Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1987, Side 36

Freyr - 01.09.1987, Side 36
Úr Auðkúlurétt í Svinadal i Austur-Húnavatnssýslu. (Ljóstn. Jónas Jónsson). fyrir suma markaverðina að vinna að útrýmingu sammerkinga. Hér er oft um viðkvæm mál að ræða, markeigendur eru oft og tíðu ófús- ir að breyta um mark, líta á þau sem eign, og ætla má að slíkar breytingar taki töluverðan tíma. í afréttalögunum er tilgreint að erfðamark gangi fyrir gjafamarki, gjafamark fyrir kaupamarki og kaupamark fyrir gerðarmarki. Að örðu jöfnu ræður aldur marksins, þ.e.a.s. fara verður eftir því hversu lengi mörkin hafa verið í markaskrám viðkomandi um- dæma. Þannig þurfa markaverðir að aldursgreina sammerkingar til að leysa úr ágreiningi, en verði þeir ekki sammála skal vísa mál- inu til markanefndar er sker úr. Markanefnd. Markanefndin er skipuð þrem mönnum, einum frá Búnaðarfé- lagi íslands, öðrum frá sauðfjár- veikivörnum og þeim þriðja frá landbúnaðarráðuneytinu og er hann formaður. Núverandi for- maður markanefndar er Jón Höskuldsson deildarstjóri í Land- búnaðarráðuneytinu. Um nefnd- ina eru fáein ákvæði í 11. grein reglugerðarinnar. Eins og áður var vikið að, var sú nýbreytni tekin upp að birta með reglugerð um mörk og marka- skrár, reglur um litarmerkingu búfjár sem viðauka í fyrsta lagi er skrá yfir öll varnarsvæðin, tak- mörkun svæðanna er lýst, þ.e.a.s. varnarlínunum sjálfum, og til- greindur sá litur sem skylt er að nota. í örðu lagi eru litirnir sjálfir sýndir á korti líkt og verið hefur í markaskrám á seinni árum. Þrjú ný varnarhólf koma nú til sög- unnar með fjólubláan lit. í fyrsta lagi er það Rauðasands- hólf í Vestur-Barðastrandarsýslu sem afmarkast af Rauðasandslínu úr Stálfjalli um Skarðabrúnir í Ósafjörð. í öðru lagi er Vatnsnes- hólf í Vestur- Húnavatnssýslu sem afmarkast af Vatnsneslínu úr Mið- fjarðarvatni í Síðukrók við Víði- dalsá, og af Miðfjarðarlínu úr Miðfjarðarvatni í Miðfjörð. í þriðja lagi er Skaftártunguhólf í Vestur-Skaftafellssýslu með fjólu- bláan lit, en það afmarkast af Eldhraunslínu úr Skaftá austan Eldvatns í landgræðslugirðingu sunnan þjóðvegar í Kúðfljót ná- lægt mörkum Leiðallahrepps og Skaftártunguhrepps. Hinu megin afmarkast hólfið af Hóimsárlínu, Hólmsá og Kúðafljóti. Eitt nýtt hólf bætist við með hvítan lit, en það er Arnarfjarðarhólf í Vestur- Barðarstrandarsýslu sem afmark- ast af Suðurfjarðalínu úr Rauða- sandslínu á Kleifaheiði í Trostans- fjörð. Ég tel ástæðu til í víkja nánar að litarmerkingum sem Sauðfjár- veikivarnir hafa beitt sér fyrir um all langt skeið. Fjölmargir bændur, sums staðar allir á stórum svæðum, hafa lituð plötumerki í öllu fé, lömbum jafnt sem fullorðnu, í samræmi við gild- andi reglur. Enn aðrir nota plötu- merki sem ekki uppfylla skilyrði um litarmerkingar og allt of marg- ir bændur láta eyrnamerkið eitt nægja og nota aldrei plötumerki. Einnig er furðu algengt að hyrnd fé sé ekki brennimerkt, jafnvel þótt brennijárnin séu til á bænum. Því er ljóst að í mörgum tilvikum mætti vanda betur til auðkenning- ar á fénu. Þeir sem nota iituðu plötumerki stuðla ntjög að örugg- ari og betri fjárskilum. Vissulega tapast alltaf úr eitthvað af merkj- um, áletrun verður ógreinileg með tímanum og fleiri vankantar geta komið fram, en ég tel kostina það mikla að hiklaust beri að mæla með almennri notkun merkjanna, helst í allt fé í landinu. Þetta á ekki síst við þegar fé og fjárbændum fer fækkandi. Við baráttu gegn skæðum sauðfjársjúkdómum á borð við riðuveiki er eðlilegt að herða kröfur til betri merkinga á fénu. Á síðastliðnu hausti var slátrað samtals á 6. hundrað óskilafjár á vegum upprekstrarfé- laga og hreppsnefnda í landinu. Þótt hluti þess fjár séu ómerkingar og fé sem farið hefur á milli varn- arhólfa er fullvíst að fækka má óskilafénaði verulega með plötu- merkingum. Greinileg brenni- merking stendur alltaf fyrir sínu og gott handbragð við mörkun lamba bera að hafa í hávegum eftir sem áður. 684 Freyr

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.