Freyr - 15.11.1987, Síða 18
dauða. Allar tilraunirnar voru
gerðar á mjólkurskeiðinu.
í pólskri tilraun, þar sem borin
var saman hvolpadauði, kom í ljós
að á óhreinu iðnaðarsvæði var
hvolpadauðinn meiri, allt til 6
vikna aldurs, heldur en þar sem
dýrin voru í hefðbundnu sveita-
umhverfi. Tilraun sem síðan var
gerð, umhverfi var þá mengað í
tilraunaskyni, staðfesti fyrri niður-
stöður.
Áhrif af löngum flutningum á
minka hafa verið rannsökuð og
engin langvarandi áhrif fundist, ef
fylgt er vissum reglum. Höfund-
arnir komast að þeirri niðurstöðu
að minkar þoli umtalsverða trufl-
un án þess að ónæðið valdi streitu
eða alvarlegri truflun á hegðan og
þeir telja að margir bændur taki
meira tillit til þarfar dýranna fyrir
frið og ró heldur en nauðsynlegt
er.
Hversu mikilvægt er að
minkamir hreyfí sig?
Margar kenningar hafa verið sett-
ar fram um nauðsyn þess að mink-
ar fái næga hreyfingu. í nokkrum
tilraunum hefur verið reynt að
varpa Ijósi á þetta með því að láta
dýrin hreyfa sig og í sumum þeirra
hafa komið fram jákvæð áhrif á
frjósemi þar sem dýrin hafa mest
hreyft sig. Þessar niðurstöður eru
þó í mótsögn við niðurstöður
rannsóknanna með einangrun
læðnanna en þar komu fram já-
kvæð áhrif einangrunar á frjó-
semi. Þörf er fleiri rannsókna á
þessu sviði áður en hægt er að
ráðleggja mönnum eitthvað
ákveðið.
Pörun.
í rannsóknum höfunda á 1040 til-
raunum til pörunar enduðu 38,4%
tilvika með pörun. í þeim tilvikum
voru 75% högnanna komnir með
hnakkatak innan einnar mínútu
frá því að dýrin voru sett saman og
93% eftir að dýrin höfðu verið
saman í 5 mín.
Tafla 1. Mínútur frá því % högna sem dýrin voru sett hafa náð í sama búr hnakkataki % lokinna parana
0.5 37 0
1 75 0
5 93 6
10 99 58
15 100 77
30 100 94
45 100 100
Tafla 2.
Mínútur frá því % para sem flugust á
dvrin voru sett
í sama búr Pörun tókst Pörun tókst ekki
0.5 44 25
1 35 22
2 11 18
3 8 13
4 0 4
5 0 0
10 0 4
15 0 0
í 400 rannsökuðum pörunum kvæðar út frá velferðarsjónarmiði
var framgangsmátinn á eftirfar- og ber því að forðast í þessari
andi veg, sjá töflu 1. atvinnugrein.
í töflu 2 kemur fram yfirlit yfir
það hversu mörg pör flugust á á
þeim tíma sem þau voru saman.
Það gæti verið æskilegt að ein-
angra læður fyrir got hverja frá
annarri en hafa ber í huga að fleiri
rannsókna er þörf áður en áhrif
þess eru að fullu þekkt.
Sá háttur að hafa saman í búri
högna og læðu á vaxtartímanum er
góð lausn. Minkar eru ekki mjög
viðkvæmir fyrir áreitni eða trufl-
unum og núverandi vinnubrögð
hjá flestum bændum skapa dýrun-
um viðunandi ró og næði.
Hafa ber í huga að margvísleg
tækni sem notuð er í landbúnaði
þekkist ekki innan minkaræktar-
innar. Sem dæmi má nefna lofts-
lagsstjórnun og hormónameð-
höndlun til að auka frjósemi.
Notkun slíkra aðferða getur
skapað aðstæður sem eru nei-
Týndur hestur
Rauður, meðalstór, sjö vetra
foli, glófextur með tvískipt fax
og heldur rýrt tagl, Ijónstyggur,
hvarf frá Hofsstöðum í Hálsa-
sveit miðsumars 1986. Mark:
gagnstigað hægra og gat
vinstra.
Þeir sem kynnu að geta gef-
ið upplýsingar um hestinn, lífs
eða liðinn, eru beðnir að hafa
samband við Höskuld Eyjólfs-
son, Hofsstöðum, Hálsasveit, í
síma 93-51369. Finnanda er
heitið notalegum fundar-
launum.
906 Freyr