Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Blaðsíða 56
76 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST2006 Dagskrá DV *» Á dagskrá næstu daga Stöð 2 - Indiana Jones and the Last Crusade -21.20 Stöð 2 hefur undanfarna föstudaga sýnt Indi- ana Jones-myndirnar og er nú komið að þeirri þriðju og síðustu. f henni leitar ævintýrafíkill- inn Indiana að hinum heilaga gral. Jones eldri er leikinn af Sean Connory. f myndinni en honum er rænt af nasistum í öllum hamagangnum. Sjónvarpið - The Original Kings OfComedy - 21.40 Hér er á ferðinni mynd sem er leikstýrt af hinum sér- vitra Spike Lee. Myndin er tekin upp á uppstandssýn- ingu með þeim Steve Harvey, D.L. Hughley, Cedric the Entertainer og Bernie Mac frá árinu 2000. Þeir félagar taka á sitt hvoru málefninu hver og fer Spike Lee með áhorfandann baksviðs sem og út í sal til að upplifa stemmninguna. Skjár einn - Tommy Lee í háskóla - 20.35 Tommy Lee hefur aldrei verið heitari en í kjöl- far Róck Star: Supernova. f kjölfarið á því hóf Skjár einn nýlega sýningar á þáttunum Tommy Lee Goes to College en þeir voru gerðir áður en hann varð meðlimur Tommy vill læra og hefur fengið nóg um og fallegum konum í bili. Við fylgjumst með kapp- anum leysa ýmis verkefni á sirm einlæga hátt. Laugardagur Skjár sport - Liverpool - West Ham -11.15 Fyrsti leikur helgarinnar er með Liverpool líkt og sein- ustu helgi. Þá heimsótti Liverpool nýliðana í Sheffield Utd og reið ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Nú taka bik- armeistararnir hins vegar á móti sterku liði West Ham og spuming er hvort þeir nái betur saman en í fyrsta leikn- Sjónvarpið - ísland - Svíðþjóð - 13.50 íslenska kvennalandsliðið tekur á móti Svíum á Laugardalsvellinum. fslenska liðið tapaði 2-4 fýrir Tékk- um í síðasta leik sínum og mistókst þar með að tryggja sér sætí á heimsmeistaramótinu. Liðsins bíður engu að síður erfitt verkefni gegn geysisterku liðið Svía og um að gera að styðja við bakið á stelpunum. Sjónvarpið - Orange County -21.10 Shaun Bmmder er ungur og efnilegur rithöfundur sem dreymir um að komast inn í Stanford en röð óheppilegra atvika koma í veg fyrir inngöngu hans. Shaun er staðráðinn í að leiðrétta misskilninginn til að láta draum sinn ráðast. Hann fær hjálp frá kærustunni sinni og mjög svo brengluðum bróður sínum sem er leikinn af Jack Black. Frábær grínmynd. Sýn -FH- Breiðablik - 16.45 íslandsmeistararnir sigla lygnan sjó á toppnum með átta stíga forystu þegar kemur að 16. umferð en Blikar eru þremur stigum frá fallsæti. Það er að duga eða drepast fyrir Breiðablik eftir að hafa tap- að tveimur leikjum í röð. Fyrri leikliðanna lauk 1-1 og var Breiðablik fyrsta liðið til hirða stig af FH þetta sumarið. Það getur því allt gerst. M Ll Sigríður Ella talar um þrjósku Leoncie og fjölskyldumanninn Magna Er púkinn að stríða þér? Vetrarpúkinn strýkur mér um vangann Vetrarpúkinn hefur tekið sér bólfestu í mínum skakka skrokki og gerir mér bylt við öðru hverju. Ég hrekk við þegar ég sé krakkaskar- ann fylla bókaverslanir og burðast með allt of stórar skólatöskur sem nokkrir blýantar hringla í niður Bankastrætíð. Foreldramir draga á eftir sér skapvonda unglinga og reyna að troða þeim í vetrarfötin í fataverslunum bæjarins. Fjölskyldumaðurinn frá Bakkagerði Vetrarpúkinn sýnir mér galtóm- an Austurvöllinn sem í sumar ið- aði af lífi og sumarlyktín flæddi um vit þeirra sem lágu í grasinu og datt alls ekki í hug að horfa á sjónvarp- ið. Vildu heldur hittast og spjalla, sýna sig og sjá aðra. Púkinn bendir mér samviskusamlega á að Magni er að standa sig vel í útlöndum og allir fylgjast með þessum sköllótta fjölskyldumanni frá Bakkagerði. Við erum stolt af honum enda hvað annað hægt þegar ijölskyldumað- urinn syngur ástar- og saknaðarlög til fjölskyldunnar hægri vinstri. Á púkinn að hlæja eða gráta? Af því að vetrarpúkinn hef- ur tekið öll völd og er púki þá bendir hann mér á frétt af þátt- töku Leoncie. Indverska prinsess- an freistaði gæfunnar rétt eins og Magni í Rock Star: Supemova. Hún gerði stórskemmtilega tilraun til að komast inn í X - factor sem er svip- aður þáttur og Idolið. Prinsessan er orðin nokkuð roskin svo púkinn veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta yfir þessu hjá blessaðri kon- unni. Tár hans renna niður ískald- ar kinnamar þegar hann skýst fyrir homið hjá Prikinu og tekur strikið upp Laugaveginn sem sumir vilja fegra en aðrir vilja breyta. Alltaf er þetta svona, enginn er sammála. Svona er ísland í dag í veruleikan- um og á skjánum. Drottning þrjóskunnar Eitt má prinsessan eiga og það er að hún er drotthing þrjóskunn- ar og lætur ekki deigan síga. Magni þarf litlar áhyggjur að hafa, hann á traustan áhorfendahóp. Allir elska Magna en flestír bera blendnar til- finningar til sönglistar og áfergju Leoncie í leit að frægð og frama. Eins og margoft hefur verið sagt þá em raunveruleikaþættir ávallt vinsælli en fólk vill viðurkenna. En hvort sem um er að ræða tilraunir Magna og Leoncie í að spreyta sig í sönglistinni eða átök milli lögfræð- inga, lækna og löggunnar í amer- ískum klisjuþáttum, er ágætt að hjúfra sig meira að skjánum. Hvað sem öllu líður, Magna, Leoncie, tómum Austurvelli og skólatösk- um, er eitthvað kunnuglegt við vet- urinn og hann leggst bara vel í mig og um leið og ég segi þetta horast púkinn og verður léttari. Sföð 2 Bíó - Confessions ofa Dangerous Mind - 22.00 Sam Rockwell fer á kostum í hlut- verki sjónvarpsstjörnunnar Chuck Barris. Chuck er vinsæll og virðast hon- um allir vegir færir. Hins vegar vita ekki allir að Chuck karlinn á sér dökka hlið sem enginn veit af. Hann starfar einn- ig sem leigumorðingi á vegum banda- rísku leyniþjónustunnar. Skjár einn - Sleeper Cell - 22.30 Baráttan við hryðjuverkharðnar og verða bæði hryðjuverkamenn og lög- gæslumenn harðari í aðgerðum sín- um. Þættírnir Sleeper Cell fjalla um þessa baráttu á spennandi og raun- sæjan hátt. í þættínum í kvöld reynir Darwyn að koma sér vel við efnafr æð- ing í von um að fá eitthvað af eitrinu sem hann býr tíl fyrir hryðjuverkahóp. BOLTINN I BEINNI VEISLUSALUR afmæli, stcggir i gæsir og einkasamkvæi POOL & SNOKER Hverfisgata 46 s: 55 25 300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.