyrir svörum!
Það væri jafnvel hægt að setja
Valgerði Sverrisdóttur inn í skáp og
henda grastorfu inn með henni.
Atriðið gæti kallast; sjö mínútur í
helvíti." Valur Grettissoií blaðamaður
á Blaðinu bloggar á heimasiðu sinni
grettisson.blogspot.com um
hugsanleg atriði á Menningarnótt.
Þarna eru
komnar fram
einu hugmynd-
irnarsem gætu
bjargað
Framsókn í næstu
kosningum. Sleggjan
og Bingi í leðjuslag og
Valgerður lokuð inni i
skáp með leifunum
afgrasrót
flokksins.
„Nú erum við ýmist„einstaklingar"
eða„aðilar". Þetta eru svo Ijót og
ópersónuleg orð að þegar ég heyri
þau dettur mér alltaf í hug hálslausi
karlinn í samfestingnum sem skreytir
hurðir karlaklósettanna. Aldrei sé ég
fyrir mér hálslausu konuna í kjólnum
framan á kvennaklósettunum því
þessi orð eru bæði karlkyns."
Einstaklingurinn Gerður Kristný
lætur móðann mása á baksíðu
Fréttablaðsins.
Ja hérna og við sem
& < «' ■ töldum að fslendingar
.. Bh væru orðnirsvo
Æ framarlega íjafnréttis-
™ baráttunni að þau
' hálslausu væru horfin
\ afklósettunum.
„Er það sjálfsagt að frambjóðendur í
prófkjöri fjármagni kosningabaráttu
sína með fjárhagslegum stuðningi
vina og velunnara? Hvenær breytast
þeir hinir sömu í kröfugerðarmenn á
hendur frambjóðendanum og vilja fá
eitthvað fyrir sinn snúð?" Staksteinar
i Morgunblaðinu að tala fyrir þeirri
afleitu hugmynd að prófkjör séu
borguð af skattborgurum landsins.
Hvernig erþað Styrmir. Hafa vinirog
velunnarar Sjálfstæðis- flokks-
ins í gegnum tíðina
aldrei fengið neitt
fyrir sinn snúð? Eða
hafa þeir fengið
svo mikið að
flokkurinn hefur
aldrei Ijáð máls á því
að gera bókhald sitt
gegnsætt?
„Dæmigerður íslenskur strákur er
svo bældur að hann þarf að vera
drukkinn til að bera sig eftir stelpu.
Hér vantar afslappaðra viðhorf til
tilverunnar þar sem staðalímyndir eru
ekki í hávegum hafðar heldur
fjölbreytileikinn." Víkverji Morgun-
blaðsins með hugleiðingar um
vandamál íslenskrar æsku.
Þetta erlaukrétt. Komum þessum
strákum í kynni við latex og leður og
sendum þá á BDSM-námskeið.
„Flesta hefur dreymt um að vera
eitthvað annað en þeir eru. Þær sýna
manni að það sé hins vegar ekki alltaf
dans á rósum. Líkt og þegar þær
ætluðu að gerast fatafellur. Það var
frekar eins og dans á þyrnum stráðum
súlum." Valur Grettisson blaðamaður
á Blaðinu að lýsa aðdáun sinni á
þáttunum Pípóla á Sirkus.
Valur, sem eina aðdáanda þessara
þátta, verðurað benda þér á eftirfar-
andi. Þættirnir eru þyrnar íaugu og
eyru áhorfenda því þessar skvísur eru
alls ekki það sem þær reyna að vera,
það er skemmtilegar.
Þormóður rammi-Sæberg hefur skrifað undir samning um smíði á tveimur nýjum skut-
togurum við Solstrand-skipasmiðjuna í Noregi og er heildarverð samningsins 400 millj-
ónir norskra króna eða 4,6 milljarðar íslenskra króna
Eyða 4,6 milljörðum í
endurnýjun togaraflotans
Skipin eru hönnuð af Skipsteknisk AS í Álasundi en þetta er jafn-
framt stærsti einstaki samningur sem Solstrand-skipasmiðjan
hefur gert. Það er Glitnir sem hefur annast fjármögnunarhlið
verkefnisins en áætlað er að fyrra skipið verði afhent í nóvember
2008 og það síðara í apríl 2009.
„Við teljum að nú sé rétti tíminn til
að ráðast í þetta enda stöðugt leitað
eftir aukinni hagkvæmni í rekstrin-
um. Þetta eru geysilega öflug og góð
skip og þau koma í stað núverandi
þriggja frystiskipa félagsins. Nýju
togararnir eru systurskip og eru þau
70 m. á lengd og 14,69 m. á breidd.
Þau verða hvort um sig búin 8000
hestafla Wartsila-aðalvél. Frystilest-
in er 1500 rúmmetrar og frystigeta
hvors skips verður 80 tonn á sóla
hring. Þau verða með Rogen-raf-
magnsspil og geta dregið tvö troll
í einu," segir Ólafur Helgi Mart-
einsson, framkvæmdastjóri Þor-
móðs ramma - Sæbergs.
Óvíst hvað verður um
metaflaskip síðasta árs
Hvað verður um gömlu tog-
arana er óráðið en væntanlega
munum við reyna að selja
þau. Mánabergið var afla-
hæsti flakfrystitogari landsins
í fyrra og Kleifabergið í öðru
sæti þannig að þetta eru góð
skip með öflugar áhafnir. En við
reiknum með að ná meiri afla-
verðmætum á þessi tvö skip en þau
þrjú sem við gerum út núna. Það er
ekki reiknað með neinum uppsögn-
um vegna þessara breytinga því
áhafnir þessara skipa munu hafa
miklu meiri tekjur en á nú-
verandi skipum og geta
því farið færri túra. I
dag fara menn
gjarnan tvo
túra
móti
einum í fríi en á nýju skipunum geta
þeir farið einn á móti einum," segir
Ólafur.
Miklu hagkvæmari rekstur
„Mikill hluti hagkvæmninn-
ar næst með því að skipin munu
brenna þungolíu, sem er allt að
helm- inei ódvr-
Svona munu hin nýju skip Þormóðs ramma - Sæbergs líta út
skipaolían sem íslenski fiskiskipa-
flotinn notar í dag og auðvitað á
að vera ódýrara að reka tvö skip en
þrjú. Það þótti ekki hagkvæmt að
setja mjölvinnslu í skipin þannig að
þau verða sérhæfð frystiskip en við
reynum að hirða allt nýtanlegt," seg-
ir Ólafur.
Starfsemi Þormóðs ramma -
Sæbergs gengur vel
Þormóður rammi - Sæberg er
með starfsemi á þremur stöðum;
Siglufirði, Ólafsfirði og í Þorlákshöfn.
Auk frystitogaranna Mánabergs,
Kleifabergs og Sigurbjargar, sem
gerðir eru út frá Ólafsfirði, er Múla-
berg SI-22 gerður út frá Þorlákshöfn
en hann veiðir aðallega karfa fyr-
ir frystihúsið en setur einnig hluta í
gáma. Þaðan eru líka gerðir út tveir
bátar, Jón á Hofl ÁR og Fróði ÁR. Þeir
veiða aðaUega flatfisk um haust
og vetur sem unnin er í frysti-
húsinu og humar á sumrin
sem líka er unnin í frysti-
húsinu. Um 50 manns
vinna í frystihúsinu í
Þorlákshöfn.
Rækjuvinnsla
áfram á Siglu-
firði þrátt fyrir
hrun
„Fjórir ís-
rækjutogarar og
einn rækjufrysti-
„Mikill hluti hag-
kvæmninnar næst með
því að skipin munu
brenna þungolíu, sem
er allt að helmingi
ódýrari en skipaolían
sem íslenski fiskiskipa-
flotinn notarí dag og
auðvitað á að vera
ódýrara að reka tvö
skip en þrjú."
togari voru til skamms tíma gerðir út
frá Siglufirði en hrun rækjustofnsins
hefur leitt til þess að þeirri útgerð hef-
ur verið hætt og skipin seld. Eins og
gefur að skilja er það mikið verkefni
að takast á við þegar slíkt hrun verð-
ur og gjörbreyta þarf starfseminni en
það hefur tekist. Nú flytjum við inn
allt hráefni til rækjuverksmiðjunn-
ar, um 5 til 6 þúsund tonn á ári. Um
50 manns vinna við rækjuvinnslu og
pökkun á Siglufirði. Sú rækja fer að-
allega á smásölumarkað í Bretlandi,"
sagði Ólafur ennfremur.
kormakur@dv.is
Nýjung í útvarpsrekstri
Nýbúaútvarp í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær mun á næstu
misserum brjóta blað í útvarps
sögu Islands en þessa dagana
mun heyrast í nýbúum þar í bæ
í svokölluðu nýbúaútvarpi.
„Við ætlum að byrja á þrem
ur stærstu tungumálum ný-
búa hér í Hafnarfirði og sjá
hvernig þetta þróast," segir
Amal Tamini, formaður
Lýðræðis- ogjafnréttis-
nefndarHafnarfjarðar-
bæjar.
Gert er ráð fyr-
ir að nýbúaútvarp-
ið fari í gang í nóv-
ember á þessu ári
en það er sam-
vinnuverkefni
Hafnarfjarðarbæj-
ar, Flensborgarskól-
ans og Alþjóðahúss.
Aðalhugmyndin er að gera upplýs-
ingar fýrir innflytjendur aðgengi-
legar í útvarpi og einnig að
kynna nýbúum Hafnarfjarð-
ar hvað bærinn hefur upp á
að bjóða," segir Amal. Ætl-
unin er að senda beint út
einu sinni í viku í hálftíma
og segir Amal að tíminn
gæti aukist ef vel gengur.
„Ég held að við séum
fyrsta sveitarfélagið
á landinu sem gerir
þetta."
gudmundur@dv.Í5
AmalTamini
Formaður lýðræðis- og
jafnréttisnefndar
Hafnarfjarðarbæjar sem
skipuleggur nú útvarp
fyrirnýbúa.
Ákæra gefin út á hendur mótmælendum
Mótmælendur týndir?
Mótmælendurnir, sem hafa verið
iðnir við að koma sér í fréttirnar fyrir
mótmæli gegn stóriðju á Austurlandi,
mættu ekki íyrir Héraðsdóm Austur-
lands í vikunni. Alls eiga að minnsta
kosti fimmtán manns yfir höfði sér
ákæru vegna þess usla sem þeir hafa
valdið á stóriðjuvinnusvæðum aust-
anlands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sýslumanninum á Seyðisfirði tókst
ekki að klára að þingfesta málið sem
var á dagskrá héraðsdóms í vikunni
vegna þess að einungis hefur náðst í
hluta þeirra mótmælenda sem eiga
yfir höfði sér ákæru. Ekki er vitað hvar
hinir eru - og gætu einhverjir þeirra
hugsanlega verið komnir úr landi.