Freyr - 15.05.1987, Síða 34
Á fundi framkvœmdanefndar Framleiðsluráðs hinn 6. maí sl. gerðist m.a. þetta:
Sala nautgripakjöts til
loðdýrafóðurs.
Upplýst var að sala á nautgripa-
kjöti til loðdýrafóðurs er að kom-
ast til framkvæmda. Magnið verð-
ur ekki yfir 500 tonn en áætlað var
að selja 600-700 tonn á þennan
hátt. Fjármagn sem til þessa verk-
efnis var ætlað dugði ekki fyrir
meira magni, auk þess sem sala á
nautgripakjöti hefur örvast þannig
að ekki er brýn þörf á að selja eins
mikið af þessu kjöti í loðdýrafóður
og áður var talið. Sjá nánari upp-
lýsingar um þetta mál í 8. tbl., bls.
322-3.
Reglugerð um endurgreiðslu
sérstaks fóðurgjalds vegna
nautgripa- og sauðfjárafurða.
Lögð voru fram drög að nýrri
reglugerð um endurgreiðslu sér-
staks fóðurgjalds vegna nautgripa-
og sauðfjárafurða. I reglugerðinni
er gert ráð fyrir að ráðstafa megi
hluta af sérstöku kjarnfóðurgjaldi
til að greiða fyrir sölu á nautgripa-
kjöti.
Fundurinn gerði nokkrar minni-
háttar athugasemdir við drögin,
m.a. að endurgreiðsla sérstaks
fóðurgjalds næði einnig til sér-
staks hrossafóðurs.
Leiga á fullvirðisrétti
á milli jarða.
Upplýst er að farið er að gera
leigusamninga milli bænda um
fullvirðisrétt í mjólk og eru nú
þegar tvö dæmi um slíkt í Mýra-
sýslu.
Þessir samningar eru til 6-7 ára
og gengið er út frá sama magni
mjólkur öll árin eins og viðkom-
andi jarðir hafa fullvirðisrétt til að
framleiða á yfirstandandi verð-
lagsári, þrátt fyrir að vitað sé að
magnið þarf að minnka samkvæmt
magnsamningi ríkisstjórnar og
Stéttarsambands bænda.
Leitað hefur verið eftir úrskurði
landbúnaðarráðuneytisins um það
hvort samningar þessir standist
lög og reglugerðir.
Bætur fyrir fé sem
ferst á þjóðvegum.
Ákveðnar voru eftirfarandi bætur
fyrir fé sem ferst á þjóðvegum á
árinu 1987. Meðalhækkun
sauðfjárafurða frá maí 1986 til og
með maí 1987 er um 21%. Þar er
ekki tekin með geymd hækkun frá
september 1986.
1986 1987
Tvílembingur
Einlembingur
Veturgömul ær
Fullorðin ær til
júlíloka
Fullorðin ær frá
1. ágúst
1. verðlauna
hrútur
2. verðlauna
hrútur
3. verðlauna
hrútur
kr. 3.600 3.700
kr. 3.600 4.400
kr. 4.900 6.000
kr. 4.900 6.000
kr. 3.600 4.400
kr. 11.000 13.400
kr. 7.300 8.900
kr. 6.700 8.200
Reglugerð um fullvirðisrétt í
mjólk á næsta verðlagsári.
Lögð voru fram drög að reglugerð
um fullvirðisrétt í mjólk á næsta
verðlagsári sem Búmarksnefnd
hefur gert. Lagt var til að gengið
yrði eftir því við landbúnaðar-
ráðuneytið að reglugerð um þetta
efni verði sett sem allra fyrst, enda
sumarleyfi framundan og brýn
þörf fyrir bændur að vita tíman-
lega um rétt sinn í þessu efni.
Lán til Verðmiðlunarsjóðs
mjólkur.
Lagt var fram bréf frá landbúnað-
arráðuneytiðsins þar sem það
heimilar lántöku að upphæð kr. 60
milljónir til Verðmiðlunarsjóðs
mjólkur til að greiða upp í verð-
vöntun mjólkursamlaga á alman-
aksárinu 1986. Lán þetta hefur
verið tekið og því skipt í samráði
við ráðuneytið.
Páskalömb vorið 1987.
Borist hafði bréf frá aðilum að
félagsbúinu í Skarðaborg í Suður-
Þingeyjarsýslu þar sem farið er
fram á að kjöt af 7 kindum sem
lógað var í apríl sl. verði tekið með
í uppgjöri yfirstandandi verð-
lagsárs.
Ákveðið var að tilkynna þess-
um bændum að ekki sé unnt að
taka þetta kjöt með í uppgjöri
þessa verðlagsárs þar sem lokið er
við að ráðstafa öllum fullvirðis-
rétti á verðlagsárinu. Hins vegar
er bent á að það kunna að vera
möguleikar á að taka þetta kjöt
með fullvirðisrétti næsta haust á
nýju verðlagsári, en þó með sér-
stökum ráðstöfunum þar sem
heimild skortir fyrir því í reglu-
gerð.
Ráðstöfun kLndakjöts frá 1985.
í lok mars sl. voru óseld um 422
tonn af kindakjöti af framleiðslu
ársins. Samþykkt var að óska eftir
að það sem enn er óselt af því
kjöti verði tekið út af markaði og
ráðstafað t.d. f loðdýrafóður.
Vaxta- og geymslugjald
af kindakjöti.
Ríkisstjórnin tók þá ákvörðun í
mars sl. að hætta að greiða vaxta-
og geymslugjald á birgðir kinda-
kjöts í hverjum mánuði en nota
féð til að greiða hækkun kjöt-
verðsins hinn 1. mars sl.
Þetta veldur sláturleyfishöfum
miklum erfiðleikum þar sem þeir
fá ekki fé til að greiða vexti af
afurðalánum fyrr en kjötið selst.
Ef það selst ekki fá þeir aldrei
fyrir þessum kostnaði. Sú þrönga
402 Freyr