Freyr - 15.04.1987, Qupperneq 18
0)
*-*
o
1—
n
3
«o
'c
5
ra
Sýrustig - pH - í votheyinu er mikilvægl fyrir framvindu gerjunarinnar.
legt að breiða yfir stæðuna
t. a. m. yfir nótt eða ef lengri hlé
verða á hirðingu. Það forðar því
að loft geti leikið um yfirborð
heystæðunnar. Óheftur aðgangur
lofts að yfirborðinu hindrar að
skilyrði réttrar gerjunar komist á.
Söxun grass við votheysgerð er
atriði sem of lítill gaumur hefur
verið gefinn á undanförnum
árum. Undantekningarlítið er ár-
angur votheysverkunar betri sé
grasið saxað en þegar hirt er án
söxunar af neinu tagi. Helstu skýr-
ingar þess eru, að saxað gras
pakkast mun betur (þéttar) í
geymslunni, þ. e. minna loft verð-
ur í stæðunni. Ennfremur leiðir
söxunin til þess að plöntusafinn
verður aðgengilegri fyrir gerlana í
heyinu og gerjunin kemst fyrr í
gang. Gera má ráð fyrir að saxað
gras rúmist allt að fimmtungi bet-
ur í geymslu en ósaxað. Ennfrem-
ur koma kostir söxunar fram við
fóðrun með votheyi. Gripir um-
setja jafnan meira af söxuðu en
ósöxuðu votheyi. Nýting heima-
aflaðs fóðurs verður þar með betri
ef söxun er beitt.
Ef til vil eru kostir söxunar við
votheysgerð ótvíræðastir að því er
fóðrun með vothey varðar. Á
grundvelli niðurstaðna fjölmargra
rannsókna svo og hagnýtrar
reynslu margra bænda verður að
telja söxun eina af meginforsend-
um þess að fóðra mjólkukýr á
votheyi eingöngu.
Á undanförnum árum hefur
notkun s. k. fjölhnífavagna, sem
smækkunaráhalds við votheys-
verkun, farið vaxandi. Rétt þykir
hér að benda á að slík tæki saxa
ekki í þeim skilningi sem hér er
viðhafður. Þeir hins vegar
smækka grasið og gera það með-
færilegra fyrir ýmsan tækjabúnað
sem notaður er við hirðingu. Með
votheyssöxun er átt við að meðal-
strálengd eða öllu heldur stubb-
lengd verði 25—30 mm.
— í þriðja lagi hafa íblöndunar-
efni áhrif á gæði votheysverkunar-
innar. Notkun þeirra miðar að því
að hjálpa til við að koma af stað
æskilegri gerjun. Fjölmörg og ólík
efni geta komið að gagni. Þau eru
ýmist nærandi, þ. e. fyrir æskilega
gerla, sýrandi eða virka hemjandi
á óæskilega gerla. Algengasta
íblöndunarefnið er maurasýra, en
einnig hefur notkun s. k. Kofa-
salts komið til nú seinni árin.
Maurasýra er tiltölulega sterk líf-
ræn sýra og mjög tærandi. íblönd-
un hennar veldur skjótri súrnun í
heyinu og við það stöðvast öndun
plöntufrumanna og starfsemi
óæskilegra örvera lamast. Sýruþol
mjólkursýrugerlanna gerir það
hins vegar að verkum að þeir
starfa áfram og vinna að frekari
súrnun í heyinu. Ennfremur eru
áhrif maurasýru þau, að vatn (eða
plöntusafi) dregst út úr grasinu,
vökvaspenna í því minnkar og það
pakkast betur saman. Algengt
magn maurasýru til íblöndunar er
um 3 lítrar af 85% sterkri sýru í
tonn af 20% þurru grasi. Sé hirt í
röku veðri eða strax eftir rigningu
er ástæða til að auka sýrumagnið í
3,5 til 4 lítra í tonn og jafnvel enn
meira ef um mjög blautt gras er að
ræða. Kofa-salt er ekki sýrandi
efni og veldur minni tæringu á
málmum en maurasýran. Það
hindrar hitamyndun í heyinu lakar
en maurasýran. Við notkun Kofa-
salts við votheysgerð verður að
gera meiri kröfur til hirðingar-
hraða, jöfnunar og þjöppunar
heysins, samanborið við notkun
maurasýru. Þetta gildir ekki síst ef
grasið er forþurrkað. Talið er að
notkun Kofa-salts hafi mjög tak-
mörkuð áhrif sem íblöndunarefni
ef þurrefni heysins er um og yfir
35%.
Við val á íblöndunarefni í vot-
hey er rétt að hafa í huga, að
ekkert efni tryggir góðan árangur
verkunar. Rétt notkun þeirra
stuðlar hins vegar að betri árangri
verkunar, ekki síst ef hráefnisgæð-
um eða framkvæmd verkunarinn-
ar er í einhverju ábótavant.
— í fjórða og síðasta lagi má svo
nefna forþurrkun sem þátt er áhrif
hefur á votheysgæðin. Það færist í
vöxt að gras sé lítið eitt þurrkað á
velli fyrir hirðingu. í mörgum til-
fellum næst betri verkun í for-
þurrkuðu votheyi. í því verður
gerjunin umfangsminni. Þegar
þurrefnisinnihald í votheyinu er
komið um og yfir 30% eiga óæski-
legir gerlar eins og smjörsýrugerl-
ar erfitt uppdráttar. Ef gras til
306 Freyr