Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1987, Page 10

Freyr - 01.09.1987, Page 10
Prjár kynslóðir í Vogum, frá vinstri: Þórarinn Þórarinsson, Þórarinn Þórarinsson og Þórarinn Már Þórarinsson. Hvemig kemur þetta við afrétti og beitarþol þeirra hér um slóðir? Hér eru í sjálfu sér ekki miklir afréttir. Það eru tveggja daga göngur í hluta sveitarinnar suður með Jökulsánni, en að mestu leyti er hér allt gengið á einum degi. Það er ekki um ofbeit að ræða í heiðarlöndum okkar og hefur ekki verið. Að vísu er svokallaður Þeystareykjaafréttur, sem liggur að landi Keldhverfinga að sunnan og er afréttur Aðaldæla, ofbeittur að mati Landgreiðslunnar undan- farin ár. Með samdrætti í sauðfjár- búskap þá léttir á þessu landi því að þarna er frjáls samgangur á milli. Var farið að fækka fólki hér í sveit áður en riðuveikin kom til sögunnar? Já, það hefur fækkað mjög fólki hér og til að nefna grófar tölur hefur fækkað hér um 100 manns á sl. 30 árum, úr u.þ.b. 250 í 150 íbúa. Samdrátturinn var þannig áður en til niðurskurðar kom, enda búið að þrengja verulega að okkur í sambandi við full- virðisréttinn. Hér um slóðir tóku menn al- mennt mikið tillit til áskorana yfir- valda um samdrátt í búvörufram- leiðslu upp úr 1980 en fengu það svo á sig að fullvirðisréttur til sauðfjárframleiðslu var ákveðinn eftir framleiðslu undanfarinna harðindaára án tillits til búmarks. Þú nefndir að rosknir bændur muni ekki allir taka fé aftur en verður þú var við að ungt fólk og fólk á góðum aldri leiti burt úr sveitinni við þessar aðstæður? Það er hvort tveggja, en hins veg- ar hafa kynslóðaskipti hér verið vandamál og jarðir farið í eyði þegar að þeim hefur komið. Hvemig er uppbygging jarðanna á vegi stödd ? Það er mismunandi en núna stendur víða auð góð aðstaða á mörgum bæjum til að hefja fjár- búskap aftur. Hér í sveit eru ein sérstæðustu náttútufyrirbæri landsins þar sem eru Ásbyrgi, Hólmatungur o.fl. Hefur það gefið tilefni til ferðamannaþjónustu ? Já, Kaupfélag Norður-Þingeyinga hefur komið upp verslun í Asbyrgi sem bæði þjónar ferðamönnum og íbúnum í nágrenningu. Ferðaþjón- usta meðal bænda í sveitinni er líka vaxandi. Það hefur í allmörg ár verið rekin fyrirgreiðsla við ferðamenn í Skúlagarði, gisting, svefnpoka- pláss og minniháttar veitingasala. Sl. sumar var svo boðið til leigu íbúðarhúsið í Lyngási en búskapur hefur þar verið lagður niður. Eftir því sem ég best veit hefur verið fullbókað þar í sumar. Bóndinn á Hóli, Tryggvi Isaksson, keypti Lyngás og leigir húsið út og sonur hans rekur hestaleigu á Hóli nú þriðja sumarið í röð og gengur dável. Kelduhverfí var mjög í fréttum í sambandi við Kröfluelda fyrir nokkrum árum. Hafa varanleg ummerki orðið af þeirra völdum? Já, það má segja að hér hafi gerst miklir hlutir í sambandi við jarð- skjálftana og gosið um og eftir Ásbyrgi, ein af mestu náttúruperlum hér á landi, er í Kelduhverfi. 658 Freyr

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.