Freyr - 01.09.1987, Qupperneq 31
Ólafur R. Dýrmundsson,
ráðunautur
Mörk og markaskrár
Eftirfarandi erindiflutti Ólafur R. Dýrmundsson í búnaðarþætti í útvarpinu hinn 1. júní
sl. Freyr fór fram á að fá það til birtingar og varð höfundur góðfúslega við því. .
Ólafur Dýrmundsson.
Allt frá landnámstíð hafa eyrna-
mörk verið notuð fyrir búfé hér á
landi. Ætla má að mörkin hafi
borist frá Noregi og ef til vill líka
frá Bretlandseyjum, en vitað er að
svipuð eða eins mörk eru til í
Noregi og á Hjaltlandseyjum eins
og hér á landi.
Notkun eyrnamarka er í raun
nátengd hinni fornu og hefðbund-
nu nýtingu beitilanda þar sem
sauðfé, og að nokkru leyti hross,
frá mörgum eigendum, ganga
saman að sumarlagi í víðáttumikl-
um heimalöndum og afréttum.
Þessir þættir í íslenskum búskap
hafa lítið breyst í aldanna rás og
ekki eru fyrirsjáanlegar breyting-
ar. Nú er öll sauðfjár- og hrossa-
mörk skráð í markaskrá sem eru
endurskoðaðar öðru hvoru, síðast
fyrir tæpum áratug.
Erlendis er víðtæk notkun
eyrnamarka á borð við það sem
hér gerist ekki þekkt, enda hverr-
ar fjárhjarðar gætt af fjárhirði eða
hjarðirnar sundurgreindar með
girðingum, oft á ræktuðu eða hálf-
ræktuðu landi. Einföld mörk, t.d.
bitar, eru eitthvað notuð. Sums
staðar eru tölur og tákn tattóver-
uð inn á eyra og brennimörk á
horn eru eitthvað notuð erlendis.
Algengast er þó að nota eingöngu
plötumerki í eyru, úr plasti eða
málmi. A seinni árum hefur frost-
merking á hrossum og nautgripum
rutt sér til rúms víða um lönd og
gefst vel sé rétt að henni staðið.
Hér á landi virðist frostmerking
eiga mikla framtíð fyrir sér, ekki
síst á hrossum.
Eg hygg að varla sé annars
staðar í heiminum að finna jafn
ítarlegar reglur um mörk, merk-
ingu búfjár og um skráningu
marka og hér á landi. Hér er bæði
um ákvæði í lögum og reglugerð-
um að ræða.
Ný reglugerð.
Nú á vordögum þegar sauð-
burði er víða lokið eða hann langt
kominn og verið er að sleppa fénu
út í græna haga og frelsi sumars-
ins, er við hæfi að víkja nokkuð að
þessum málum. Það er ekki síst
vegna þess að um þessar mundir
er landbúnaðarráðuneytið að gefa
út nýja reglugerð um mörk,
markaskrár og sammerkingar bú-
fjár. Reglugerð þessi er nr. 224/
1987 og er sett samkvæmt 9. kafla
laganna um afréttarmálefni, fjall-
skil og fleira, en á honum voru
gerðar ýmsar breytingar árið
1985.
I reglugerðinni eru ýmis nýmæli
x1aRkaskrá
J
Á árinu 1988 verða gefnar út nýjar markaskrár um land allt og þá verða í fyrsta sinn
samrœmd markaheiti um land allt og skrárnar samrœmdar.
Freyr 679