Freyr - 01.09.1987, Qupperneq 11
Kelduhverfi slendur fyrir opnu hafi. Sunnanvið íbúðarhúsið í Kílakoti vex reyniviður í
skjóli við norðanáttina.
í Skúlagarði í Kelduhverft er þetta
minnismerki um Skúla Magnússon land-
fógeta. Hann er fœddur í Keldunesi og
sagan segir að örn hafi sest á bœjarburst-
ina þegar hann fœddist.
áramótin 1975—’76, þegar stóri
skjálftinn varð á Kópaskeri og
skjálftar hér vikum saman. Pá
varð mikið landsig hér í miðri
sveitinni í kringum svokallaða
Keldunesbæi. Þar myndaðist stórt
stöðuvatn, grunnt að vísu, þar sem
áður var sandur og melgróður.
Þetta vatn er þar enn og er meira
að segja orðið veiðivatn.
Hafa umbrotin spillt landi í
sveitinni ?
Já, á meðan á járðskjalftunum
stóð þá rifnaði landið mjög mikið í
svokölluðum Gjástykki og spildu
sem gengur þaðan norður til sjáv-
ar og þá opnuðust margar nýjar
gjár. Petta var að vísu sundur-
sprungið land áður og mikið af
gjám, en mikið bættist við þær.
Svo er annar hlutu að gerast hér
sem við heimamenn setjum í sam-
band við jarðhræringarnar, en
mér er sagt að starfsmenn Orku-
stofnunar vilji lítið hlusta á. Pað
virðist vera um að ræða gífurlega
mikið landris hér í vestanverðri
sveitinni. Við erum hér á bakka
Víkingavatns og það er nú með
u.þ.b. 70—80 cm lægra vatnsborð
heldur en eðlilegt getur talist og
hefur aldrei í minni elstu manna
orðið eins grunnt og í ár. Sama er
að gerast um lónin hjá Lóni og
þau eru opin til sjávar. Sumir
segjast líka sjá mikinn mun á
skerjum hér vestur af Tjörnesi,
hvað þau standa hærra upp úr sjó
en áður.
Þannig að við virðumst vera
mjög á uppleið.
M.E.
Búrekstrarkönnun.
Frh. af bls. 655.
nefna æðarækt en nærri lætur að 40% af
dúntekju á landinu sé á þessu svæði. Selveiði
var umtalsverð hlunnindi við Breiðafjörð
meðan hún gaf tekjur og getur orðið það aftur
ef verð á selskinnum hækkar. Ferðamanna-
þjónusta er nokkur og mun eflast með til-
komu nýrrar ferju á Breiðafirði á næsta ári.
Sjávarnytjar hafa fylgt bújörðum víða á
þessu svæði um langan aldur og er nú hugað
að þeim í vaxandi mæli á svæðinu.
Skýrsla sú sem hér liggur fyrir er liður í
heildarúttekt á búrekstraraðstöðu á öllu
landinu en í bókum I með magnsamningi
landbúnaðarráðherra og Stéttarsambands
bænda fyrir árin 1988—1992, frá 20. mars
1987, er stefnt að því að slík heildarúttekt
verði gerð.
Búrekstrarkönnun sem þessi er ekki síst
mikilvæg fyrir svæði þar sem búskapur er í
varnarstöðu svo sem segja má að víða gildi á
svæði Búnaðarsambands Vestfjarða. ítarleg
vitneskja um stöðu mála er skilyrði fyrir því
að skynsamlegar ákvarðanir verði teknar um
æskilega þróun búskapar á Vestfjörðum.
M.E.
Freyr 659