Freyr - 01.09.1987, Blaðsíða 30
Samþykkt var að veita kr. 30
þúsund til þessa málefnis.
Staða fr amkvæmdastj óra
Framleiðsluráðs
landbúnaðarins.
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
varð sjötugur á þessu ári og hefur
sagt starfi sínu lausu frá
næstkomandi áramótum.
Ákveðið var að auglýsa stöðuna
lausa til umsóknar og var frestur
til að skila umsóknum ákveðinn
15. september nk.
Framleiðsla mjólkur.
Innlögð mjólk í júlímánuði sl. var
um 10.274 þúsund lítrar sem er
rúmlega 537 þúsund lítrum eða
4,96% minna en í sama mánuði
árið áður.
Innlögð mjólk fyrstu 11 mánuði
verðlagsársins er rúmlega 99.544
þúsund lítrar sem er um 1.949
þúsund lítrum eða 1,92% minna
en á sama tíma árið áður.
Nýttur fullvirðisréttur verðlags-
ársins var að meðaltali 94,43%.
Sala kindskjöts.
Sala á kindakjöti innanlands
fyrstu 10 mánuði verðlagsársins,
til júníloka er 7.076 tonn sem er
tæpu 281 tonni eða 3,8% minna
en á sama tíma árið áður. Útflutt
kjöt á sama tíma er um 2.040 tonn
sem er um 327,5 tonnum eða
13,8% minna en árið áður. Rýrn-
un kjöts á verðlagsárinu til júní-
loka eru rúmlega 313 tonn en voru
tæpt 101 tonn árið áður og koma
þar fram 112 tonn af kjöti sem
urðað var í mánuðinum.
Innanlandssala af kindakjöti í
júní var 713,4 tonn sem er 76,5
tonnum eða 12,0% meira en árið
áður.
Framleiðsla og sala
nauðgripakjöts.
Innlagt nautgripakjöt fyrstu 10
mánuði verðlagsársins, til júní-
loka, var um 2.697 tonn sem er
223 tonnum eða 7,6% minna en
árið áður. Sala nautgripakjöts á
sama tíma er 2.523 tonn sem er
366 tonnum eða 17,0% meira en
árið áður. Birgðir nautgripakjöts í
júnílok eru 1.276 tonn sem er 62
tonnum eða 4,6% minna en árið
áður.
Sala nautgripakjöts í júnímán-
uði var 346 tonn sem er 74 tonnum
eða 27,2% meira en í sama mán-
uði árið áður.
Framleiðsla og sala svínakjöts.
Innlagt svínakjöt fyrstu 10 mánuði
verðlagsársins, til júníloka, er
1.612 tonn sem er 131 tonni eða
8,9% meira en árið áður. Sala
svínakjöts á sama tíma var 1643.5
tonn sem er 176.5 tonnum eða
12,0% meira en árið áður. Sala í
júnímánuði var um 162 tonn sem
er 29 tonnum eða 21,8% meira en
árið áður.
Framleiðsla og sala á
alifuglakjöti.
Á tímabilinu janúar til loka júní á
þessu ári var slátrað 1.137.508
fuglum sem gáfu 1.261.105 kg af
kjöti. Sala á fuglakjöti á sama
tíma var 961.198 kg og birgðir
fuglakjöts í júnílok voru um 600
tonn.
Staöa framkvæmdastjóra Fram-
leiösluráös landbúnaðarins
Starf framkvæmdastjóra Framleiösluráös landbúnaöar-
ins er laust til umsóknar frá 1. janúar 1988 aö telja.
Umsóknir, þar sem tilgreindur er aldur, menntun og fyrri
störf umsækjenda, sendist fyrir 15. sept. 1987.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
Báruplast og efni í stálgrindahús
Framleiðum báruplast, vel glært.
Ýmsar stærðir og gerðir fyrirliggjandi.
l-bitar, vinklar og prófílrör fyrirliggjandi
í loðdýrahús og önnur stálgrindahús.
J. HINRIKSSON HF.
Súðarvogi 4, 104 Reykjavík.
Símar: 91-84677, 91-84380 og 91-84559
628 Freyr