Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1987, Blaðsíða 13

Freyr - 01.09.1987, Blaðsíða 13
Mynd 2. Kílplógur. Á seinni árum hafa komið fram tœki til kílrœslu sem tengja má aflan í dráltarvél. En þá þarf90-120 hestafla vél til að draga kílplóginn. ekki hafi hún verið álitleg í upp- hafi þegar landið var fyrst ræst. Alltaf skal þó gæta þess að kanna vel þann jarðveg sem kílræsa á áður er ráðist er í framkvæmdir. Við lagningu kílræsa raskast yfirborð jarðvegs lítið sem ekkert. Því getur verið álitlegt að kílræsa tún sem farin eru að blotna upp og reyna þá þessa aðferð áður en ráðist er í dýrari framkvæmdir. Kflræsi er hæfilegt að leggja með 4—6 m millibili. Þau þurfa að vera með öruggum halla og vera á 1—1,2 m dýpi. Vegna frosthreyf- inga, gróðurs og umferðar búfjár vill endi sá sem kemur út í affall eða skurð oft hrynja saman. Því er æskilegt að setja plaströrsbút (1— 1,5 m) í útfall röranna. Reikna má með að kflræsi end- ist í 5—10 ár að jafnaði, þótt einstaka ræsi endist mun lengur. Samkvæmt gömlum vinnumæl- ingum tekur það 1—2 klst. að kflræsa 1 hektara lands. Þar hljóta þó aðstæður að ráða miklu, t.d. hversu langt hvert ræsi er og hversu samfellt landið er sem á að ræsa. Samkvæmt nýjum jarðræktar- lögum er ekki veitt ríkisframlag á kflræsi. Plógræsi. Árið 1962 hafði Vélasjóður ríkis- ins forgögnu um að inn var fluttur finnskur lokræsaplógur til reynslu við íslenskar aðstæður. Plógur þessi var talsvert notaður hér á landi á næstu árum eða allt fram undir 1970 og er líklega fyrirmynd flestra þeirra gerða sem síðar komu fram hérlendis. Á tímabil- inu 1962—1970 voru gerðar á plógunum smávægilegar breyting- ar og lét Vélasjóður smíða tvo lokræsaplóga sömu gerðar til við- bótar þeim fyrsta. Árin 1964— 1967 voru stöðugt tveir plógar í notkun á vegum Vélasjóðs, við plæjgingu allvíða um land. Arið 1963 smíðaði Eggert Hjartarson á Hvammstanga lok- ræsaplóg, sem við prófun á Hvanneyri sumarið 1964 reyndist vel. Eggerts-plógurinn var talsvert notaður fram undir 1970, að aðrar gerðir leystu hann af hólmi. Árið 1967 var smíðaður plógur á Sleitustöðum í Skagafirði og not- aður fram til 1974 að notkun hans var hætt vegna verkefnaskorts. Það var nýjung við þennan plóg að hann var fasttengdur við jarð- ýtu og unnt var að lyfta honum með vökvaafli. Ein gerð plóga hefur verið kennd við Pálma Jónsson á Sauðárkróki og hefur sá plógur verið í notkun í allmörg ár. Svokallaður Olsens-plógur hef- ur verið í notkun um talsvert skeið hjá Rsb. Hjörleifi, en eins og meðfylgjandi myndir eiga að sýna vinnur plógur þessi dálítið öðruvísi en aðrar gerðir. Á árunum upp úr 1980 lætur Rsb. Mýramanna smíða nýja gerð af lokræsaplóg og vinnur hann svipað og margar aðrar gerðir, en er þó fasttengdur við jarðýtu og má hæðarstilla hann á ferð. í megin dráttum vinna allar gerðir lokræsaplóganna svipað. Aðalplógurinn lyftir jarðveginum upp, undir er svo minni plógur sem sker streng (20x30 cm) og Freyr 661

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.