Freyr - 01.01.1987, Síða 24
og minkarækt aðeins 3, og í kanín-
urækt ekkert, svo að dæmi sé
tekið af nýbúgreinum. Sama má
segja um leiðbeiningaþjónustu ný-
búgreina, þar er ríkjandi mannfæð
og fjárskortur. Til dæmis er eng-
inn starfandi ráðunautur í fiskeldi
hjá Búnaðarfélagi íslands og að-
eins einn í loðdýrarækt. Þarna
þarf að gera stórátak um leið og
rannsóknir til aukinnar hag-
kvæmni í hefðbundnum búrekstri
yrðu efldar. Það starf sem unnið
hefur verið af Rala, búnaðarskól-
anum og leiðbeiningaþjónustunni
hefur skilað sér margfalt til hags-
bóta fyrir bændur og þjóðarbúið í
heild. Nú þarf að virkja þessar
stofnanir sérstaklega til að finna
hagkvæmar leiðir til lausnar þeim
vanda sem nú er uppi í íslenskum
landbúnaði. Og til að standa undir
nafni ætti Framleiðnisjóður að
auglýsa og veita styrki til fram-
haldsmenntunar í nýbúgreinum.
Þeir bændur sem hafa aðstöðu á
jörðum sínum til búháttabreytinga
þurfa að hafa aðgang að öflugri
leiðbeiningaþjónustu um leið og
þeim og öðrum sem ætlað að byrja
búskap væri gert skylt að leita sér
lágmarksþekkingar og reynslu á
þeim búrekstri sem þeir ætla að
stunda.
Sókn er besta vömin.
A sviði markaðssóknar og vöru-
þróunar er mikill óplægður akur
þótt víða megi sjá eitt og eitt
plógfar. Það er nú einu sinni svo
að engin vara selur sig sjálfkrafa
nú á tímum markaðshyggju og
sölumennsku, hversu holl og góð
sem varan er. Óskum neytenda
um fituminni mjólkurvörur og
kjötflokka verður að mæta, enda
eru líkur á því að slíkar kröfur
verði ennþá háværari í framtíð-
inni. Reyna verður að hafa kjö-
tvörur sem ferskastar og því verð-
ur að endurskipuleggja slátrunar-
tíma og meðferð á kjöti. Til þess
að þetta sé hægt, þarf að endur-
skoða úrvinnslu og milliliðakerfið
og gera það hagkvæmara og virk-
ara í sölu og markaðsmálum.
Bændur í neðsta þrepi
launastigans.
Ásamt föstum niðurgreiðslum á
kindakjöti og mjólk hafa
stjórnvöld líka þann möguleika að
halda niðri gjaldalið verðlags-
grundvallarins þannig að laun
bóndans haldist og helst hækki
þótt minna framleiðslumagn sé til-
skiptanna. Þar vegur þyngst
áburður og kjarnfóður ásamt
kostnaði við vélar. Ekki mun af
veita. Nýlega kom fram á Alþingi
(Alþingistíðindi 1986) að á verð-
lagi ágústmánaðar 1986 var
launaliður bóndns kr. 637 þús.
hinn 1. október 1983, en kr. 700
þús. hinn 1. júní 1986 sem þýðir í
raun að laun bóndans ná ekki að
fylgja launum í verðlagsgrundvell-
inum haustið 1986. Það er þó ljóst
að bændur eru fallnir niður í
neðsta þrep í launastiga lands-
manna.
Óryggissjónarmið.
í landbúnaðarumræðunni má ekki
gleymast mikilvægi þess að íslend-
ingar geti framleitt sem mest af
matvælum innanlands og nota til
þess sem mest af heimafengnum
aðföngum. Því að „tímasprengj-
urnar“ eru úti um allan heim í líki
kjarnorkuvera, efnaverksmiðja,
kjarnorkuflauga, sem sumar eru
„sprungnar“, samanber slysið í
Chemobyl á síðasta vetri og úr-
gangseitrið sem stöðugt berst út í
vatn, jarðveg og andrúmsloft víðs-
vegar í heiminum.
Ut frá öryggis- og heilbrigðis-
sjónarmiði hlýtur að vera, ef til
langs tíma er litið, ómetanlegt að
geta framleitt sem mest af matvæl-
um á okkar tiltölulega ómengaða
landi, þótt niðurgreiddar umfram-
birgðir matvæla og aðfanga fáist
fyrir lítið í dag í nágrannalönd-
unum.
Á krossgötum.
Þótt landbúnaðurinn sé nú á
krossgötum er ekki þar með sagt
að forystulið bænda eigi að hlaupa
í blindni á eftir skriffinnum ráðu-
neytanna inn á fyrsta öngstræti,
sitja þar sem fastast og bíða eftir
að bændur veslist upp og hætti
búskap.
Þvert á móti tel ég að verði rétt
leið farin eigi íslenskur landbún-
aður bjarta framtíð. En þær
breytingar sem landbúnaðurinn
þarf að ganga í gegnum krefjast
lengri aðlögunartíma og verða að
byggja á langtíma landnýtingar og
byggðaáætlun.
Heimildir:
Alþingistíðindi 8. hefti 1986, þingskjal
215.
Búmarksskrá Framleiðsluráðs, Freyr 13.
hefti 1986.
Rannsóknarverkefni 1986. Fjölrit RALA
nr. 119 1986.
Landnýting í Islardi, og forsendur fyrir
landnýtingaráætlun. Landb.ráðun. maí
1986.
Viö áramót.
Frli. af hls. 7
grunnsævi er og fiskimið? Það veit enginn.
Geislamengun af völdum slyssins í Tsjernobyl
varð sums staðar mikil svo sem í Skandinavíu,
en allgóð yfirsýn hefur fengist um hana. Súrt
regn útrýmir fiskum í vötnum og skógar
eyðast. Fiskur deyr af völdum mengunar
undan ströndum Danmerkur og mengun sjáv-
16 Freyr
ar er víðar mikil. Næst okkur heggur hins
vegar gat á ózonlagi jarðar á norðurslóðum,
þannig að útfjólubláir geislar, hættulegir öllu
lífi ná til jarðar. Hvert um sig eru þessi atriði
og önnur ónefnd e.t.v. ekki ógnvænleg né
óbætanleg og jafnvel sum ofmetin, en saman-
legt eru þau ógnun við viðhald lífs á jörðunni.
Út frá því sjónarhorni minnka önnur
vandamál. M.E.