Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1987, Blaðsíða 32

Freyr - 01.09.1987, Blaðsíða 32
Mynd I Mynd II Tákn fyrir froslmerkingar stórgripa. Frostmerki hrossa er samsetl úr átta táknum, sem gerð eru úr réttum hornum og samsída línum, sbr. mynd /. Táknin merkja lölustafina frá 0—9, sbr. mynd II. Merkið er jiannig byggt upp, að fremst er J. sem láknar að hrossið er kynhreint og íslenskt. Þá koma tvö tákn, hvort upp af öðru, sem merkja síðustu tvo tölustafi ífœðingarári, en þriðja tákn merkir kyn hrossins þar sem I I táknar hest og (~ táknar hryssu. Þá koma tvö tákn fyrir fœðingarhérað og loks þrjú tákn fyrir skráselningar- númer. og verðu hér vikið að nokkrum þeirra. Nú er nánar kveðið á um ýmis atriði, og í viðauka með reglugerðinni er greint ítarlega frá reglum um litarmerkingu búfjár. í 1. grein reglugerðarinnar eru búfjármörk skilgreind sem eyrna- mörk, brennimörk, frostmerk- ingar og plötumerki í eyra. Horna- mörk eru ekki lengur viðurkend. Þar kemur meðal annars fram að óheimilt er að taka upp mörkin gat og netnál á sauðfé og sprett í nös á búfé. Markavörðum er gert að vinna gegn varasömum ná- merkingum og fá markeigendur til að leggja miður mörk sem talin eru óæskileg eða verður óheimilt að nota framvegis. 2. grein fjallar um eyrnamörk- in, af þeim öllum eru myndir og samræmd heiti fyrir öll fjallskila- umdæmi landsins. Merkt er við þau mörk sem talið er að eigi ekki að nota í framtíðinni, svo sem ýmis soramörk eða mörk sem geta verið ógreinileg eða of lík öðrum. Nú skal til dæmis nota alls staðar markheitið hálftaf í stað jaðrað, og tvíbitað í stað bitar tveir. I 3. greininni eru reglur um plötumerki og skulu þau vera í þeim litum sem tilgreindir eru í viðauka með reglugerðinni í sam- ræmi við fyrirmæli sauðfjárveiki- varna. 4. greinin fjallar um forstmerk- ingu stórgripa og er hér um ný- mæli að ræða. Sýndar eru skýring- armyndir af hinu viðurkennda frostmerkingakerfi fyrir hross sem nú ryður sér til rúms. Forstmerk- ing skal skráð í upprunavottorð sem fulltrúi Búnaðarfélags íslands gefur út og fylgir það ætíð gripnum. Óheimilt er að slátra frostmerktu hrossi nema uppruna- vottorð sé framvísað og staðfest- ingu búnaðarfélagsins um hver sé skráður eigandi. Hér er merkt ákvæði á ferðinni því að sum hross skipta oft um eigendur, og einnig ætti með þessu að vera hægt að koma í veg fyrir misferli af ýmsu tagi. í 5.—7. greinum er fjallað all ítarlega um markeigendur, eig- endaskipti að mörkum svo og skráningu og niðurfellingu marka. 8.—9. greinar eru um marka- skrár og gerð þeirra. Nú er gert ráð fyrir samræmdum reglum um röðun marka í skrárnar svo og um brot og annan frágang. Hér kemur fram það veigamikla nýmæli að Búnaðarfélag Islands skuli skrá öll mörk í Iandinu í tölvu og er það starf nú að hefjast. Tölvuskráning marka ætti m.a. að auðvelda alla vinnu við útgáfu markaskráa, en gert er ráð fyrir að á árinu 1988 verði nýjar markaskrár gefnar út um land allt. Samræming á marka- heitum og stöðlun af ýmsu tagi eru nauðsynlegar forsendur þess að hægt sé að skrá mörkin í tölvu- skrá. Tölvuskráin getur síðan orð- ið eins konar landsmarkaskrá. 10. greinin er mjög efnismikil og fjallar um sammerkingar á sauðfé. Lögð er áhersla á að gert verði átak til að draga úr sam- merkingum. Hvert fjailskila- umdæmi fyrir sig er tekið fyrir og tilgreint, við hvaða umdæmi eða svæði sammerkingar eru óheim- ilar. Leitað var álits markavarða þegar þessar reglur voru í mótun og komu fram býsna skiptar skoð- anir á málinu. Sumir vildu draga mun meir úr sammerkingum er krafist er í reglugerðinni, en aðrir vildu fara vægar í sakirnar. Þannig má segja að farin hafi verið sú leið sem flestir geta sætt sig við. Þó er ljóst að það verður mikið verk 680 Freyr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.